Útgerðarmenn hafa eignast 300 milljarða króna á sex árum - veiðigjald lækkar

Hagtölur sýna bættan hag útgerð­ar­fyr­ir­tækja og hvernig þau bjuggu til eign úr því sem eign­ar­réttur gildir ekki um. Útgerðir á Íslandi hafa aukið eigið fé sitt um 300 millj­arða króna á sex árum, eða 50 millj­arða á hverju ári, síð­ustu sex ár. Síðustu þrjú ár hefur veiði­gjaldið fyrir afnot af auð­lind­inni lækkað um 5 millj­arða á ári.

Útgerðarmenn hafa eignast 300 milljarða króna á sex árum - veiðigjald lækkar
Þor­steinn Már Bald­vins­son Er einn auð­ug­asti útgerð­ar­maður lands­ins í gegnum eign­ar­hald á Samherja. Auður hans, ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, var met­inn á um 31 millj­arð króna í fyrra. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Íslenskar útgerðir hafa aukið eigið fé sitt um 300 millj­arða króna á sex árum, eða um 50 millj­arða á ári að með­al­tali, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Helsta eign útgerð­ar­fé­lag­anna er eign sem eign­ar­réttur gildir ekki um, lögum sam­kvæmt, eða heim­ildir til að nýta auð­lind­ina.

Síðustu þrjú ár hefur veiði­gjald til rík­is­sjóðs fyrir nýt­ingu á fisk­veiði­auð­lind­inni hins vegar lækkað um fimm millj­arða króna.

Eigið fé útgerð­ar­fyr­ir­tækja var nei­kvæð eftir efna­hags­hrunið, fór úr mínus 83 millj­örðum króna árið 2008 í 216 millj­arða króna í plús árið 2014.

Aðgangur að auðlindinni er eign

Þrátt fyrir að lög kveði á um að afla­heim­ildir, eða kvóti, séu ekki eign, eru þær skráðar sem eign í efna­hags­reikn­ingi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og hag­tölum. 

Eign í auð­lind­inniFisk­veiði­auð­lindin er skráð í efna­hags­reikn­ingum útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem „óefn­is­leg eign“.

Í lögum um stjórn fisk­veiða segir: „Nytja­stofnar á Íslands­miðum eru sam­eign íslensku þjóð­ar­innar ... Úthlutun veiði­heim­ilda sam­kvæmt lögum þessum myndar ekki eign­ar­rétt eða óaft­ur­kall­an­legt for­ræði ein­stakra aðila yfir veiði­heim­ildum.“

Kvóti er skráður sem „óefn­is­leg eign“ í efna­hags­reikn­ingi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. Frá árinu 2002 hafa óefn­is­legar eignir, sem að stærstum hluta eru afla­heim­ildir, auk­ist úr 93 millj­örðum króna í 251 millj­arð króna á föstu verð­lagi. 

Óefn­is­legar eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækja, mest­megnis í kvóta, jókst um svip­aða upp­hæð og skuldir þeirra árin 2002 til 2007. Fjölmörg útgerð­ar­fé­lög veð­settu eign sína í kvóta til þess að fá lán, jafn­vel til hluta­bréfa­kaupa. Þannig veð­settu þau eign sem ekki myndar eign­ar­rétt því hún telst til sam­eignar íslensku þjóð­ar­innar. Án þess­arar eignar væri eigið fé íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja nei­kvætt, þau myndu skulda meira en þau eiga.

Batnandi hagurGrafið sýnir batn­andi hag útgerð­ar­fyr­ir­tækja. Þarna sést að frá alda­mótum hefur óefn­is­leg eign auk­ist veru­lega, en það er að stórum hluta afla­heim­ildir.

Milljarðamæringar af kvóta

Þrátt fyrir að afla­heim­ildir séu ekki eig­in­leg eign og eigi ekki laga­lega að lúta eign­ar­rétti geta útgerð­ar­menn, eig­endur útgerð­ar­fé­lag­anna, fram­kallað raun­veru­lega eign úr þeim með því að selja kvóta. 

Í úttekt Stund­ar­innar í fyrra á helstu „eig­endum“ auð­lind­ar­innar kom fram að ein­stakir útgerð­ar­menn hafi yfir að ráða sam­eign upp á tugi millj­arða króna.

Sjá umfjöllun Stund­ar­innar um fólkið sem ræður auð­lind­inni.

Þess ber að geta að þegar kvóti er seldur eru oft skuldir að baki, þar sem stór hluti kvóta er veð­settur.

Eft­ir­far­andi útgerð­ar­menn réðu yfir mestum hluta auð­lind­ar­innar í fyrra: 

 

Helstu eig­endur fisk­veiði­auð­lind­ar­innarStundin gerði úttekt á helstu eig­endum auð­lind­ar­innar í fyrra.

Veiðigjöld lækkuð

Þrátt fyrir að eignir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa stór­auk­ist hafa veið­gjöld verið lækkuð síð­ustu þrjú árin. Fisk­veiði­árið 2012-2013 greiddu útgerðir tæpa 13 millj­arða króna í veiði­gjöld, en árið 2014-2015 fimm millj­örðum minna, eða 7,7 millj­arða króna. Það jafn­gildir því að veiði­gjöldin eru nú árlega um 10% af aukn­ingu á eigin fé útgerð­ar­fé­laga á Íslandi.

Eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var mynduð í kjöl­far kosn­ing­anna í apríl 2013 var tekin ákvörðun um að lækka hið svo­kall­aða „sér­staka veiði­gjald“, sem leiddi til þess að veiði­gjaldið lækk­aði um tæpan millj­arð 2014-2015, 1,4 millj­arða árið áður og tæpa þrjá millj­arða árið þar áður.

Kvótinn boðinn upp?

Í kjöl­far til­rauna Fær­ey­inga með upp­boð á kvóta, sem þýðir að ríkið býður upp kvót­ann gegn hæsta verði á mark­aði, hefur vaknað umræða um að Íslend­ingar fari svo­kall­aða upp­boðs­leið. 

Meðal þeirra flokka sem styðja upp­boðs­leið­ina eru Píratar, sem njóta um 23% fylgis sam­kvæmt síð­ustu skoð­ana­könnun Gallups. Þá hefur VG, sem um 13% styðja, horft til upp­boðs­leið­ar­innar. Formaður flokks­ins, Katrín Jak­obs­dóttir, seg­ist vilja „byrja á þessu í áföngum eins og Fær­ey­ingar hafa gert“. Viðreisn, studd af 12% í síð­ustu skoð­ana­könnun, styður einnig upp­boðs­leið­ina í áföngum, sem og Björt fram­tíð með 3% stuðn­ing.

Alls eru rúm­lega 60% kjós­enda, ef marka má skoð­ana­kann­anir, að baki flokkum sem styðja upp­boðs­leið­ina eins og staðan er nú. Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru and­snúnir upp­boðs­leið­inni.

„Hvað höfum við gert ykkur?“

Sam­fylk­ingin, með 9% fylgi, styður upp­boðs­leið, án þess að hafa inn­leitt hana í síð­ustu rík­is­stjórn, þegar gerð var mála­miðlun vegna mik­illa mót­mæla útgerð­ar­manna. „Hvað höfum við gert ykkur?“ sagði einn af fyrr­ver­andi stjórn­endum Síld­ar­vinnsl­unnar á Nes­kaups­stað á átaka­fundi með Stein­grími J. Sig­fús­syni, þá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, í apríl 2012.

Renta af auðlindinni fyrir heilbrigðisútgjöldum

Fyrr­ver­andi hag­stofu­stjóri Færeyja, Hermann Oskars­son, sem styður upp­boðs­leið­ina, sagði í við­tali við Stundina á dög­unum að renta rík­is­ins af upp­boði á heim­ildum til nýt­ingar fisk­veiði­auð­lind­ar­innar í Færeyjum myndi duga fyrir öllu heil­brigð­is­kerfi lands­ins. „Uppboðin hafa gengið vel og meiri­hluti Fær­ey­inga er aug­ljós­lega hlynntur því að greitt sé fullt gjald fyrir fisk­veiði­rétt­indi. Auðvitað hefðu útgerð­ar­fyr­ir­tækin áfram viljað fá afla­heim­ildum úthlutað ókeypis, en samt hafa þau tekið virkan þátt í upp­boð­unum og boðið svo hátt verð að það hefur komið hag­fræð­ingum sem fylgj­ast með á óvart. Þegar allur kvóti verður boð­inn upp er reiknað með að tekj­urnar muni duga til að standa straum af öllum heil­brigðis­út­gjöldum lands­ins og lækka tekju­skatt umtals­vert. Það ætti því engan að undra að breiður stuðn­ingur er við aðgerð­irnar í Færeyjum.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár