Mynd: Kristinn Magnússon

„Ísland á að verða kolefnishlutlaust í síðasta lagi árið 2050“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur veru­legar áhyggjur af því að ekki tak­ist að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingum. Hún vill útrýma kyn­bundnum launa­mun og taka á móti fleira flótta­fólki.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, segir vanda Íslands fel­ast í því hvað sam­fé­lagið er lítið og mikið kunn­ingja­sam­fé­lag. „Það býður upp á spill­ingu af ákveðnum toga,“ segir hún. „Mér finnst margt stjórn­mála­fólk vera fast í því að skil­greina spill­ingu út frá því hvað er lög­legt eða ekki en spill­ing getur auð­vitað verið margt annað en það sem felst í lag­anna bók­staf.“

 

 

 

Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð var stofnuð árið 1999 og sat fyrst í rík­is­stjórn árin 2009 til 2013 með Sam­fylk­ing­unni. 

Katrín segir flokk­inn að sumu leyti ekki hafa verið vel und­ir­bú­inn fyrir að taka þátt í rík­is­stjórn árið 2009. „Því fylgdu ýmsir erf­ið­leikar sem við hefðum kannski átt að sjá betur fyrir,“ segir hún. Flokk­ur­inn hlaut meðal ann­ars gagn­rýni fyrir að hafa sam­þykkt að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. Aðspurð hvort henni þyki rétt­læt­an­legt að stjórn­mála­flokkur sem boði að ekki verði sótt um aðild að ESB sæki síðan um aðild þegar hann kemst til valda, segir Katrín: „Ég sagði mjög skýrt fyrir kosn­ing­arnar 2009 að ég teldi, þrátt fyrir and­stöðu mína og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár