Garðabær borgar meira með Hjallastefnunni en bæjarskólunum

Bæj­ar­full­trúi óskar eftir við­brögðum við ójafn­ræði á fjár­veit­inum til grunn­skól­anna. Bæj­ar­skól­arnir fá 67 pró­sent af kennslu­kostn­aði Hjalla­stefn­unnar. Leikur að tölum segir for­maður skóla­nefndar.

Garðabær borgar meira með Hjallastefnunni en bæjarskólunum
Ójafn­ræði í fjár­veit­ingum Bæj­ar­full­trúi í minni­hluta bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar lagði fram bókun á fimmtu­dag þar sem segir að ójafn­ræði ríki í fjár­veit­ingum til grunn­skóla sveit­ar­fé­lags­ins. Einka­reknu skól­arnir fái meira á hvern nem­anda en bæj­ar­skól­arnir. Mynd: Thinkstock

Bæj­ar­skólar Garða­bæjar fá ein­ungis 67 pró­sent af þeim kennslu­kostn­aði sem Barna­skóli Hjalla­stefn­unnar fær frá sveit­ar­fé­lag­inu. Þetta kemur fram í bókun sem bæj­ar­full­trúi minni­hlut­ans lagði fram á bæj­ar­stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Þess má geta að fram­kvæmda­stjóri Hjalla­stefn­unnar, Áslaug Hulda Jóns­dóttir, er sömu­leiðis bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ og var for­seti bæj­ar­stjórnar til árs­ins 2014. Garðbær er jafn­framt eina sveit­ar­fé­lagið sem greiðir allan rekstr­ar­kostnað grunn­skóla Hjalla­stefn­unnar en almennt gildir að sveit­ar­fé­lög skuli greiða að lág­marki 70–75% af rekstr­ar­kostn­aði einka­skóla.

Tillögu um leiðréttingu hafnað

Í Garðabæ eru fimm grunn­skólar reknir af sveit­ar­fé­lag­inu, Flata­skóli, Sjálf­ands­skóli, Hofs­staða­skóli, Garða­skóli og Álfta­nes­skóli. Að auki eru tveir einka­reknir grunn­skólar, Barna­skóli Hjalla­stefn­unnar og Víf­ils­skóli og Alþjóða­skól­inn. Í bókun FÓLKSINS-í bænum kemur fram að með­al­tal kennslu­kostn­aðar bæj­ar­skól­anna fjög­urra í Garðabæ, nettó rekstr­ar­gjöld án hús­næð­is­kostn­aðar, sé sam­kvæmt fram­lögðum gögnum frá Garðabæ um 856 þús­und krónur á barn á ári á árinu 2013. Meðaltal kennslu­kostn­aðar Barna­skóla Hjalla­stefn­unnar og Víf­ils­skóla um 1.271 þús­und …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár