Vilja að lögregla leggi ríkari áherslu á að rannsaka ólöglegt niðurhal

„Í hvað viljum við for­gangs­raða okkar pen­ingum?“ spyr borg­ar­full­trúi Pírata.

Vilja að lögregla leggi ríkari áherslu á að rannsaka ólöglegt niðurhal

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra vill efla tölvu­brota­deild lög­regl­unnar svo koma megi böndum á ólög­legt nið­ur­hal höf­und­ar­rétt­ar­var­ins efnis.

Áform þess efnis voru kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær en að því er fram kemur á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins stendur til að fjölga stöðu­gildum og bæta tækni­menntun lög­reglu­manna sem sinna tölvu­glæpum. Er þetta í sam­ræmi við til­lögu nefndar sem starf­aði undir for­mennsku Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hafði það hlut­verk að gera úttekt á umfangi ólög­legs nið­ur­hals á net­inu á höf­und­ar­rétt­ar­vörðu efni hér á landi og hvort íslensk lagaum­gjörð veitti slíku efni nægj­an­lega vernd.

Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, gagn­rýnir for­gangs­röð­un­ina sem þarna birt­ist. „Niðurhal á höf­unda­vörðu efni á að setja í for­gang. Ég leyfi mér að setja stórt spurn­inga­merki við slíka for­gangs­röðun. Meg­in­hlut­verk lög­gæsl­unnar á að vera að vernda fólk gagn­vart skaða. Á net­inu er stunduð ýmis konar hegðun sem sann­ar­lega getur verið skað­leg fólki - má þar nefna barn­a­níð og staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi. Deiling á afþrey­ing­ar­efni hefur hins vegar engin bein skað­leg áhrif á nokkra mann­eskju,“ skrifar hann á Facebook. 

Þeim til­lögum sem eru á for­ræði inn­an­rík­is­ráðu­neytis er lýst með eft­ir­far­andi hætti í til­kynn­ingu á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins: 

Skipu­lags­breyt­ing við rann­sókn og sak­sókn á málum af þessu tagi. Lagt var til að stofnuð yrði sér­stök net­brota­deild lög­reglu þar sem brot gegn rétt­höfum höf­und­ar­rétt­ar­var­ins efnis njóti for­gangs.

Skylda fjar­skipta­fyr­ir­tæki til þess að upp­lýsa not­endur vef­svæða skrá­ar­skipti­for­rita um hugs­an­leg lög­brot (við­vörun í "pop-up glugga").

Sett verði lög um land­s­lénið .IS og rekstr­ar­að­ila land­s­léns­ins (ISNIC), þar sem reglur yrðu settar um notkun íslenskra léna en engar reglur gilda nú um land­s­lénið.

Fram kom í kynn­ingu inn­an­ríks­ráð­herra á rík­is­stjórn­ar­fund­inum í gær að sam­kvæmt nýrri skýrslu, sem unnin var fyrir Félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­gerð um umsvif sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aðar á Íslandi, nemi tap inn­lendra höf­und­ar­rétt­hafa vegna ólög­legs nið­ur­hals rúmum millj­arði króna á ári. Með stofnun sér­stakrar net­brota­deildar þar sem brot gegn rétt­höfum nytu for­gangs yrðu hags­munir þeirra tryggðir í mun rík­ara mæli en nú er gert.

Skiptar skoð­anir eru um áformin á sam­fé­lags­miðlum.

Á Pírata­spjall­inu líst fólki hreint ekki á blik­una. „Lög­reglan er í mann­eklu en við ætlum endi­lega að fara að elta fólk því það sótti sér efni sem er því ekki aðgengi­legt hér á landi. Vændi, fíkni­efna­við­skipti og skipu­lagn­ing, ein­elti og við­bjóður og það besta sem Nordal vill gera fyrst hún ætlar yfir höfuð að vera að njósna um fólk á net­inu er að elt­ast við simp­sons og fri­ends þætti!“ skrifar einn þeirra sem leggja orð í belg.

Halldór Auðar Svansson tjáir sig um málið: 

Og áformin koma femínist­anum Hildi Lilli­endahl Vigg­ós­dóttur á óvart. Hún hélt að net­brota­deildin myndi leggja áherslu á að rann­saka hat­urs­glæpi og ofbeldi á inter­net­inu:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár