Mynd: Kristinn Magnússon

Í 130 ára einbýlishúsi í hjarta miðborgarinnar

Mat­reiðslu­mað­ur­inn Völundur Snær Völ­und­ar­son og Þóra Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur búa í 130 ára gömlu sögu­frægu húsi að Bók­hlöðu­stíg í Reykja­vík. Þau hafa tekið húsið algjör­lega í gegn að innan en á sama tíma reyna þau að halda sem flestu upp­runa­legu.

„Ég er að byggja Lego-borg,“ til­kynnir hinn sjö ára gamli Baldvin Snær blaða­manni þegar okkur ber að garði og leiðir að eld­hús­borð­inu þar sem fram­kvæmd­irnar eiga sér stað. Móey, yngri systir hans, situr á fal­legum bar­stól eftir Daníel Magn­ús­son og spilar á hljóm­borð. Heim­il­is­fað­ir­inn er á sínum stað í eld­hús­inu að und­ir­búa kvöld­verð en hús­móð­irin hend­ist um húsið og tínir niður það sem eftir er af nýliðnum jólum. Það er því nóg um að vera á heim­il­inu þegar blaða­mann og ljós­mynd­ara ber að garði. 

Óhefðbundin jól

Eldarðu heima á hverju kvöldi? „Svarið er já, en það er líka stundum bara grjóna­grautur,“ segir Völundur og hlær. „Það er ekk­ert alltaf verið að kljúfa atóm.“ Völundur segir að vísu að harð­asti mat­ar­gagn­rýn­and­inn sé á heim­il­inu. „Þrátt fyrir að vera mat­reiðslu­maður þá hefur eng­inn kné­sett mig eins og dóttir mín,“ við­ur­kennir hann. „Á þar­síð­ustu jólum vorum við með 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár