Lífs­stíls­breyt­ing Kolbrún Björns­dóttir hefur gjör­bylt lífi sínu frá því að vera antí­sportisti í það að þeyt­ast um á reið­hjóli og fara gang­andi um fjöll og firn­indi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Neyðarópið í gilinu

Fjöl­miðla­konan Kolbrún Björns­dóttir söðl­aði um frá því að vera antí­sportisti. Stundar hjól­reiðar og göngur grimmt. Fer til Nepal með Vilborgu Örnu. Vin­kon­urnar björg­uðu manns­lífi í fjall­inu. Fjöl­miðl­arnir, fjöllin og reið­hjólin.

„Maður segir ekki nei þegar Vilborg Arna býður manni að koma með til Nepal,“ segir Kolbrún Björns­dóttir dag­skrár­gerð­ar­maður sem hefur gjör­bylt lífi sínu frá því að vera fremur andsnúin íþróttum og hreyf­ingu í það að stunda hjól­reiðar og göngur af kappi. Fram undan er kvenna­ferð til Nepal þar sem Kolbrún verður far­ar­stjóri með afreks­kon­unni Vilborgu Örnu Giss­ur­ar­dóttur.

Kolbrún er fyrst og fremst þekkt sem fjöl­miðla­maður. Hún hefur verið áber­andi um ára­bil og víða komið við. Lengst var hún þó í morg­un­þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni. Hún var orðin dauð­þreytt á að rífa sig upp fyrir allar aldir.

„Ég var orðin mjög þreytt á vinnu­tím­anum og þessu ati sem fylgdi því að stýra svona þjóð­mála­þætti eftir hrunið og allt sem þá gekk yfir. Ég var búin að fá nóg en álp­að­ist samt aftur inn á fjöl­miðl­ana eftir tveggja mán­aða sum­ar­frí. Þá tók ég að mér að gera þætti fyrir Stöð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útivist

FréttirÚtivist

Segir hagn­að­inn af Lita­hlaup­inu vera minni en styrk­veit­ingar til góð­gerð­ar­mála

The Color Run er hlaupið á yfir 300 stöðum í heim­inum á hverju ári. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins, sem sér um fram­kvæmd Lita­hlaups­ins á Íslandi, neitar að gefa upp tekjur sínar og hagnað. Uppselt var í hlaupið og voru þátt­tak­endur um tólf þús­und. Fyr­ir­tæki eins og Alvogen greiða þóknun til að tengja nafn sitt við hlaupið en for­svars­menn Lita­hlaups­ins gefa ekki upp hversu há hún er.

Mest lesið undanfarið ár