Veiðir villt dýr Hér situr Árni með bráð sinni, risa­vöxnum afrískum buffaló frá Mósambík. Mynd: Úr einkasafni

Játningar veiðimannsins

„Ég hef alltaf litið svo á að maður eigi bara eitt líf og mér finnst að það sé eins gott að gera allt sem mann langar til að gera.“ Þetta segir Árni Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Lax-á, sem ferð­ast heims­horna á milli og veiðir villt dýr. Viðtalið veitir inn­sýn í hug­ar­heim veiði­manns­ins, sem skaut fíl og notar upp­stopp­aðar fætur gíraffa sem lampa, en hann lítur á stór­gripa­veiðar eins og hann stundar í Afríku og víðar, sem nátt­úru­vernd.

Tugir upp­stopp­aðra dýra­hausa. Upp­stopp­aður gíraffi. Hrein­dýra­horn og hrein­dýra­skinn. Trófíhús Árna Bald­urs­sonar hjá Lax-á ber þess merki að hann hefur verið á veiði­ferðum út um allan heim. Árni, satt að segja, lítur svo­lítið út eins og veiði­maður; í sport­legum fötum og með leð­ur­arm­bönd. Hann ólst upp í Reykja­vík og var sendur í sveit á sumrin þar sem stutt var í fal­lega á þar sem silf­ur­lit­aðir fiskar syntu um. „Ég vann á dag­inn og veiddi á nótt­unni og rækt­aði með mér þessa veiði­bakt­eríu. Ég var tal­inn vera stór­skrýt­inn þegar ég var ung­lingur af því að ég svaf oft einn í tjaldi ein­hvers staðar og var að veiða og steikja kóti­lettur þegar aðrir voru að fara að skemmta sér.“

Árni tók fyrstu lax­veiði­ána á leigu þegar hann var 16 ára. „Þetta er eig­in­lega allt gert af ástríðu; ég vil geta verið við ána og leyft mér þennan lífs­stíl. Ég sæki í að vera í villtri nátt­úru.“

Dásamleg veiðihús

Útlönd köll­uðu. Þau skipta tugum löndin þar sem Árni hefur veitt í gegnum árin.

„Ég hef farið árlega til Argent­ínu síðan árið 1993. Ég var þar stundum upp í tvo mán­uði á ári og fór oft með hópa. Þarna opn­aði ég við­skipti með sölu veiði­leyfa á Íslandi í sjó­birt­ing, sil­ung og urriða auk skot­veiði.

Veiði­húsin í Argent­ínu eru dásam­leg; þetta eru fjög­urra stjörnu hús. Og mat­ur­inn er ótrú­legur en Argent­ína er fræg fyrir góðan mat og góðar steikur; nauta­kjötið þar er frægt. Leið­sögu­menn­irnir grilla í hádeg­inu - jafn­vel við árnar - og svo eru oft partí á kvöldin í veiði­hús­unum; grillað og spilað á gítar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár