Sigurður Ingi verði nýr forsætisráðherra Íslands

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son mun stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og vill að dýra­lækn­ir­inn fyrr­ver­andi Sigurður Ingi Jóhanns­son taki við.

Sigurður Ingi verði nýr forsætisráðherra Íslands
Sigurður Ingi Jóhanns­son Virðist verða nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hættir sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, fyrr­ver­andi dýra­læknir, mun taka við, ef nið­ur­staða fundar þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins gengur eftir. 

Sigurður Ingi, sem nú er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, lýsti þessu yfir eftir fund þing­flokks­ins. „Nið­ur­staða fund­ar­ins er sú að for­sæt­is­ráð­herra lagði það til á þing­flokks­fundi að hann myndi stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og lagði til að ég tæki við því emb­ætti en hann mun halda áfram sem for­maður flokks­ins. Þessi til­laga var sam­þykkt af þing­flokknum.“

Það er vilji þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið haldi áfram.

Aðspurður hvað Sjálf­stæð­is­flokknum finn­ist um þetta segir Sigurður Ingi: „Ég hef kynnt Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokki þetta, hann var þá á leið­inni til Bessa­staða, og við Ásmundur Einar þing­flokks­for­maður munum eiga sam­tal við þau í dag.“

Sigurður Ingi
Sigurður Ingi

Fyrrverandi bóndi og dýralæknir

Sigurður Ingi er fyrr­ver­andi bóndi og hér­aðs­dýra­læknir. Hann fædd­ist 20. apríl 1962 og er því að verða 54 ára gam­all. 

Árin 1987 til 1994 var hann bóndi í Dalbæ í Hruna­manna­hreppi. Þá starf­aði hann sam­hliða bústörfum sem sjálf­stætt starf­andi dýra­læknir árin 1990 til 1995. Hann var dýra­læknir hjá Dýra­lækna­þjón­ustu Suð­ur­lands árin 1996 til 2009 og odd­viti Hruna­manna­hrepps frá 2002, allt þar til hann sett­ist á þing árið 2009 í kosn­ing­unum í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

„Virðingarvert“

Sigurður Ingi sagði að Sig­mundur væri með þessu að hlusta eftir því sem ger­ist í sam­fé­lag­inu, með virð­ing­ar­verðum hætti. „Eins og öllum er ljóst þá er mikil ólga í sam­fé­lag­inu og hann hlustar eftir því sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu og þetta eru hans við­brögð og okkur finnst það vera mjög virð­ing­ar­vert.“

Bjarni Bene­dikts­son fund­aði með for­seta á Bessa­stöðum fyrr í dag. Eftir fund­inn ræddi hann brott­hvarf Sig­mundar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafði fundað með for­seta í morgun í til­raun til að fá umboð til að boða til kosn­inga, en for­set­inn hafn­aði því.

Sjálf­stæð­is­menn eiga eftir að sam­þykkja að Sigurður Ingi Jóhanns­son verði næsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Ferill Sig­urðuar Inga á ráð­herra­stóli hefur verið umdeildur og hefur hann stutt Sigmund Davíð ein­dregið í skatta­skjóls­mál­inu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár