Viðræðunum slitið: Engin ný hægri stjórn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi ekki mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi og við­ræðum við Viðreisn og Bjarta fram­tíð var slitið.

Viðræðunum slitið: Engin ný hægri stjórn

Viðræðum um nýja hægri stjórn Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks hefur nú verið slitið. Líklegt er að stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið fær­ist nú til Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns VG.

Boðað hefur verið til fundar á Bessa­stöðum klukkan fimm í dag, þar sem Bjarni Bene­dikts­son hittir Guðna Th. Jóhann­es­son for­seta. 

Óttarr útskýrir á Facebook að Björt fram­tíð hafi staðið fast á prinsipum í við­ræð­unum.

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, segir á Facebooksíðu sinni að Bjarni Bene­dikts­son hafi slitið við­ræð­unum: „Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum DAC var slitið af Bjarna Bene­dikts­syni fyrr í dag. Við fórum í þessar við­ræður bjart­sýn og með áherslu á ákveðin mál­efni. Því miður reynd­ist bilið, sér­stak­lega í sjáv­ar­út­vegs­málum, óbrú­an­legt að sinni.“

Bjarni vill breiðari skírskotun

Í til­kynn­ingu frá fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna kemur ekki fram hvar ágrein­ing­ur­inn lægi: „Fundir flokk­anna að und­an­förnu hafa leitt í ljós góðan sam­hljóm um ýmis mál, en áherslumun um útfærslu ann­arra, enda stefna flokk­anna ólík á ýmsum sviðum,“ segir þar.

Haft er eftir Bjarna í frétta­til­kynn­ing­unni að mál­efna­grunn­ur­inn hafi ekki stað­ist. „Ég tel að sam­töl und­an­far­inna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvar­legt að leggja af stað með þann mál­efna­grunn sem um er rætt og nauman meiri­hluta inn í kjör­tíma­bilið.  Margt segir mér að aðstæður kalli á  rík­is­stjórn með breið­ari skírskotun og sterk­ari meiri­hluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið. Ég úti­loka ekk­ert fyr­ir­fram í þeim efnum.“

Vildu raða í ráðherraembætti

Samkvæmt fréttum Kjarnans og DV stóð Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gegn því að bjóða upp afla­heim­ildir á mark­aði, eða svo­kall­aðri upp­boðs­leið. Bæði Viðreisn og Björt fram­tíð höfðu á stefnu­skrá sinni að fara mark­aðs­leið með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið.

Þá kemur fram hjá DV að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi strax viljað raða í ráð­herra­emb­ætti.

Björt Ólafs­dóttir sagði í sam­tali við Stundina í gær­kvöldi að ótíma­bært væri að ræða ráð­herra­emb­ætti.

„Það er ekki komið á það stig. Það er ekki tíma­bært að ræða fyrr en öll mál­efni eru „in the clear“. Og við erum ekki komin þangað. Ég veit ekki einu sinni hvort ég vilji verða ráð­herra. Við erum lít­ill þing­flokkur. Kannski væri Óttarr bara mjög góður for­seti þings­ins. Eða hvað. Þetta er bara svo ótíma­bært hjá okkur.“ 

Sjávarútvegsmálin stóðu í veginum

„Tekið verði upp mark­aðstengt auð­linda­gjald í sjáv­ar­út­vegi. Íslend­ingar beiti sér af afli gegn mengun hafs­ins varð­andi þrá­virk efni og aðra meng­un­ar­valda,“ segir í stefnu Við­reisnar.

Björt fram­tíð styður einnig mark­aðs­leið. „Við viljum byggja á afla­marks­kerfi, en nýta mark­að­inn til að greinin greiði sann­gjarnt gjald fyrir aðgengið að mið­unum. Um leið geta nýir aðilar haslað sér völl án þess að kaupa veiði­heim­ildir af öðrum í grein­inni, í sam­ræmi við álit mann­rétt­inda­nefndar SÞ.“

Sjálfstæðisflokkur viðheldur kvótakerfinu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið and­vígur upp­boðs­leið­inni og vill að núver­andi eig­endur kvót­ans haldi honum, nema þeir kjósi að áfram­selja hann. Aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, nýkjörni þing­mað­ur­inn Teitur Björn Ein­ars­son, er einn með­lima mál­efna­hóps Sjálf­stæð­is­flokks­ins í við­ræð­unum. Hann skrif­aði meðal ann­ars grein í ágúst þar sem hann gagn­rýndi upp­boðs­leið­ina út frá því að hún gæti raskað byggð í land­inu. 

Í stjórn­mála­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins er skýrt kveðið á um að núver­andi kvóta­kerfi verði við­haldið. 

„Tryggja þarf stöð­ug­leika í rekstr­ar­um­hverfi íslensks sjáv­ar­út­vegs á grund­velli núgild­andi afla­marks­kerfis svo greinin haldi áfram að vaxa á grund­velli sjálf­bærrar nýt­ingar fiski­stofna. Í skjóli öfl­ugs sjáv­ar­út­vegs vex nýsköpun og vöru­þróun. Grund­völlur arð­semi sjáv­ar­út­vegs mun byggja á sam­þætt­ingu veiða, vinnslu og mark­aðar. Góðar sam­göngur inn­an­lands og milli landa eru for­senda þess að tryggja gæði og afhend­ingar­ör­yggi sjáv­ar­af­urða“.

Fleiri ríkisstjórnir í boði

Vinstri grænir gætu myndað tvær fimm flokka rík­is­stjórnir án Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ann­ars vegar með Viðreisn, og hins vegar Fram­sókn­ar­flokki. 

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefur hins vegar lýst því yfir að hann vilji ekki „Pírata­banda­lag“. 

Stjórn með Framsókn: VG (10)+Píratar (10)+Framsókn (8)+Björt fram­tíð (4) og Sam­fylk­ing (3): 35 þing­menn

Stjórn með Viðreisn: VG (10)+Píratar (10)+Viðreisn (7)+Björt fram­tíð (4) og Sam­fylk­ing (3): 34 þing­menn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár