Sig­ur­stund Fjalla­mað­ur­inn Jón Hart­manns­son fagnar á toppi Herðu­breiðar. Mynd: Jón Hartmannsson

Fólkið sem safnar fjöllum

Stór hópur fólks berst við að ganga á tindana sem finn­ast í bók­inni Íslensk fjöll. Fjórir hafa náð öllum tind­unum en margir nálg­ast mark­miðið. Sumir eru opin­ber­lega að elt­ast við tindana en aðrir eru laumu­kross­arar. For­stjóri Neyð­ar­lín­unnar varð fyrstur til að klára alla topp­ana.

Stór hópur fólks hefur það áhuga­mál að ganga á öll þau fjöll sem tíunduð eru í bók­inni Íslensk fjöll, göngu­leiðir á 151 tind, eftir Ara Trausta Guð­munds­son og Pétur Þor­leifs­son. Bókin kom út fyrst árið 2004 en hefur síðan verið end­ur­út­gefin. Fjöllin í bók­inni eru sum  gríð­ar­lega erfið en þar er einnig að finna nokkur létt­ari.

Staðfest er að fjórir ein­stak­lingar hafa lokið við að ganga á öll þessi fjöll. Fyrstur til að klára bók­ina var Þór­hallur Ólafsson, for­stjóri Neyð­ar­lín­unnar. Sú þekkta göngu­kona, Gerður Stein­þórs­dóttir, hefur einnig lokið við öll fjöllin. Þá hafa hjónin María Berglind Þrá­ins­dóttir og Tómas Þröstur Rögn­valds­son einnig klifið alla tind­ina. Stefán Magn­ús­son leið­sögu­maður á aðeins eftir að klífa fjóra tinda til að klára bók­ina. Fleiri eru nálægt því að ljúka við bók­ina. Þónokkrir þeirra eru komnir yfir 130 fjöll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár