Nektin er jafnt andleg sem líkamleg

Tómas Lemarquis leikur eitt aðal­hlutverkið í Snertu mig ekki, Touch Me Not, rúmensku myndinni sem vann Gull­björninn á Berlín í ár.

Miðaldra kona sem á erfitt með nánd, transkona með áhuga á klassískri tónlist, karlhóra, kynlífs­fræðingur, fjöl­fatlaður maður og sköllóttur maður frá Íslandi. Þetta fólk á það helst sameiginlegt að við fáum að sjá það í allri sinni nekt í rúmensku myndinni Touch Me Not, sem vann Gull­björninn í Berlín í febrúar.

Þessi nekt er jafnt andleg sem og líkamleg – hér er líkaminn og allt sem honum tilheyrir umræðu­efnið. Það væri til lítils að þylja upp sögu­þráðinn, enda er hann hálfgert auka­atriði í þessari tilrauna­kenndu mynd sem dansar einhvers staðar á mörkum heimilda­myndar og leikinnar. Hún er miklu frekar um samband okkar við eigin líkama og þrár honum tengdar – sem maður áttar sig betur á því við áhorfið að er mögulega eitt helsta tabú okkar tíma, en kannski ekki endilega á þann hátt sem við höldum. Nektin er sjaldnast klám­fengin, jafnvel þótt við heim­sækjum BDSM-klúbb í miðri mynd og kynlíf sé sannarlega rætt og sýnt – og það er líka eitthvað nánast bernskt sakleysi í myndinni í hversu opinskátt persónur ræða eigin líkama.

Umdeild myndRúmenska kvik­myndin Touch Me Not vann Gullpálmann í Berlín í febr­úar. Myndin er væg­ast sagt umdeild og voru við­brögð margra undrun og reiði.

Það er líka óhætt að fullyrða að þetta er umdeild sigurmynd. Ófáir gengu út af blaðamanna­sýningunni og viðbrögð margra gagn­rýnenda voru undrun og reiði á meðan aðrir gagn­rýnendur fögnuðu hugrekki dómnefndar. Þegar ég hitti Tómas Lemarquis, einn aðal­leikara myndarinnar, daginn eftir frum­sýningu var hún ekki enn búin að vinna Gull­björninn en var strax orðin verulega umdeild.

„Myndin fær fólk til að íhuga eigin nánd og hvaða mörk þau þola“

„Það er bara jákvætt, ég lít alls ekki á það sem eitthvað neikvætt,“ segir Tómas um viðbrögðin. „Svona mynd getur ekki höfðað til allra, sumir munu skilja hana og hún mun sjokkera aðra. En það er líka það sem við viljum, að fólk bregðist við. Myndin fær fólk til að íhuga eigin nánd og hvaða mörk þau þola.“

Hann bjó lengi í Berlín en er núna fluttur heim – en gleðst yfir því að myndin hafi komist inn á jafn stóra hátíð. „Það er stórkostlegt af því þetta er svo erfið mynd, sjóðandi pönnukaka sem ekkert margir þorðu að snerta til að byrja með.“

Hugrekki að stökkva í hyldýpið

Þegar ég horfði á myndina hugsaði ég fyrst að þetta væri mynd um líkama – og svo að þetta væri mynd um orð. En líkamar okkar eru einmitt eitthvað sem við eigum stundum erfitt að koma orðum að, og því er dálítið eins og mynda­vélin sé tækið sem notað er til að ná sáttum á milli líkama og hugar. Þetta er að vissu leyti undir­strikað með því hvernig leik­stýran Adina Pintilie birtist á mónitor í miðri mynd, líkams­laus, og spyr okkur: „Af hverju hefurðu aldrei spurt mig hvað þessi mynd sé um? Og af hverju hef ég aldrei sagt þér það?“ En hvernig mynd er þetta?

„Það þurfti rosalegt hugrekki, hjá okkur öllum, að þora að stökkva í þetta hyldýpi og þora að sýna þessa viðkvæmni“

„Það var enginn texti skrifaður, þetta var allt impróvíserað. Við tókum allar senur upp nokkrum sinnum,“ segir Tómas og heldur áfram. „Við vissum ekkert hvert við vorum að fara, en við vissum að hún hafði ákveðna sýn og það voru ákveðnir hlutir sem hún vildi fjalla um, enda er myndin ekki beint klassísk saga, hún fjallar meira um tilfinningar, ekki vits­munaleg nálgun heldur frekar líkamleg og tilfinningaleg. Og það þurfti rosalegt hugrekki, hjá okkur öllum, að þora að stökkva í þetta hyldýpi og þora að sýna þessa viðkvæmni, kafa inn í þessar tilfinningar. Það var mjög þakklátt fyrir mig að fá að sýna þessa hlið og það hefði aldrei verið hægt nema maður treysti henni, að hún væri ekki að misnota mann í einhverju tilfinninga­klámi. Þetta var alltaf gert með ítrustu virðingu. Maður fann fyrir því, virðingu gagnvart öllum.“

Christian Fjöl­fatl­aður maður með skakka útlimi, skakka kjálka og útstæðar tennur ræðir við Tómas um lík­ama sinn og leggur áherslu á augu sín og typpi.

Sem dæmi um hvernig talað er um líkama í myndinni má nefna samræður Tómasar og Christians, en sá síðarnefndi er fjöl­fatlaður, með skakka útlimi, skakka kjálka og útstæðar tennur. En aðspurður um eigin líkama leggur hann áherslu á að hann sé með falleg augu og myndarlegt typpi. Á móti rifjar Tómas upp þegar hann missti hárið þrettán ára og hvaða áhrif það hafði á hann. En hversu mikið er af honum sjálfum í myndinni?

„Það skiptir í raun ekki máli. Sem galdra­maður ertu ekki að segja hvernig þú tekur kanínuna úr hattinum. Karakterinn skiptir máli, ég er auka­atriðið. Myndin snýst ekkert um að ég sé Tómas – við höldum okkar nöfnum, en þar set ég mörkin með hversu mikið mig langar að bjóða blaða­manninum inn til mín.“

Laura Benson, ein mótleik­kona Tómasar, tók sérstak­lega fram á blaðamanna­fundi daginn áður að hún ætti ekkert sameiginlegt með sinni persónu á meðan aðrir voru óræðari í svörum. En vissi Tómas að hversu miklu leyti mótleik­ararnir væru í karakter?

„Ég hef engan áhuga á því að vita um þeirra helstu leyndarmál, ekkert frekar en maður hafi áhuga á gulu pressunni. Ég er bara í mómentinu með þeim í þessum aðstæðum að uppgötva sannleika senunnar, mér er nokkuð sama hvort þetta sé hennar saga eða ekki, það kemur mér ekkert við, það er hennar persónu­lega val. Ég hef ekki þessa þörf fyrir að þefa af óhreina tauinu hjá öllum.“

En ef slúður­pressan er undan­skilin þá eru flestir blaðamenn of kurteisir til þess að spyrja nærgöngulla spurninga um líkama fólks, hvort sem það er feitt, grannt eða sköllótt. En er þetta misskilin tillitssemi, þurfum við mögulega að ræða þetta til að losa um tabúin?

„Ég er ekki sköllóttur leikari, ég er bara leikari, ég vil ekki takmarka mig við það“

„Það fer auðvitað bara eftir því hvort það sé gert af virðingu eða á hvaða hátt það er gert og svoleiðis. Ég er ekkert að fela það að ég sé hárlaus. Mér finnst það líka mikilvægt að ég er ekki sköllóttur leikari, ég er bara leikari, ég vil ekki takmarka mig við það.“

Það er um margt óvenjuleg upplifun að horfa á mynd sem snýst jafnmikið um ákveðnar grunn­hugmyndir um sjálfið og líkamann, þetta er mynd sem væri stundum gott að geta sett á pásu til þess að hugleiða sumar þessar hugmyndir betur. Tómas segir mér að þau hafi meðal annars lesið mikið um efnið, bækur eins og Arousal, „sem fjallar um blæti í kynlífi og hvernig það kemur úr frum­bernsku, sem var eitthvað sem við fjölluðum um. Það fer fyrir brjóstið á mörgum og mörgum finnst það erfitt því það er verið að fara inn í þetta tabú. Ég get alveg skilið það. En þá er það líka spegill fyrir áhorf­andann, af hverju er þetta óþægilegt? Það býður upp á þá spurningu.“

Adina Leik­stjór­inn hafði mjög skýra sýn á það hvað hún vildi og nálg­að­ist efni­við­inn af mik­illi virð­ingu og nær­gætni. Margt af því sem Tómasi fannst erf­ið­ast og per­sónu­leg­ast var klippt út.

Baggarnir sem við fæðumst með

En hvernig var undir­búningnum háttað fyrir svona óvenju­lega mynd?

„Þessi mynd snerist bara um að sleppa tökunum og ekki hugsa fyrirfram um neitt, bara mæta eins og opin bók og leyfa hlutunum að gerast. En myndin sjálf, hún er bara toppurinn af ísjakanum af öllu því efni sem við tókum upp. Margt af því erfiðasta er ekki í myndinni, það sem mér fannst erfiðast og persónulegast var klippt út. Hún [Adina leikstýra] er með ákveðna hugmynd sem hún er að reyna að miðla og þetta var hennar klipp. Þetta er líka tengt henni sjálfri og hún er í myndinni og við erum spegill hennar. Þannig að sumt var of persónulegt og of langt frá því að spegla hennar sýn.“

Að sumu leyti virkar persóna leik­stýrunnar Adinu bæði eins og vísinda­maður og heilari, og kallast jafnvel á við stóra bróður Orwells. Hjá Adinu er kvik­myndavélin nánast eins og meðferðar­úrræði – en myndrænt erum við minnt á að hún getur líka verið eftirlitstæki.

„Hennar tengsl við sína móður og þunglyndi og þessi bæling ...“ 

Á blaðamanna­fundinum ræddi hún um hvernig upphaflegar hugmyndir hennar um líkama hefðu allar reynst rangar – og þannig væri myndin tilraun til þess að endur­uppgötva hvað nánd snerist um og því hefði hún leitað uppi fólk sem væri álíka þenkjandi og tilbúið í þennan leiðangur.

En þótt leik­hópurinn sé fjöl­þjóðlegur og talið á ensku þá velti ég fyrir mér hvort þessi mynd sé mögulega rúmenskari en virðist, að hversu miklu leyti er leik­stýran að birta okkur mynd af rúmensku samfélagi, samfélagi sem hefur átt erfitt með að uppræta landlæga spillingu Ceaucescu-áranna?

„Algjör­lega,“ svarar Tómas þessum hugleiðingum mínum. „Hennar tengsl við sína móður og þunglyndi og þessi bæling ... það eru hlutir sem er verið að fjalla um sem koma rosalega mikið þaðan og hafa erfst kynslóð fram að kynslóð og það er erfitt að klippa á þennan streng. En við tölum öll um mæður okkar í myndinni, án þess að það sé endilega akkúrat rétt. En þetta snýst líka bara um hvaða bagga við fæðumst með og hvernig náum við að frelsa okkur undan þeim?“

Líkfundarmálið fyrir austan

Tómas býr bæði á Íslandi og í Los Angeles þessi misserin og vinnur á báðum stöðum. En hvað er næst á dagskrá?

„Ég kláraði síðasta vetur mynd sem heitir Undir hala­stjörnu og kemur núna í haust.“

Lík­fund­ar­máliðNæsta verk­efni á dag­skrá er mynd sem Tómas kláraði síð­asta vetur og heitir Undir hala­stjörnu og kemur út í haust. Myndin fjallar um lík­fund­ar­málið á Nes­kaups­stað.

Myndin fjallar um líkfundar­málið svokallaða í Neskaupstað og þótt persóna Tómasar sé byggð á raun­verulegri persónu þá er hann ekki að reyna að líkja eftir honum. „Ég bý bara til annan karakter, ég lít allt öðruvísi út og er ekki að reyna að breyta því neitt. En ég fór í rannsóknar­vinnu, bæði með fíklum og fyrr­verandi fíklum, og sá þar margt ógnvekjandi.“

En hvernig vinna þeir úr sögunni? „Sagan byrjar í Eistlandi og svo fylgir maður sögunni til enda fyrir austan. Þetta er ekki um eiturlyf sem slík heldur um þessa tragedíu sem þessir karakterar lenda í,“ en Litháarnir í raun­verulega málinu eru nú orðnir eistneskir og að sögn Tómasar er áherslan mjög jöfn á íslenskar og eistneskar persónur sögunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár