Hvað gerðist í Bretlandi?

Bretland gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu vegna ótta við inn­flytj­enda­straum, kostn­aðar og þjóð­ern­is­vit­undar, með mestum stuðn­ingi eldra fólks, lands­byggð­ar­fólks og lítið mennt­aðra.

Hvað gerðist í Bretlandi?
Aug­lýs­ing brott­hvarfs­sinna Þjóð­ern­isstolt, ótti við inn­flytj­endur, óánægja með kostnað og vilj­inn til sjálf­ræðis Bret­lands stýrði Bretum til brott­hvarfs úr Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd:

Bretland gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), fyrst sjálf­stæðra ríkja, eftir nauman meiri­hluta brott­hvarfs­sinna í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Breska pundið hafði fallið um 5% gagn­vart krón­unni á hádegi í dag og hefur pundið ekki verið veik­ara gagn­vart Banda­ríkja­dal frá árinu 1985. 

Brott­hvarf­inu hefur verið lýst sem „dýrð­legu tæki­færi“ af Boris Johnson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra London, eða „kata­st­rófísku fyrir landið, rest­ina af Evrópu og heim­inum,“ af fyrr­ver­andi Evr­ópu­mála­ráð­herr­anum Keith Vaz.

Hópur reiðs fólks púaði á Boris Johnson, borg­ar­stjóra Lundúna, í morgun vegna brott­hvarfs Bret­lands úr ESB.

Stuðn­ingur við brott­hvarf úr ESB skipt­ist greini­lega eftir land­svæðum í Bret­landi, þar sem íbúar í Skotlandi, Norður-Írlandi og höf­uð­borg­inni, London, kusu afger­andi með áfram­hald­andi ESB-aðild. Tæplega 60% Lund­úna­búa vildu vera áfram og 62% Skota. Samtals völdu 52% breskra kjós­enda að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið en 48% vildu vera áfram. 

Hvers vegna brethvarf?

Í grein­ingu BBC á ástæðum þess að brott­hvarf varð ofan á kemur fram að úrsögnin úr ESB teng­ist ekki minna sjálfs­vit­und og sjálfs­mynd Breta, heldur en póli­tískri og efna­hags­legri fram­tíð.

Sam­bands­sinnar höfðu varað við alvar­legum efna­hags­legum afleið­ingum þess að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið. Þær full­yrð­ingar að Bretar yrðu fátæk­ari við brott­hvarfið virð­ast hafa virkað öfugt ofan í þá sem töldu sig hafa verið fátæka innan Evr­ópu­sam­bands­ins síð­ustu ára­tugi.

Þar kemur einnig fram að brott­hvarfs­sinnar hafi haldið fram að úrsögnin hefði í för með sér að stjarn­fræði­legar upp­hæðir myndu spar­ast og þær mætti nýta til heil­brigð­is­mála. Greining á full­yrð­ing­unni leiddi þó í ljós að upp­hæð­irnar voru afvega­leið­andi, þar sem stærsti hluti þess sem Bretar borga til Evr­ópu­sam­bands­ins skilar sér aftur í formi styrkja, til dæmis tengdum land­bún­aði og menntun. 

David Cameron til­kynnir um afsögn sína í morgun.

Eldra fólk mætir vel á kjörstað

Stór hluti af kosn­inga­bar­áttu brott­hvarfs­sinna sneri að inn­flytj­enda­málum og flótta­manna­málum.

Þá skipti miklu máli að eldra fólk er mun lík­legra til að mæta á kjör­stað heldur en yngra. 78% þeirra sem eru yfir 65 ára kusu í síð­ustu þing­kosn­ingum, and­stætt 43% 18 til 24 ára og 54% 25-34 ára. Þrír af hverjum fimm 65 ára og eldri vildu yfir­gefa ESB sam­kvæmt nýlegri könnun.

Niðurstöður kosninganna
Nið­ur­stöður kosn­ing­anna Hér sjást nið­ur­stöður kosn­ing­anna í gær eftir kjör­dæmum.

Í hópi þeirra sem vildu úrgöngu er eldra fólk, fólk í dreif­býli og lítið mennt­aðir mest áber­andi, sam­kvæmt könn­unum fyrir kosn­ing­arnar.

Sam­keyrsla á nið­ur­stöðum kon­ing­anna og sam­setn­ingu íbúa eftir kjör­dæmum stað­festir fylgni milli hás ald­urs og lágrar mennt­unar og vilj­ans til að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið.

Eldra fólk og minna menntaðir vildu fara

Í könnun Yougov fyrir atkvæða­greiðsl­una sýndi sig að þeir sem væru undir 30 ára að aldri voru lík­leg­astir til að vilja vera áfram í ESB, eða 73% þeirra. Hins vegar vildu 63% þeirra sem eru yfir 60 ára aldri ganga úr ESB. 

70% þeirra sem hafa háskóla­gráðu vildu vera áfram í ESB, sam­kvæmt könn­un­inni.

Níu af hverjum tíu starfs­mönnum háskóla sögð­ust styðja áfram­hald­andi veru í ESB í sjálfs­valskönnun Times Higher Education á dög­unum. 40% svar­enda sögð­ust lík­legri til að yfir­gefa Bretland ef valin yrði úrganga, en 1% ef valin yrði áfram­hald­andi vera.

Reiknað er með að mörg ár taki að slíta sam­band Bret­lands við ESB.

Aldursdreifing atkvæða
Ald­urs­dreif­ing atkvæða

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár