Luxury Adventures í rannsókn hjá sérstökum saksóknara

Ólafur Helgi Þor­gríms­son, fram­kvæmda­stjóri Luxury Adventures og skráður for­stöðu­maður trú­fé­lags­ins Zuism var færður í gæslu­varð­hald fyrir nokkrum mán­uðum. Að sögn heim­ilda snýst málið um pen­inga­þvott.

Luxury Adventures í rannsókn hjá sérstökum saksóknara
Í rann­sókn Ólafur Helgi var færður í gæslu­varð­hald fyrr í vetur vegna máls­ins. Mynd: Lux.is

Ólafur Helgi Þor­gríms­son, fram­kvæmda­stjóri Luxury Adventures og skráður for­stöðu­maður trú­fé­lags­ins Zuism, er í rann­sókn hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar snýst málið um pen­inga­þvott í gegnum félagið Luxury Adventures.

Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, stað­festir að rann­sókn á Ólafi Helga hafi staðið um nokk­urt skeið. Sér­stakur sak­sókn­ari seg­ist ann­ars lítið geta sagt um málið meðan það er enn í rann­sókn. Hann segir þó að rann­sóknin sé mjög langt komin, raunar nærri lokið. Ólafur Þór segir að málið hafi komið upp árið 2013. Vænta má þess að málið fari í ákæru­með­ferð á næstu vikum.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir bæði fyrir og eftir helgi hefur Stundin ekki náð í Ólaf Helga.

Færður í gæsluvarðhald

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar snýst meint afbrot Ólafs Helga meðal ann­ars um milli­færslu á fé frá Eystra­salts­lönd­unum til Íslands þar sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hans var nýtt í þeim til­gangi. Samkvæmt heim­ildum skaut Seðla­banki Íslands mál­inu til sér­staks sak­sókn­ara. Fyrir nokkrum mán­uðum síðan sat Ólafur Helgi sat í gæslu­varð­haldi vegna máls­ins. Að sögn heim­ild­ar­manns má rekja upp­haf máls­ins til þess að Seðla­banki Íslands fór að kanna inn­borg­anir á reikn­inga vegna ferða á vegum Luxury Adventures. 

Forstöðumaður Zuisma

Stundin greindi frá því á dög­unum að Ólafur Helgi væri for­stöðu­maður eins dul­ar­fyllsta trúsöfn­uðar á Íslandi, en sjálfur seg­ist hann hafa hætt þar eftir nokkra mán­uði. 

Félagið heitir  Zuismi, en söfn­uð­ur­inn fékk form­lega skrán­ingu árið 2013 eftir að honum hafði verið hafnað árið áður. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar verður trú­fé­lagið brott­fellt á næstu vikum.

Svo virð­ist sem með­limir trú­fé­lags­ins trúi á forn­súm­erska fjöl­gyð­is­trú, sem segja má að hafi runnið sitt skeið fyrir um 6000 árum. Skráðir með­limir eru þrír.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár