Kona sem lagði ólöglega kom að bílnum sínum pökkuðum inn í plast

Borg­ara­legt rétt­læti við Garða­skóla í Garðabæ, þar sem kona lagði í stæði fyrir vöru­mót­töku.

Kona sem lagði ólöglega kom að bílnum sínum pökkuðum inn í plast
Óvænt refs­ing Það tók kon­una um tíu mín­útur að opna bíl­inn. Mynd: Egill Róbertsson

Kona, sem átti erindi í Garða­skóla, varð fyrir því að bíl hennar hafði verið pakkað kyrfi­lega inn í plast þegar hún kom aftur að honum á bíla­stæð­inu.

Um var að ræða ein­hvers konar til­felli borg­ara­legs rétt­lætis, þar sem ótil­greindir, almennir borg­arar refsuðu kon­unni fyrir að leggja í stæði sem merkt var „vöru­mót­taka“, þótt nóg væri af lausum stæðum á bílaplan­inu.

„Mér fannst þetta snilld­ar­hug­mynd hjá þeim,“ segir Egill Róberts­son, starfs­maður í íþrótta­mið­stöð­inni Ásgarði, sem tók mynd af bif­reið­inni og birti í hópnum Verst lagði bíll­inn á Facebook. Hann seg­ist ekki hafa tekið þátt í plöst­un­inni. „Ég kom bara þarna að þegar þetta var búið. Ég veit ekk­ert hverjir þetta voru.“

„Hún tók þessu frekar vel“

Plastaður bíll
Plast­aður bíll „Svona getur farið fyrir fólki sem að leggur framan við skilti sem á stendur: Vöru­mót­taka,“ skrif­aði Egill Róberts­son við deil­ingu á mynd af bílnum.

Konunni varð hverft við, en hún tók refs­ing­unni vel. „Mér sýnd­ist að konan, þegar hún kom, tæki þessu ekki illa. Hún tók þessu frekar vel,“ segir Egill.

Í kjöl­farið hófst konan handa við að opna bíl­inn. „Hún var ein­hverjar tíu mín­útur að þessu,“ segir Egill.

Til­tæk­inu er mis­jafn­lega tekið af með­limum í hópnum Verst lagði bíll­inn. „Full­orð­inn maður að plasta bíl... plís ekki fjölga þér,“ segir einn þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár