Bandaríkjamenn greiddu 10,2 milljarða til fyrirtækja hér á landi í mars og apríl í fyrra

Banda­ríkja­menn eru mik­il­væg­asta mark­aðs­svæði ferða­þjón­ustu á Íslandi og ljóst að áhrifin verða til­finn­an­leg, sam­kvæmt Rann­sókna­setri versl­un­ar­innar.

Banda­ríkja­menn greiddu með kortum sínum í mars og í apríl í fyrra 5,8 og 4,4 millj­arða til inn­lendra fyr­ir­tækja, að flug­sam­göngum und­an­skildum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Rann­sókna­setri versl­un­ar­innar í dag. Þá segir að til­kynn­ing Banda­ríkja­for­seta um að loka á ferða­lög frá Evrópu í 30 daga hafi komið mörgum í opna skjöldu. Banda­ríkja­menn séu mik­il­væg­asta mark­aðs­svæði ferða­þjón­ustu á Íslandi og ljóst að áhrifin verði til­finn­an­leg.

Enn fremur kemur fram að Banda­ríkja­mönnum hafi fækkað nokkuð und­an­farin miss­eri og tekjur af þeim lækkað sam­hliða því. Hluti tekna í ferða­þjón­ustu komi með öðrum leiðum en greiðslu­kortum, en hlut­fall greiðslu­korta sé í kringum 50 pró­sent.

„Ef gert er ráð fyrir sömu þróun tekna af banda­rískum ferða­mönnum og áður­nefndu hlut­falli má ætla að íslensk ferða­þjón­usta verði af 7 til 8 millj­örðum með beinum hætti vegna þeirra sem hefðu komið þann mánuð sem verður lokað. Má þó gera ráð fyrir því að áhrifin verði meiri enda má áætla að aðrar flug­á­ætl­anir muni riðl­ast vegna ferða­banns­ins. Þá má líta svo á að aðgerðir stjórn­valda vest­an­hafs séu ekki til hvatn­ingar fyrir þar­lenda ferða­menn til ferða­laga til Evrópu næstu mán­uði,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kortavelta Kínverja dregst gífurlega saman

Jafn­framt kemur fram hjá Rann­sókna­setr­inu að erlend greiðslu­korta­velta án flug­sam­gangna hafi dreg­ist saman um 8,5 pró­sent í febr­úar á þessu ári og numið 14,1 millj­arði í mán­uð­inum sam­an­borið við 15,4 millj­arða í febr­úar í fyrra.

Korta­velta erlendra ferða­manna til þjón­ustu­flokka á net­inu dróst saman um 4,4 pró­sent á milli ára í febr­úar, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Net­greiðslur ferða­manna séu að stórum hluta til greiðslur fyrir ferðir sem fara á síðar og gefi því vís­bend­ingu um hug ferða­manna til Íslands­ferðar.

Miðað við þessa hóf­legu lækkun megi segja að áhrif vegna COVID-19 hafi ekki verið komin fram af neinum þunga í febr­úar og verði „áhuga­vert að skoða þró­un­ina í fram­hald­inu.“ Sé litið til sama mæli­kvarða, það er korta­veltu þjón­ustu­flokka á net­inu, fyrir Kínverja ein­göngu þá hafi veltan dreg­ist saman um 62 pró­sent, enda veiran fyrr á ferð í Kína en ann­ars staðar.

Þá kemur fram að í stærstu flokkum greiðslu­korta­veltu erlendra ferða­manna, hót­elgist­ingu, ýmis ferða­þjón­usta og verslun hafi verið tölu­verður sam­dráttur milli ára. Mestu muni um sam­drátt í tveimur fyrr­nefndu flokk­unum. Gisti­þjón­usta hafi dreg­ist saman um 10 pró­sent á milli ára og numið 3,2 millj­örðum króna í mán­uð­inum, í krónum talið hafi lækk­unin numið tæpum 389 millj­ónum króna. Í flokknum ýmis ferða­þjón­usta, sem inni­heldur skipu­lagðar ferðir, hafi veltan numið 2,9 millj­örðum króna. Á sama tíma í fyrra hafi veltan numið 3,2 millj­örðum og dreg­ist hlut­falls­lega saman um 11 pró­sent á milli ára í febr­úar.

Verslun erlendra ferða­manna með greiðslu­kortum dróst saman um 5 pró­sent sam­an­borið við fyrra ár og nam 2 millj­örðum í febr­úar, segir í til­kynn­ingu Rann­sókna­set­urs­ins. Dróst verslun saman í öllum und­ir­flokkum versl­unar nema í verslun með gjafa- og minja­gripi sem jókst um 6 pró­sent á milli ára. Dag­vöru­verslun minnk­aði um 3 pró­sent miðað við sama tíma í fyrra og nam 624 millj­ónum króna. Velta í fata­verslun nam 313 millj­ónum króna og dróst saman um 16 pró­sent á milli ára í febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár