Sigmundur lét Pírata heyra það

For­sæt­is­ráð­herra hædd­ist að Pírötum á Alþingi og sak­aði þá um stefnu­leysi.

Sigmundur lét Pírata heyra það
Sig­mundur Davíð For­sæt­is­ráð­herra svar­aði óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hædd­ist að Pírötum á Alþingi í dag í umræðu um borg­ara­laun. Hann sagði Pírata ekki hafa neitt stefnu­mál og gagn­rýndi Birgittu Jóns­dóttur, þing­mann Pírata, fyrir að lesa upp úr grein af vef­miðl­inum Kjarn­anum.

Birgitta Jóns­dóttir hóf umræðu um málið með því að gagn­rýna Sigmund fyrir mistúlkun hans á stefnu Pírata varð­andi borg­ara­launin. Sig­mundur var­aði Við­skipta­þing við hug­myndum Pírata um borg­ara­laun og sagði þær kosta tvö­faldar tekjur rík­is­ins. Hins vegar felst til­laga Pírata um borg­ara­laun ein­ungis í því að skipa starfs­hóp til að „kort­leggja leiðir til að tryggja öllum borg­urum lands­ins skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu með það að mark­miði að styrkja efna­hags­leg og félags­leg rétt­indi fólks og útrýma fátækt.“

Gagnrýnir rangfærslur Sigmundar

Birgitta sagði vara­þing­mann Pírata hafa lagt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram og sagði engar tölur hafa verið nefndar, en Sig­mundur gaf sér í ræðu sinni á Við­skipta­þingi að borg­ara­laun yrðu 300 þús­und á hvern lands­mann.

„Mig langar líka að nota tæki­færið til að leið­rétta hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra, en nokkrar rang­færslur hafa ratað í ræðu hans þar sem hann hefur stað­fært mein­legar villur um stefnu Pírata um borg­ara­laun,“ sagði Birgitta. „En stað­reyndin er sú að Píratar hafa ekki mótað stefnu um borg­ara­laun, heldur hefur vara­þing­maður Pírata lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu, þar sem óskað er eftir því að það verði stofn­aður starfs­hópur til að kort­leggja leiðir sem tryggja öllum borg­urum lands­ins skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu. Engar tölur eru nefndar í þeirri til­lögu og því langar mig að spyrja hæst­virtan ráð­herra hvaðan hann fékk sínar tölur sem hann byggði ótta­hjal sitt á í ræðu hjá Við­skipta­þingi.“

Birgitta er hins vegar sjálf einn þriggja flutn­ings­manna til­lög­unar.

Segir Pírata hafa engin stefnumál

„Það var einmitt það, virðu­legur for­seti,“ svar­aði Sig­mundur. „Akkurat þegar maður hélt að loks­ins væri komið eitt­hvað mál frá Pírötum, þar sem þeir væru að skýra ein­hverja stefnu, eða boða stefnu, þá kemur á dag­inn að svo er ekki. Þetta er ekki stefna, þetta er bara svona til skoð­unar. Það á bara að kanna þetta, hvort þetta sé snið­ugt, þannig að enn bíðum við eftir fyrsta stefnu­mál­inu frá Pírötum. Og sjáum til hvort það kemur fyrir kosn­ingar eða ekki.“

„Þannig að enn bíðum við eftir fyrsta stefnu­mál­inu frá Pírötum“

Ekki er þó rétt að Píratar hafi engin stefnu­mál. Í sjáv­ar­út­vegs­málum hafa þeir þá stefnu að bjóða afla­heim­ildir upp á frjálsum mark­aði, í lána­málum leggja þeir til lykla­lög, þeir vilja auka beint lýð­ræði, beina fíkni­efna­neyt­endum frá dóms­kerf­inu yfir í heil­brigð­is­kerfið, svo eitt­hvað sé nefnt.

Þá leggja þeir áherslu á borg­ara­rétt­indi, upp­lýs­ingar og gagn­rýna hugsun í grunn­stefnu sinni.

Þá vilja Píratar „lög­festa lág­marks­fram­færslu­við­mið“, en stefnan felur ekki í sér upp­töku borg­ara­launa. „Allir eiga rétt á mann­sæm­andi tekjum í auð­ugu landi. Einfalda þarf fram­færslu­kerfið og bjóða þarf bóta­þegum, hvort sem það eru öryrkjar, fatl­aðir eða atvinnu­lausir upp á fjöl­breytta atvinnu, frí­stunda og mennt­un­ar­mögu­leika.“ 

Borg­ara­laun eru hins vegar fylli­lega í anda stefnu þeirra í bóta­málum. „Fjár­magna skal áður­taldar aðgerðir með núver­andi fjár­veit­ingum til atvinnu- og mennta­mála fyrir bóta­þega, end­ur­skoðun á bóta­kerf­inu sam­hliða efl­ingu á virkni ein­stak­linga og fram­taks hans til sköp­unar og atvinnu, end­ur­skoðun á núver­andi skatt­kerfi með það að mark­miði að ein­falda kerfin og þarafleið­andi minnka yfir­bygg­ingu þeirra (stjórn­sýsla), og betri skil­virkni innan vel­ferðar- og heil­brigð­is­kerf­is­ins.“

Hér má sjá stefnu Pírata í vel­ferð­ar­málum.

Borgaralaun til skoðunar í þremur löndum

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Er ein af þremur flutn­ings­mönnum til­lögu um að stofna stýri­hóp til að skoða upp­töku borg­ara­launa.

„Forseti, það er átak­an­legt að hlusta á þvætt­ing­inn úr munni hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra. Ég bara verð að segja eins og er,“ sagði Birgitta. Hún vitn­aði í kjöl­farið í grein á vef­mið­il­inum Kjarn­anum um borg­ara­laun, þar sem Sig­mundur er gagn­rýndur fyrir að ein­falda umræðu um borg­ara­laun. Í grein­inni kemur fram að verið sé að kanna fýsi­leika upp­töku þeirra í Hollandi, Finn­landi og Sviss. Í síð­ast­nefnda land­inu verður kosið um málið í júní á þessu ári. Auk þess er bent á að stuðn­ingur við borg­ara­laun finn­ist bæði á vinstri og hægri væng stjórn­mál­anna, þar sem þau tryggi grunn­fram­færslu um leið og þau ein­faldi eða afnemi bóta­kerfi.

Hvað meina Píratar?

Sig­mundur sagði stuðn­ings­menn borg­ar­launa vera öfga­hægri­menn og öfga­vinstri­menn og gagn­rýndi Birgittu fyrir að lesa upp úr leið­ara Kjarnans.

„Það er óneit­an­lega sér­kenni­legt að heyra hátt­virtan þing­mann Pírata þurfa að lesa upp rit­stjórn­arp­istil manns á vefriti til þess að útskýra hvað Píratar séu að meina. Það sem sagt liggja ekki fyrir skýr­ingar Pírata sjálfra á því hvað þeir eru að meina, en það er leitað í ein­hvern rit­stjórn­arp­istil manns úti í bæ, til þess að útskýra hvað þeir eru að meina með þessum til­lögum sínum.“

Hins vegar má lesa útskýr­ingar um til­lögu Pírata um skoðun borg­ara­launa á vef Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgaralaun

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár