Mynd: Vera Pálsdóttir

„Ef maður er forseti þá er maður ekkert annað“

Flest benti til þess að Jón Gnarr gæti orðið for­seti Íslands ef hann vildi það. Jón ákvað hins vegar að ger­ast rit­stjóri inn­lendrar dag­skrár hjá 365 miðlum í stað­inn fyrir að fara á Bessa­staði. Hann seg­ist ekki vilja vera umtal­aður í sam­fé­lag­inu þegar stemn­ingin er leið­in­leg. Stundin mælti sér mót við Jón í höf­uð­stöðvum 365 í Skafta­hlíð og spjall­aði við hann um nýja starfið, eig­enda­vald, bók­ina sem hann var að ljúka við að skrifa og hvernig hann gat hafnað Bessa­stöðum.

Þetta hefur verið sér­kenni­leg leið sem ég hef farið í líf­inu; grínisti sem verður stjórn­mála­maður og borg­ar­stjóri í fjögur ár,“ segir Jón þegar spurt er hvernig þetta nýja starf hafi komið til. „Ég þurfti að finna sjálfan mig upp á nýtt eftir að hlut­verk­inu sem borg­ar­stjóra lauk og það sem ég hef verið að gera síðan ég hætti því er að klára bók sem er þriðja bókin í æskuminn­ingat­ríló­gíu minni. Ég fæ mikið út úr því að skrifa en þegar ég er búinn að vera lengi í því þá langar mig að fara að gera eitt­hvað þver­öf­ugt. Ýmsir hafa haft sam­band við mig og spurt hvort ég hefði áhuga á að koma að ein­hverri dag­skrár­gerð eða þátta­gerð, en mér hefur ekki fund­ist ég vera til­bú­inn í það að vera þar í aðal­hlut­verki. Reynsla mín af starf­inu hjá borg­inni hefur dýpkað skiln­ing minn á skipu­lagi og org­anís­er­ingu og ég held hrein­lega að það hafi vaxið nýjar heila­brautir í höfð­inu á mér. Þegar þessi hug­mynd kom upp að ég myndi starfa að inn­lendri dag­skrá hér hjá 365 miðlum fannst mér hún frá­bær og ofsa­lega spenn­andi og hlakka til að takast á við þetta verk­efni.“

Trúir ekki á frjálsan vilja

Hvert verður þitt hlut­verk hér, nákvæm­lega? 

„Ég er það sem væri kallað á ensku creative director en síðan er ég líka opin fyrir því að eiga input inn í allt sem hér er að ger­ast, á öllum miðlum, og mun hafa það. Ég lít meira á sjálfan sig sem þátt­tak­anda í sköp­un­inni en stjórn­anda og við erum í raun­inni að búa þetta hlut­verk til jafn­óðum. Ég úti­loka ekki að með tím­anum verði ég þátt­tak­andi með beinum hætti í dag­skrár­gerð hér. Ég fór til dæmis eftir að borg­ar­stjóra­tíð­inni lauk að skrifa sjón­varps­þætti fyrir RVK Studios, fyr­ir­tækið hans Baltasars Kormáks, sem heita Borg­ar­stjór­inn og eru um mann sem er borg­ar­stjóri í Reykja­vík en er algjör­lega fabrikk­er­aður karakter þótt ég muni leika hann. Mér finnst heill­andi að leika mér með per­sónu­leik­ann og sjálfs­vit­und­ina, að leyfa öðrum mann­eskjum að lík­amn­ast í mér, ég held að það að vera leik­ari sé að mörgu leyti eins og að vera mið­ill. Ég er sem sagt að stíga út úr borg­ar­stjóra­hlut­verk­inu en koma aftur inn í það með öðrum hætti.“

Maður hefur dálítið á til­finn­ing­unni að allt sem þú gerir sé ein­hvers konar hlut­verk, það veit eng­inn hver Jón Gnarr er í raun­veru­leik­anum. 

„Sann­leik­ur­inn með hann, sem teng­ist bar­áttu minni fyrir stað­fest­ingu á honum, er sá að ég hef tak­mark­aða trú á hug­tak­inu ein­stak­lingur, ég held að sjálfið sé til­bún­ingur og frjáls vilji ekki til. Að því leyti er auð­vitað allt sem við tökum okkur fyrir hendur eitt­hvert hlut­verk. Ég hef oft sett mig í ein­hverjar aðstæður til þess eins að læra af þeim og þegar ég fylgist með Curiosity vél­menn­inu á Mars finn ég fyrir sterkri teng­ingu; ég hef oft upp­lifað mig þannig að mitt starf sé að fara um og safna upp­lýs­ingum, þótt ég viti ekki alveg hvað á að gera við þær. Það er líka gaman að breyta um og verða ein­hver önnur mann­eskja. Ég velti því til dæmis mjög mikið fyrir mér sem ung­lingur hvernig það væri að vera kona. Hvernig væri ég ef ég væri kona? Hvað myndi ég segja og hvað myndi mér finn­ast?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár