Elín Hirst: Hanna Birna hætti sem varaformaður og setjist ekki á þing

Elín Hirst, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist ekki telja ráð­legt að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, setj­ist á þing að nýju. Hún seg­ist enn­fremur telja það mik­il­vægt að Hanna Birna láti af emb­ætti vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Elín setti inn nú í morgun í tengslum við álit umboðs­manns Alþingis um leka­málið.

„Ég tel að Hanna Birna hafi gert afdrifa­rík mis­tök,“ segir Elín í færsl­unni, en veiga­mestu mis­tökin hafi verið afskipti Hönnu Birnu af rann­sókn máls­ins. Vegna þessa sé ekki ráð­legt að Hanna Birna snúi aftur. „En mik­il­væg­ast er að stjórn­mála- og ráða­menn lands­ins dragi lær­dóm af mál­inu og axli ábyrgð á mis­tökum sem þessum gagn­vart umbjóð­endum sínum, almenn­ingi í land­inu.“




Elín er fyrsti þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem tjáir sig í þessa veru. Í gær tjáði for­maður flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, sig í fyrsta skipti eftir álit umboðs­manns Alþingis. Hann sagð­ist „algjör­lega“ telja að Hanna Birna ætti aft­ur­kvæmt á þing, það væri í hennar höndum og traust þing­flokks­ins væri „alveg óskorað“. Hann sagði jafn­framt að engum blöðum væri um það að flétta að Hanna Birna hefði borið skaða af leka­mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár