„Mjög lágt hlutfall“ bólusettra sýkst af veirunni í Danmörku

Af rúm­lega 1,6 milljón íbúum Dan­merkur sem voru full­bólu­settir í vetur og vor sýkt­ust aðeins rúm­lega 1.200 af kór­ónu­veirunni. Rann­sóknin var gerð áður en Delta-afbrigðið fór að breið­ast út og hlut­fall þeirra sem sýkj­ast kann því að hækka á næst­unni.

Bóluefni veita mjög góða vörn gegn COVID-19, er nið­ur­staða rann­sóknar dönsku sótt­varna­stofn­un­ar­innar, Statens Serum Institut. Á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu, frá 27. des­em­ber í fyrra og til 30. júní í ár var ríf­lega 1,6 milljón íbúa Dan­merkur full­bólu­sett. Staðfest er að 1.233 af þeim sýkt­ust af COVID-19 eða um 0,08 pró­sent. „Það er mjög lágt hlut­fall og sýnir hversu góða vörn bólu­efnin veita,“ segir Troels Lillebæk, pró­fessor og deild­ar­stjóri við stofn­un­ina. Rann­sóknin sýnir enn­fremur að þeir fáu sem sýk­ist fái mild­ari ein­kenni en óbólu­settir. Mjög fágætt er, að sögn Lillebæk, að bólu­settir sem sýk­ist þurfi á sjúkra­húsinn­lögn að halda.

Camilla Foged, pró­fessor í ónæm­is­fræði við Háskól­ann í Kaup­manna­höfn, segir í við­tali við Danska rík­is­út­varpið að nið­ur­stöð­urnar séu gleði­legar. „Auðvitað vill maður alltaf koma í veg fyrir að nokkur veik­ist,“ segir hún, en að alltaf megi eiga von á að ein­hverjir sýk­ist, þrátt fyrir að vera bólu­settir. Rann­sóknir sýni að bólu­efni t.d. Pfizer og Moderna veiti um 95 pró­sent vörn.

Hún segir að fólk verði að fara var­lega milli fyrstu og ann­arrar sprautu og minnir á að full virkni bólu­efna sé ekki að vænta fyrr en tveimur vikum eftir seinni sprautu. Hún beinir orðum sínum sér­stak­lega til ungs fólks í þessu sam­bandi.

Rann­sókn­ar­nið­ur­stöður Sótt­varna­stofn­unar Dan­merkur eru frá tíma­bili þar sem Alfa-afbrigði veirunnar, sem fyrst var kennt við Bretland, var alls­ráð­andi í land­inu. Delta-afbrigðið, sem fyrst kom upp á Indlandi að því er talið er, hefur síðan þá breiðst hratt út. Og það er enn meira smit­andi en Alfa-afbrigðið.

Foged segir rann­sóknir sem þegar hafi verið gerðar sýni að bólu­efni virki ekki eins vel gegn Delta-afbrigð­inu og öðrum. Vörnin sé talin rétt undir 90 pró­sentum. Svo kunni að fara að fleiri bólu­settir eigi því eftir að sýkj­ast af því afbrigði. Engu að síður er hættan á alvar­legum veik­indum mun minni hjá bólu­settum en óbólu­settum.

Síðustu þrjár vikur hefur Delta-afbrigðið greinst í auknum mæli í Danmörku. Í síð­ustu viku greindust yfir 1.000 slík til­felli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár