Þórólfur: Eigum að geta vonast eftir bóluefni fyrr en talið var

Reynsla okkar af því að meta hvort að bólu­efni sé öruggt er ekki til staðar og á meðan engin trygg­ing er fyrir hendi um að bólu­efni kæmi fyrr hingað til lands ef Lyfja­stofnun Íslands gæfi út bráða­birgða­leyfi ætti að flýta sér hægt, segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Þetta verk­efni er aldeilis ekki búið þó að það sé komið nýtt ár,“ sagði Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, við upp­haf fyrsta upp­lýs­inga­fundar almanna­varna og land­læknis á árinu 2021. Eins og með síð­asta ár er ljóst að við þurfum að gera margt með öðrum hætti.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði að til­tölu­lega fáir hefðu greinst með COVID-19 um jólin. 35 greindust sam­tals inn­an­land síð­ustu viku og af þeim var 21 í sótt­kví við grein­ingu. Í gær greindust 10 og var meiri­hluti þeirra þegar í sótt­kví. Hann minnti á að færri sýni hefðu verið tekin að und­an­förnu „þannig að við þurfum aðeins að sjá hvernig dag­arnir þessar viku verða,“ sagði Þórólfur.

Á landa­mær­unum hafa hins vegar fleiri verið að grein­ast með veiruna. Sautján hafa greinst með hið nýja breska afbrigði af veirunni, þar af einn inn­an­lands en sá var fjöl­skyldu­með­limur manns sem greind­ist við landa­mærin.

[adspot]

Þau tíma­mót eru nú í far­aldr­inum að eng­inn liggur á gjör­gæslu­deild með COVID og eng­inn liggur inni á Land­spít­ala með virkt smit en rúm­lega tutt­ugu þó vegna afleið­inga sýk­ing­ar­innar. „Ég held að við komum nokkuð vel undan aðventu og jólum hvað far­ald­ur­inn áhrærir en þessi vika mun skera úr um hvort okkur hafi tkek­ist álíka vel upp um ára­mótin.“

Þórólfur gerði svo far­ald­ur­inn árið 2020 upp í stuttu máli. „Við getum sagt með sanni að okkur á Íslandi hafi tek­ist nokkuð vel upp að halda far­ald­ur­inn í skefjum þó að veru­lega hafi reynt á okkar inn­viði,“ sagði hann.

5.785 manns greindust með COVID-19 hér á landi á síð­asta ári. Rúmlega 300 þurftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús og þar af hafa tutt­ugu þurft á önd­un­ar­vél að halda. 29 lét­ust vegna sjúk­dóms­ins á Íslandi á árinu 2020.

Þórólfur sagði að nú væri að hefj­ast loka­afli í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Bólu­setn­ing er hafin og tókst vel. Búið er að tryggja bólu­efni fyrir alla lands­menn og vel það en þó er ekki enn ljóst hvenær þeir skammtar munu koma til lands­ins og hversu margir í senn. Fleiri bólu­efni en Pfizer er innan seil­ingar. Í dag er von á mark­aðs­leyfi í Evrópu fyrir bólefni Moderna og von­andi mun dreif­ing­ar­á­ætlun þess liggja fyrir fljót­lega.

„Ég held að við getum verið jákvæð og horft jákvætt fram á veg­inn núna með von um allt þetta bólu­efni,“ sagði Þórólfur. „Ég held að við eigum líka að geta von­ast eftir því að fá jafn­vel bólu­efni fyrr en talið hefur verið til þessa“.

[links]Þórólfur og Alma Möller land­læknir minntu bæði á að enn yrði að halda áfram að sinna sótt­vörnum. Hvenær hægt verði að slaka á muni ráð­ast af því hversu fljótt bólu­efni mun ber­ast til lands­ins.

Nýr reglu­gerð um sótt­varna­að­gerðir er vænt­an­leg 12. jan­úar „og ef ekk­ert óvænt ger­ist með far­ald­ur­inn á næstu dögum verður von­andi hægt að grípa til ein­hverra til­slakanna,“ sagði Þórólfur.

Á fund­inum var hann m.a. spurður út mögu­leika á útgáfu bráða­birgða­leyfis bólu­efna hér á landi, þ.e. áður en Lyfja­stofnun Evrópu hefur gefið sitt græna ljós. Hann minnti á að það væri Lyfja­stofnun Íslands sem hafi heim­ild í lyfja­lögum til að gefa út bráða­birgða­leyfi. En það væri til­gangs­laust nema að sú vissa væri fyrir hendi að við gætum fengið við­kom­andi bólu­efni strax. Með því að gefa út slíkt leyfi væri Lyfja­stofnun að taka ábyrgð á því að meta hvort að bólu­efni væri öruggt eða ekki og að mati Þórólfs hefðum við ekki reynslu hér til að taka slíkar ákvarð­anir. Hann sagði það sitt mat að ekki væri skyn­sam­legt að flýta ferl­inu þar sem eng­inn vissa væri fyrir hendi um að það þýddi að við fengjum bólu­efni fyrr en ella.

Samkvæmt samn­ingi við Pfizer munum við fá 25 þús­und skammta af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins fyrir lok mars en auk þess hefur verið samið við þrjú önnur fyr­ir­tæki og dreif­ing­ar­á­ætl­anir þeirra munu liggja fyrir á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár