Spyr hvar Alþingisappið sé

Sara Elísa Þórð­ar­dóttir, vara­þing­maður Pírata, vill að komið verði á fót smá­forriti þar sem almenn­ingur getur sótt sér upp­lýs­ingar um störf þings­ins. Forritið mætti fjár­magna með sölu á varn­ingi í gegnum netið.

Með Alþing­isapp­inu gæti fólk hlustað og horft á þing­fundi á svip­aðan hátt og gert er með vin­sæl hlað­vörp að mati Söru Elísu Þórð­ar­dóttur vara­þing­manns Pírata sem hvatti þing­menn Alþingis í dag til þess að skoða alvar­lega að koma á fót smá­forriti fyrir þingið, Alþing­isapp­inu.

„Þó að yfir­stand­andi heims­far­aldur hafi lagt dauða hönd á flesta fleti dag­legs lífs á ein­hverjum tíma­punkti þá hefur hann hins vegar gætt almennri tækn­i­notkun og tækni­skiln­ingi stór­auknu lífi. Jafnvel nefnd­ar­fundir alþingis hafa færst yfir á fjar­fund­ar­formið. Eins höfum við séð afburðar smitrakn­ing­arapp þróað hér á met­tíma. En for­seti, hvar er alþingis appið?“ spurði Sara Elísa á Alþingi í dag í umræðum um störf þings­ins.

Fólk gæti vaktað tiltekin þingmál

Hún sagði slíkt smá­forrit geta gert almenn­ingi kleift að fylgj­ast betur með störfum þings­ins, það gæti haldið fólki upp­lýsti um þing­mál og fólk jafn­vel vaktað til­tekin þing­mál. Þannig væri hægt að fá til­kynn­ingar þegar til­tekin mál er sett á dag­skrá eða þegar atkvæða­greiðsla fer fram um sömu mál. Hún sagði slíkt for­rit einnig geta haft fræðslu­gildi, þar mætti setja inn mynd­bönd um störf þings­ins og þar væri hægt að birta upp­lýs­ingar um kosn­ingar og kosn­inga­nið­ur­stöður.

Að hennar mati væri hægt að fjár­magna gerð slíks smá­forrits með sölu á varn­ingi. „Og þó að lýð­ræðið kosti jú pen­inga, virðu­legi for­seti, þá þyrfti þetta alls ekki að vera dýrt, gæti jafn­vel fjár­magnað sig sjálft með sölu á Alþing­is­varn­ingi í gegnum netið.

Önnur þjóð­þing hafa farið svip­aða leið og nefndi Sara Elísa til dæmis breska þjóð­þingið. Hvatti hún þing­menn til að skoða þennan mögu­leika og að „upp­færa alþingi enn meira, styrkja beint lýð­ræði og efl­ingu gegn­særrar stjórn­sýslu á þeim formum sem bjóð­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár