57 ný innanlandssmit

Í gær greindust 57 með COVID-19 hér á landi. Tæplega helm­ingur var í sótt­kví við grein­ingu. Nýgengi inn­an­lands­smita er því komið upp í 83,2.

324 eru með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi og í ein­angrun. Í gær greindust 57 ný inn­an­lands­smit. Fjórtán daga nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið upp í 83,2.

Tæplega helm­ingur þeirra sem greindust með COVID-19 í gær voru þegar í sótt­kví. Í sótt­kví eru 2.410 manns og í svo­kall­aðri skimun­ar­sótt­kví er 1.951.

[adspot]

Tveir liggja enn á sjúkra­húsi með COVID-19, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem finna má á COVID.is.

Í gær voru tekin 5.165 sýni, þar af 640 á landa­mær­unum.

Lang­flestir þeirra sem eru með COVID-19 og í ein­angrun eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða 291 ein­stak­lingur. Þar eru líka lang­flestir í sótt­kví eða 2.077. Þegar litið er til ald­urs þeirra sem eru með virkt smit eru flestir í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 103. Tæplega fimm­tíu manns sem eru sex­tíu ára og eldri eru með sjúk­dóm­inn.

[links]Sótt­varna­læknir sagði í gær að flest smitin sem greinst hefðu síð­ustu daga mætti rekja til nokk­urra vín­veit­inga­staða í mið­borg Reykja­víkur. Af þeim sökum eru slíkir staðir nú lok­aðir tíma­bundið.

Veiru­af­brigðið sem nú er tekið að dreifa úr sér má að hans sögn rekja til franskra ferða­manna sem komu hingað til lands fyrir miðjan ágúst. Á upp­lýs­inga­fundi gær­dags­ins kom fram að erf­ið­lega hafi gengið að fá þá til að hlíta sótt­varna­til­mælum á meðan þeir dvöldu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár