Bjarni: Áhrifamikir kröfuhafar handvaldir til samtals

Sig­mundur Davíð í fyrra: „Við erum ekki í við­ræðum við þessa kröfu­hafa og munum ekki vera það. Það mun aldrei verða“

Bjarni: Áhrifamikir kröfuhafar handvaldir til samtals

„Menn hafa tog­ast á um orða­notkun í þessum málum en nú liggur fyrir að fram fór sam­tal við kröfu­hafa,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, á Alþingi í dag þegar rætt var um stöð­ug­leika­skatt og losun gjald­eyr­is­hafta. „Það liggur fyrir að full­trúar stjórn­valda áttu sam­tal við kröfu­hafa. Þar var hlustað eftir sjón­ar­miðum kröfu­hafa og stöð­ug­leika­skil­yrðin ákveðin í kjöl­farið.“ 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ítrekað þrætt fyrir að við­ræður við kröfu­hafa hafi átt sér stað. Þann 23. jan­úar í fyrra birt­ist við­tal við Sigmund Davíð á Eyjunni þar sem fram kom að aldrei hefði staðið til að fara í við­ræður við kröfu­hafa. „Við erum ekki í við­ræðum við þessa kröfu­hafa og munum ekki vera það. Það mun aldrei verða,“ var haft eftir honum. Þá sagð­ist hann telja kröfu­hafa bíða eftir því að rík­is­stjórnin stigi inn í ferlið. Það myndi hins vegar ekki ger­ast: „Þetta er ekki verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar. Eina hlut­verk rík­is­stjórn­ar­innar er að meta hvort þeir komi fram með lausn sem gerir afnám gjald­eyr­is­hafta mögu­legt.“ 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra lýsti því hins vegar á Alþingi í gær hvernig stjórn­völd hand­völdu áhrifa­mikla kröfu­hafa til sam­tals við sig. 

„Við höfum fengið vís­bend­ingar um að nauða­samn­ingar kunni að vera sú leið sem kröfu­hafar fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja muni kjósa fremur en sú leið að fá á sig skatt­inn,“ sagði hann og bætti við: „En við skulum hafa í huga í því sam­bandi að þar eru ekki kröfu­hafar að tala í krafti atkvæða­greiðslu en þó er þar um að ræða hóp kröfu­hafa í hverju slita­búi fyrir sig sem stjórn­völd hand­völdu eig­in­lega til sam­tals um þessi mál vegna þess að fyrir lá að þeir færu með áhrifa­mik­inn hlut í hverju búi um sig.“ 

Tafðist um ár
Í nýlegri skýrslu hag­fræð­ing­anna Ásgeirs Jóns­sonar og Hersis Sig­ur­geirs­sonar, sem unnin var að beiðni slita­stjórnar Glitnis, kemur fram 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár