Bækur Íslenskir furðusagnahöfundar í útrás

Íslenskar furðu­bókmenntir eru ungar og í mótun, en nú virðist vera komið líf í tuskurnar. Stundin ræddi við tvo íslenska furðu­höfunda sem fóru á ráðstefnu fantasíu- og vísinda­sagna­nörda á Álands­eyjum.

Íslenskir furðuhöfundar
Íslenskir furðu­höf­undar Emil Hjörvar Petersen og Alex­ander Dan Vil­hjálms­son kynna íslenskar furðu­sögur.

Ráðstefnu­gestir streyma út úr Alandica-höllinni út í norræna sumarsól. Einhverjir eru í bolum með myndum af vinsælum persónum úr bóka­flokkum eða tölvu­leikjum en að öðru leyti gæti þetta verið óvenju ungleg verk­fræðinga- eða tannlækna­ráðstefna. Þetta eru þó ekki verk­fræðingar heldur fantasíu- og vísinda­sagna­nördar sem komnir eru í smáþorpið (og á sama tíma höfuð­borgina) Maríuhöfn á Álands­eyjum til að taka þátt í stærsta furðusagna­þingi Norður­landanna, Archipelacon. Á meðal ráðstefnu­gesta eru tveir íslenskir höfundar sem eru komnir til að kynna bækur sínar og íslenskar furðu­sögur. Báðir hafa stóra bunka af bæklingum með kafla­brotum á bæði ensku og sænsku, sérstak­lega þýdda fyrir þessa ráðstefnu. Ég náði tali af þeim í lobbýinu á ráðstefnu­höllinni, Emil Hjörvari Petersen og Alexander Dan Vilhjámssyni. Fyrsta deginum er nýlokið, en fram undan er langt prógram þar sem allt sem viðkemur furðu­sögum verður rætt, vísinda­sögur, fantasíur, norræn furða og fleira. George R.R. Martin, höfundur bóka­flokksins sem þættirnir Game of Thrones eru byggðir á, mun árita bækur og lesa upp, margir þekktir höfundar á Norður­löndunum (og minna þekktir líka) munu taka þátt í pallborðs­umræðum sem snerta á tölvu­leikjum, kvik­myndum, finnskum hryllings­sögum og jafnvel Grískir fantasíu­áhugamenn eru með sér umræðu­vettvang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár