Einn vinsælasti skemmtistaður landsins logar í illdeilum

Eigendur Austur leita til lög­reglu og kæra á víxl. Helm­ings­eig­andi vildi reka Ásgeir Kolbeins, sem náði að halda rekstr­inum gang­andi.

Einn vinsælasti skemmtistaður landsins logar í illdeilum

Harð­vít­ugar deilur milli eig­enda Austurs, eins vin­sælasta skemmti­staðar lands­ins, hafa ratað til lög­reglu, rík­is­lög­reglu­stjóra, sér­staks sak­sókn­ara, inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og sýslu­manns og eru á leið fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur. 

„Ég vil að lög­reglan loki staðnum,“ segir Kamran Keivanlou, stjórn­ar­for­maður 101 Aust­ur­strætis ehf, rekstr­ar­fé­lags Austurs. 

Kamran hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að fá lög­reglu til að loka staðnum og stöðva rekst­ur­inn. Ásgeir Kol­beins­son, fram­kvæmda­stjóri og annar eig­andi, hefur gripið til sinna eigin ráða til að halda skemmti­staðnum gang­andi.

Nýtt félag tekur við greiðslum

Austur er í eigu tveggja tvíeykja til helm­inga: Ásgeirs Kol­beins­sonar og Styrmis Þórs Braga­sonar, ann­ars vegar, og Kamrans og við­skipta­fé­laga hans frá Íran. Þeir síð­ar­nefndu sömdu við þá fyrr­nefndu um að kaupa stað­inn í tveimur áföngum. Aðeins helm­ingur hefur verið greiddur.

Kamran og félagi hans létu loka reikn­ingum og posum 101 Aust­ur­strætis á Austur fyrir skemmstu vegna deilna sem sner­ust um að þeir töldu Ásgeir ekki hafa staðið nægi­lega vel við sam­komu­lag um sam­eig­in­lega pró­kúru, sem fæli í sér að þeir sam­þykktu allar greiðslur út úr félag­inu. 

Til þess að forð­ast lokun stað­ar­ins fékk Ásgeir Kol­beins­son annað einka­hluta­fé­lag, Aust­ur­stræti 5 ehf, til þess að taka við greiðslum og starf­rækja posa. Sú staða er komin upp á Austur að vín­veit­inga­leyfi og leiga á hús­næð­inu eru stíluð á eitt fyr­ir­tæki en sala á áfengi á staðnum fer fram í gegnum annað félag. Þegar við­skipta­vinur kaupir drykk á Austur er greiðslan inn­heimt af nýja félag­inu.

„Þeir ættu að loka þessum stað,“ segir Kamran. „Vín­veit­inga­leyfið er gefið út á 101 Aust­ur­stræti. En posarnir eru núna tengdir við Aust­ur­stræti 5.“ Hann hefur skrifað sex bréf til lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna stöð­unnar, en fengið lítil við­brögð. Hvorki sýslu­maður né lög­reglu­emb­ætti hafa metið kröfu hans rétt­mæta.

„Það er ekk­ert ólög­legt í gangi hérna,“ segir Ásgeir. Hann segir að þótt Aust­ur­stræti 5 taki við greiðslum renni þær til 101 Aust­ur­strætis eins og áður. „Það er bara þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem sér um greiðslu­miðlun fyrir félagið. Jafn­framt hafa skatta­yf­ir­völdum verið sýndir þeir papp­írar sem þau ósk­uðu eftir til að stað­festa okkar mál.“

Vildi reka Ásgeir Kolbeinsson

Ásgeir og við­skipta­fé­lagi hans hafa stefnt Kamran fyrir dóm til að greiða að fullu kaup­verðið á Austur, en Kamran hafði aðeins greitt helm­ing kaup­virðis. Sjálfur neitar Kamran að borga og vísar til þess að Ásgeir hafi ekki staðið við sam­komu­lag um að sam­þykki hans þyrfti fyrir öllum greiðslum og svo að skulda­staða félags­ins hafi ekki verið kynnt rétt fyrir kaupin. Auk þess hafi arð­greiðslur átt að ber­ast á þriggja mán­aða fresti og áttu laun Ásgeirs að lækka ef hagn­að­ur­inn yrði undir vissri upp­hæð.

Kamran og félagi hans sam­þykktu að Ásgeiri Kol­beins­syni yrði sagt upp sem fram­kvæmda­stjóra félags­ins í júní í fyrra. Fjórir eru í stjórn 101 Aust­ur­strætis og því er stjórnin ófær um að taka ákvarð­anir.

Ásgeir bendir á að í sam­komu­lagi sem gert var um kaupin hafi komið fram að hann yrði fram­kvæmda­stjóri þar til loka­greiðsla yrði innt af hendi.

„Við buðum honum meira að segja að kaupa hann út á sama verði og hann borg­aði fyrir,“ segir Ásgeir. „Og hann vill það ekki. Hann vill hækka verðið um ein­hver fjör­tíu pró­sent. Segir að það sé orðið meira virði, en á sama tíma er hann að skaða félagið. Og vill svo ekki borga sjálfur greiðsl­una vegna þess að hann segir að hún sé svo há því að fyr­ir­tækið sé ekki þess virði.”

Mál Ásgeirs og Styrmis gegn einka­hluta­fé­lagi Kamrans verður tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mið­viku­dag­inn. Að auki eru kærur til skoð­unar hjá lög­reglu.

„Við stefndum honum til greiðslu á þessu. Auðvitað fer hann í gagn­stefnu á móti og stefnir okkur fyrir að hitt og þetta hafi ekki stað­ist, og þess háttar. Það er ekk­ert laun­unga­mál að hann kærði okkur til lög­reglu, bara til að varpa skugga á okkur. Það er ekk­ert í þessu. Við höfum ekk­ert að fela í þessu máli.“

Austur var opnað í kvöld klukkan 9, eins og áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið um næturklúbbinn Austur

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár