Iðandi líf undir yfir­borð­inu Hún syndir ein sína spretti á meðan leik­fi­mi­kon­urnar taka sporin við lín­una. Við hinn end­ann gengur maður á botni laug­ar­innar. Mynd: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir

Fylgst með fastagestum úr kafi

Fastur punktur í til­veru fjölda fólks er að byrja dag­inn í sund­laug­inni. Kolfinna Mjöll Ásgeirs­dóttir hefur lengi verið for­vitin um fólkið sem syndir meðan aðrir sofa. Hún varði nokkrum morgnum á meðal fasta­gesta Vest­ur­bæj­ar­laugar, fylgd­ist með þeim úr kafi og hlust­aði á sam­ræð­urnar í pott­unum. Hún komst fljótt að raun um að það er ekki bara hreyf­ing og frískt loft sem laðar fólk að laug­unum, heldur er það líka vin­áttan sem bindur sund­hópana saman.

Fyrir allar aldir á virkum morgnum standa nokkrar mann­eskjur við dyr Vest­ur­bæj­ar­laugar. Þær mæta helst á undan starfs­mönnum laug­ar­innar, hanga á hún­inum og bíða eftir því að klukkan slái 6.30. Þaðan er nafn þeirra komið – Húnarnir. Skömmu síðar, upp úr klukkan sjö, mæta svo Vinir Dóra í laug­ina. Þeir synda sína spretti, bregða sér í pott­inn og guf­una. Klukkan hálf átta á slag­inu kallar Dóri – Halldór Bergmann Þor­valds­son – hóp­inn upp á bakk­ann til sín, sama hvernig viðrar eða hvaða árs­tími er. Þar taka við kröft­ugar Müllers-æfingar. Þegar líður á morg­un­inn mætir svo annar öfl­ugur hópur í laug­ina. Þar er kom­inn hópur eldri borg­ara, sem dreifir sér um laug­ina og gerir sínar leik­fimi­æf­ingar. 

Kolfinna Mjöll Ásgeirs­dóttir, kenn­ari og ljós­mynd­ari, hefur lengi verið heilluð af sund­menn­ing­unni, sem er flestum hulin en er þessum hópum órjúf­an­legur hluti hvers­dags­lífs­ins. Alla sína barn­æsku fylgd­ist Kolfinna með hraustri móður sinni fara af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár