Stríðsmaðurinn sem gróf öxina. Eða öllu heldur axirnar

Sveita­pilturinn Svavar Gestsson þvældist inn í pólitík og varð eitt helsta „pólitíska animal“ landsins. Karl Th. Birgisson segir sögu hans frá einu sjónar­horni.

Svavar Gestsson var flókinn maður. Hann virkaði einlægur í viðkynningu, forvitinn, spurði margs, en augun voru alltaf svolítið flöktandi, og spurningarnar virtust þess vegna stundum ekki alveg ekta.

Eins og hann ætti von á óvinum handan við öxlina á sér.

Og það sem hann gat átt von á óvinum, raun­verulegum og hugsanlegum. Einkum innan flokks síns, Alþýðu­banda­lagsins.

Rétt eins og Gísli Súrsson, sem þurfti að hafa varann á sér misserum og árum saman. Eftir hjaðningavíg innan fjöl­skyldunnar.

Svavar Gestsson var ekki aðeins einn af merkari stjórn­málamönnum síðustu aldar, heldur afsprengi og endur­speglun þess hvað það var ömurleg öld, þrátt fyrir alla hennar stórkost­legu sigra í vísindum og tækni.

Tvær heims­styrjaldir, kalt stríð, og í okkar pínulitla íslenzka samhengi svo skemmandi stjórnmál að við gjöldum þeirra enn í dag.

Í bæði efnahag og sálarlífi.

Stiklum á stóru.

—

Svavar fæddist á …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár