Hvorki atkvæðagreiðsla um ESB né uppboðsleið í stjórnarsáttmálanum

Viðreisn og Björt fram­tíð náðu ekki fram tveimur af helstu stefnu­málum sínum í við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn en mynda samt rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar.

Hvorki atkvæðagreiðsla um ESB né uppboðsleið í stjórnarsáttmálanum

Stefnu­yf­ir­lýs­ing rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar felur hvorki í sér fyr­ir­heit um að boðað verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið né að látið verði reyna á upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi. Hvort tveggja var á meðal helstu stefnu­mála Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru þann 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er hnykkt á því að við ráðstöfun nýting­arréttinda á auð­lindum í opin­berri eigu skuli ekki „gengið á eignar- og nýting­arrétt ein­stak­linga nema brýnir almanna­hags­munir krefj­ist þess“. Fram kemur að núgild­andi fisk­veiði­stjórnar­kerfi hafi skilað miklum þjóðhags­legum ávinn­ingi og ríkis­stjórnin telji kosti afla­marks­kerf­is­ins mik­il­væga fyrir áfram­hald­andi verð­mæta­sköpun í sjávarútvegi.

„Kannaðir verða kostir þess að í stað ótímabund­innar úthlut­unar verði byggt á langtímasamn­ingum og sam­hliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem mark­aðsteng­ingu, sérstöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind verði í eðli­legu hlut­falli við afrakstur veið­anna. Gæta þarf að langtímar­ekstr­aröryggi í grein­inni og stöðug­leika í byggðum,“ segir í kafla stefnu­yf­ir­lýs­ing­ar­innar um sjáv­ar­út­vegs­mál.

Í kafl­anum um Evr­ópu­mál er tekið fram að ef þing­mál um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið verði lagt á Alþingi séu stjórnar­flokk­arnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjörtímabils­ins.

„Ríkis­stjórnin mun byggja sam­starf við Evrópusam­bandið á samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið. Fylgjast þarf vel með þróun Evrópusam­bands­ins á næstu árum og gæta í hvívetna hags­muna Íslands í sam­ræmi við aðstæður hverju sinni. Sérstakan gaum þarf að gefa mögulegri úrsögn Bret­lands úr sam­band­inu,“ segir í stjórn­ar­sátt­mál­anum. „Alþingi fylgist grannt með þróun mála í Evrópu og efli tengsl við syst­ur­stofn­anir í öðrum Evrópuríkjum. Komi fram þingmál um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evrópusam­bandið eru stjórnar­flokk­arnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjörtímabils­ins. Stjórnar­flokk­arnir kunna að hafa ólíka afstöðu til málsins og virða það hver við annan.“

Hér má lesa stjórn­ar­sátt­mál­ann í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár