Mynd: Bára Huld Beck

Skekkja í kosningakerfi getur ráðið úrslitum um hvaða ríkisstjórn verður mynduð

Mikill stöð­ug­leiki hefur verið í fylgi flestra þeirra flokka sem eiga nú þegar full­trúa á Alþingi síð­ustu mán­uði. Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins hafa dalað en Sós­í­alista­flokk­ur­inn er að bæta við sig fylgi og mælist nú með yfir sex pró­sent stuðn­ing.

Fylgi flokka hreyf­ist lítið á milli kosn­inga­spáa Baldurs Héð­ins­sonar og Kjarnans fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír – Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur – bæta við sig 0,4 pró­sentu­stigum á milli spáa og eru nú með 48,4 pró­sent fylgi.

Rík­is­stjórn byggð á Reykja­vík­ur­mód­el­inu – sam­starfi þeirra fjög­urra flokka sem starfa saman í meiri­hluta í höf­uð­borg lands­ins og næst stærsta stjórn­valdi þess – nýtur nán­ast sama stuðn­ings. Sam­an­lagt fylgi Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar mælist 47,5 pró­sent.

Ef Viðreisn yrði skipt út fyrir Fram­sókn­ar­flokk í slíku sam­starfi, en reynt var að mynda slíka rík­is­stjórn í fyrstu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum sem fram fóru eftir síð­ustu kosn­ingar, hefði sú rík­is­stjórn 48,9 pró­sent stuðn­ing. Af þeim rík­is­stjórnum sem eru lík­legar að geta verið mynd­aðar eins og sakir standa, bæði út frá fylgi og mögu­legum sam­starfsvilja, þá nýtur sú rík­is­stjórn mest fylgis sam­kvæmt kosn­inga­spánni, þó mun­ur­inn sé vel innan allra eðli­legra skekkju­marka.

Misvægi í gild­andi kosn­inga­kerfi hefur þó skilað því í und­an­förnum kosn­ingum að núver­andi stjórn­ar­flokkar hafa fengið fleiri þing­sæti en atkvæða­skipt­ing sagði til um. Til að laga þessa skekkju þarf að fjölga jöfn­un­ar­sætum. Reynt var að gera það með fram­lagn­ingu Pírata um að sex kjör­dæma­kjörnir þing­menn yrðu í öllum kjör­dæmum en að jöfn­un­ar­menn­irnir yrðu 27. Það frum­varp náði ekki í gegn og því eru líkur á að ein­hverjir flokkar fái fleiri þing­menn en þeir eigi að fá í kosn­ing­unum eftir rúmar fimm vikur, og aðrir færri en atkvæða­magn þeirra segir til um.

Miðað við núver­andi stöðu mála er ekki ólík­legt að skekkjan geti ráðið úrslitum um hvaða rík­is­stjórn verði mynduð eftir kosn­ingar.

Stöðugleiki í fylgi gæti leitt til óstöðugleika í stjórnmálum

Gengi ann­arra flokka en þeirra sem hafa verið nefndir hér að ofan getur ráðið miklu um hvernig leikar fara, jafn­vel þó þeir séu ólík­legir til að vera kandídatar í rík­is­stjórn. Sós­í­alista­flokkur Íslands er sá flokkur sem hefur tekið til sín mest fylgi á kjör­tíma­bil­inu og mælist nú með 6,1 pró­sent stuðn­ing, og mælist þar með í fyrsta sinn yfir sex pró­sent múr­num í kosn­ings­pánni. Hann er að upp­lifa fylg­is­aukn­ingu í kjöl­far þess að flokk­ur­inn kynnti fram­boðs­lista sína og hefur verið allra flokka dug­leg­astur að reka fjöl­breytta kosn­inga­bar­áttu í netheimum fram til þessa, þrátt fyrir að vera sá seini sem er að mæl­ast með eitt­hvað fylgi sem nýtur ekki hárra rík­is­styrkja.

Það er aðeins minna en Mið­flokk­ur­inn, sem mælist með 6,6 pró­sent en tölu­vert meira en Flokkur fólks­ins, sem mælist með 4,4 pró­sent, þrátt fyrir að vera sá flokkur sem aug­lýsir mest allra flokka um þessar mundir. Báðir þessir flokkar hafa verið að tapa fylgi und­an­farnar vikur og mán­uði.

Nái Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins manni inn á þing, sem er alls ekki ósenni­legt, mun það lík­lega hafa umtals­verð áhrif á það hvernig þing­manna­fjöld­inn skipt­ist.

Athygl­is­vert er að skoða þróun á fylgi ann­arra flokk­anna frá því í apríl og fram til dags­ins í dag. Þar sést að litlar breyt­ingar hafa orðið á fylgi flestra þeirra. Mikill stöð­ug­leiki virð­ist vera í fylgi flokka, sem gæti leitt af sér óstöð­ug­leika í stjórn­mál­unum í heild, í ljósi þess að erfitt gæti orðið að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur á þessu tíma­bili farið úr því að mæl­ast með 25,8 pró­sent fylgi í að vera nú með 24 pró­sent. Vinstri græn hafa bætt við sig svip­uðu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað á því tíma­bili, eða 1,4 pró­sentu­stigi, og mæl­ast með 13,5 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur hins vegar í stað með 10,9 pró­sent fylgi, sem er nán­ast nákvæm­lega það sama og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017.

Píratar og Sam­fylk­ing hafa skipt um stöðu sem stærsti flokk­ur­inn á því sem stundum er kallað frjáls­lynda miðja íslenskra stjórn­mála. Í apríl voru Píratar að mæl­ast með ell­efu pró­sent fylgi en Sam­fylk­ingin með 12,6 pró­sent.

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, mun leiða lista hans í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, mun leiða lista hans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Nú eru Píratar með sama fylgi og Sam­fylk­ingin hafði þá en hún hefur dalað um 0,7 pró­sentu­stig. Þriðja aflið á þess­ari frjáls­lyndu miðju, Viðreisn, stendur nán­ast í stað á tíma­bil­inu og mælist með 9,5 pró­sent fylgi.

Breytingar á lokasprettinum höfðu ráðandi áhrif

Nið­ur­staða kosn­inga er sann­ar­lega ekki alltaf í takt við kann­anir. Daginn fyrir þing­kosn­ing­arnar 2017 stefndi allt í fjög­urra flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri á Íslandi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum kosn­inga­spár­innar. Sam­an­lagt fylgi Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist sam­an­lagt um 35 pró­sent sam­kvæmt síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, sem byggði á gerðum skoð­ana­könn­unum dag­anna á undan, og flokk­arnir tveir virt­ust geta valið úr tvo af þremur öðrum flokkum: Pírötum, Fram­sókn­ar­flokki eða Viðreisn, til að mynda rík­is­stjórn sem væri með 34 til 35 þing­menn.

Kappræður milli forsvarsmanna allra framboða sem mældust inni fóru fram daginn fyrir kosningarnar 2017.
Kapp­ræður milli for­svars­manna allra fram­boða sem mæld­ust inni fóru fram dag­inn fyrir kosn­ing­arnar 2017.

Þegar talið var upp úr köss­unum dag­inn eftir hafði staðan breyst umtals­vert. Vinstri græn og Sam­fylk­ing náðu ekki sam­an­lögðu fylgi yfir 30 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk aðeins meira en hann hafði mælst með (síð­asta kosn­inga­spáin sagði hann vera með 23,7 pró­sent fylgi en það reynd­ist vera 25,3 pró­sent) en sú aukn­ing var nán­ast innan skekkju­marka. Mestu skipti að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk mun fleiri atkvæði en kann­anir höfðu sýnt (mæld­ist með 7,5 pró­sent en fékk 10,7 pró­sent) og Flokkur fólks­ins, sem hafði varla mælst inni í kosn­inga­bar­átt­unni náði að bæta vel við sig á loka­sprett­inum, aðal­lega vegna frammi­stöðu flokks­for­manns­ins Ingu Sæland í sjón­varp­s­kapp­ræðum, og náði inn fjórum þing­mönnum.

Mjög skyndi­lega blasti við allt önnur staða en kann­anir höfðu sýnt nær alla kosn­inga­bar­átt­una. En var hægt að mynda fjög­urra flokka félags­hyggju­stjórn Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks og Pírata en hún myndi hafa minnsta mögu­lega meiri­hluta, 32 þing­menn.

For­víg­is­menn þess­ara flokka hitt­ust á heim­ili Sigurðar Inga Jóhanns­sonar í kjöl­far kosn­ing­anna en þeim var slitið 6. nóv­em­ber af Fram­sókn­ar­flokknum, sem gaf þá skýr­ingu að meiri­hlut­inn væri of naumur. Í kjöl­farið mynd­uðu Vinstri græn og Framsókn rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. Það er almenn skoðun innan þeirra flokka sem tóku þátt í við­ræð­unum heima hjá Sigurði Inga, en röt­uðu ekki í rík­is­stjórn, að eftir á að hyggja hafi hugur ekki fylgt máli hjá Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki í þeim. Einn kall­aði þær „leik­rit“ sem sett var upp til að búa til rétt­læt­ingu fyrir stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. júlí-15. ágúst (43,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júní-28. júlí (vægi 22,5 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 26. júlí (11,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 15-23. júlí (vægi 13,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 24. júní - 6. júlí (vægi 9,7 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið undanfarið ár