Leynd yfir samskiptunum við skattrannsóknarstjóra

Ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar um að ráðu­neytið hafi „aldrei gert ágrein­ing um verðið“ á skatta­skjóls­gögnum eru ekki í sam­ræmi við frá­sögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra af skil­yrðum sem sett voru emb­ætt­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið hefur hvorki svarað upp­lýs­inga­beiðni Stund­ar­innar um skrif­leg sam­skipti við skatt­rann­sókn­ar­stjóra né fyr­ir­spurn frá Alþingi um aðkomu Bjarna.

Leynd yfir samskiptunum við skattrannsóknarstjóra
Átti aðkomu að mál­inu Bjarni Bene­dikts­son fund­aði með skatt­rann­sókn­ar­stjóra um kaup á gögnum sem snertu hann sjálfan. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Leynd hvílir yfir skrif­legum sam­skiptum sem fjár­mála­ráðu­neytið átti við emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra á árunum 2014 og 2015 eftir að emb­ætt­inu bauðst að kaupa gögn um aflands­fé­lög Íslend­inga. Gögnin höfðu að geyma upp­lýs­ingar um félagið Falson & Co, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, átti sjálfur hlut í. Auk þess liggur fyrir að Benedikt Sveins­son, faðir ráð­herr­ans, átti félag á Tortólu og not­færði sér þjón­ustu lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca. Þrátt fyrir þetta fund­aði ráð­herr­ann með skatt­rann­sókn­ar­stjóra um gögnin og setti kaupum á þeim skil­yrði sem reynd­ist erfitt að upp­fylla. Fyrir vikið leið meira en ár þar til gögnin um aflands­fé­lög Íslend­inga voru keypt.

Bryndís Kristjánsdóttir
Bryndís Krist­jáns­dóttir er skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Í munn­legri skýrslu sem Bjarni flutti um mál­efni aflands­fé­laga á Alþingi þann 4. maí síð­ast­lið­inn full­yrti hann að þegar skatt­rann­sókn­ar­stjóra bauðst að kaupa gögn um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum hefði fjár­mála­ráðu­neytið „ein­göngu spurt að því hvort skatt­rann­sókn­ar­stjóri teldi eitt­hvert gagn af því fyrir meg­in­starf­semi emb­ætt­is­ins að fá gögnin keypt“ og „aldrei gert ágrein­ing um verðið“. Ummælin stang­ast á við frá­sögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra, en í bréfi emb­ætt­is­ins til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins frá 10. febr­úar 2015 kemur fram að fjár­mála­ráðu­neytið hafi, með bréfi frá 3. des­em­ber 2014, sett tvö skil­yrði fyrir fjár­heim­ild til kaupa á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga. Annað skil­yrðið laut að því hvernig og hve mikið yrði greitt fyrir gögnin. 

Kært til úrskurðarnefndar um upplýsingamál

Í skýrsl­unni sem Bjarni gaf Alþingi um aðgerðir stjórn­valda vegna aflands­fé­laga þann 4. maí síð­ast­lið­inn sagð­ist hann sjálfur vilja „flýta fyrir úrvinnslu gagn­anna“ eins og kostur væri. „Við höfum þegar átt skrif­leg sam­skipti við emb­ættin og boðið fram hvers kyns aðstoð í þessum til­gangi,“ sagði hann. Daginn eftir óskaði Stundin eftir aðgangi að bréfi ráðu­neyt­is­ins frá 3. des­em­ber 2014 auk þeirra skrif­legu sam­skipta sem ráð­herra vís­aði til í ræðu sinni á Alþingi. Hefur upp­lýs­inga­beiðnin verið ítrekuð tvisvar sinnum en ráðu­neytið enn ekki afgreitt hana. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár