Landspítalinn: Ákvörðun ljósmæðra „mun skapa mikinn vanda“

Land­spít­al­inn og aðrar heil­brigð­is­stofn­anir eiga að þjón­usta sæng­ur­konur og börn þeirra í stað ljós­mæðra, sam­kvæmt ákvörðun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur falið Land­spít­ala og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum að sinna þjón­ustu við sæng­ur­konur og börn þeirra sem verið hefur í höndum ljós­mæðra með samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu á vef Land­spít­al­ans.

[links]Þar segir að spít­al­inn telji að þjón­ustan hafi gengið vel eins og hún var úr garði gerð en að Land­spít­ali muni sinna verk­efn­inu eins og unnt er þar til deilan leys­ist. „Þetta mun skapa mik­inn vanda sem bæt­ist við þá alvar­legu stöðu sem blasir við vegna kjara­deilu ljós­mæðra við rík­is­valdið. Land­spít­ali er ekki aðili að þessum samn­ingum og hvetur til lausnar máls­ins hið fyrsta.“

Fjölmargar ljósmæður leggja niður störf

Kjarninn greindi frá því í morgun að í það minnsta 60 ljós­mæður ætl­uðu leggja niður störf í dag og að þær ætli ekki að taka til starfa á nýjan leik, fyrr en samn­ingur við Sjúkra­trygg­ingar Íslands um greiðslur til þeirra hafa verið und­ir­rit­aðar og stað­fest­ar.

Nú er hins vegar ljóst að allar 95 ljós­mæður sem sinna heima­þjón­ustu munu leggja niður störf.

[adspot]Eins og kunn­ugt er, hafa kjara­við­ræður ljós­mæðra og rík­is­ins staðið yfir mán­uðum saman án þess að sam­komu­lag haf náðst. Fundað hefur verið hjá Rík­is­sátta­semj­ara en það hefur engum árangri skil­að.

Þá hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, sagt að kröf­urnar sem ljós­mæður hafa komið fram með, séu óað­gengi­legar þar sem þær myndu hafa slæm áhrif á vinnu­mark­að­inn í heild sinni.

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, heil­brigð­is­ráð­herra, sagði í Morg­un­blað­inu í dag, að aðgerðir ljós­mæðra í heima­þjón­ustu komi henni á óvart.

Aðspurð um ástæðu þess, að til­bú­inn samn­ingur Sjúkra­trygg­inga við ljós­mæður í heima­þjón­ustu hafi legið svo lengi óund­ir­rit­aður á hennar borði, sagði Svan­dís að bera þurfi til­tekna þætti samn­ings­ins undir Land­spít­al­ann og Fjórð­ungs­sjúkra­húsið á Akur­eyri, áður en hægt sé að ganga end­an­lega frá hon­um.

Munu dvelja lengur á spítalanum

Heima­þjón­ustan sem um ræðir er í boði fyrir konur sem hafa nýverið átt barn eða eru að fara að eign­ast slíkt. Misjafnt er hversu fljótt konur fara heim af fæð­ing­ar­deild­inni eftir fæð­ingu en þá tekur heima­þjón­ustan í flestum til­fellum við þjón­ustu­hlut­verki við mæð­urnar.

Eftirlit hennar felst meðal ann­ars í því að fylgj­ast með ástandi móður og barns og hvernig til tekst með brjósta­gjöf. Mis­mun­andi er eftir konum og börnum hversu mikil þjón­ustan er. Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­ala, segir að konur muni dvelja lengur á spít­al­anum eftir fæð­ingu ef heima­þjón­ustan sé ekki lengur í boði. Síðan verði gert ráð fyrir því að heilsu­gæslu­stöðvar taki við eft­ir­lits- og þjón­ustu­hlut­verk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár