Mynd: Kristinn Magnússon

Vilja afnema kapítalismann

Þor­valdur Þor­valds­son, for­maður Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, hefur áhyggjur af „lög­legri spill­ingu“ sem þrífst fyrir opnum tjöldum án þess að fá umfjöllun. Þar á hann við kap­ít­al­ismann.

Ef Þor­valdur Þor­valds­son, for­maður Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, gæti gert eina laga­breyt­ingu á stjórn­mála­ferl­inum myndi hann setja lög sem skil­greindu allar auð­lindir sem þjóð­ar­eign sem þjóðin ætti að njóta arðs­ins af. „Og mundi um leið skil­greina fólkið í land­inu sem eina af auð­lind­unum, þannig að fólkið mundi sjálft njóta arðs­ins af vinnu sinni og eng­inn mætti arð­ræna það né mis­nota,“ segir hann. 

 

Alþýðu­fylk­ingin er rót­tækur vinstri flokkur sem var stofn­aður í jan­úar 2013 og var í fram­boði í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Flokk­ur­inn fékk alls 118 atkvæði, eða um 0,04 pró­sent af heild­ar­fjölda atkvæða. For­kólfar Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, Þor­valdur og Vésteinn Val­garðs­son, voru í stjórn og flokks­ráði Vinstri grænna en sögðu sig úr flokknum vegna óánægju með hann og vinstri­st­jórn­ina. Þor­valdur seg­ist 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár