Verðbólgudraugurinn í felum – Gjörólík sýn á sama vandamálið

Í fyrsta skipti frá því að 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark var tekið upp í núver­andi mynd, 27. mars 2001, fór verð­bólga niður fyrir neðri frá­viks­mörk, það er niður fyrir eitt pró­sent, í lok síð­asta árs. Ekki er hægt að segja annað en að hag­kerfið hafi farið í gegnum mikla rús­sí­ban­areið á þessum tæp­lega fjórtán árum, með miklu risi og falli gengis krón­unnar, auk alls­herj­ar­hruns banka­kerf­is­ins og setn­ingu strangra fjár­magns­hafta, sem þverpóli­tísk sátt var um eftir hrun banka­kerf­is­ins haustið 2008. Í rúm­lega sex ár hefur gangur efna­hags­mála ein­kennst af hafta­bú­skap sem bund­inn er í lög en Seðla­banki Íslands fram­kvæmir. Í skjóli hafta hefur hag­kerfið náð vopnum sínum. Nú eru ákveðin tíma­mót í þessum efnum.

[caption id="attachment_3604" align="alignnone" width="730"] Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Komandi kjara­samn­ingar fela í sér mikla efna­hags­lega áhættu fyrir hag­kerið.[/caption]

Einstök staða uppi


Þessa dag­ana er unnið að rýmkun eða afnámi þeirra, eins og kunn­ugt er, en alls óvíst er hvenær þeirri vinnu lýkur eða hvaða skref verða stigin í þessum efnum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Komandi kjarasamningar fela í sér mikla efnahagslega áhættu fyrir hagkerið.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Komandi kjara­samn­ingar fela í sér mikla efna­hags­lega áhættu fyrir hag­kerið.

Verð­bólgu­mæl­ing í síð­ustu viku stað­festir síðan að verð­bólga und­an­farna tólf mán­uði mælist nú 0,8 pró­sent, sem er minnsta verð­bólga sem mælst hefur frá því verð­bólgu­mark­miðið var tekið upp. Án hús­næð­islið­ar­ins er verð­bólga nú nei­kvæð um 0,6 pró­sent, sem er svipað og mælist nú á evru­svæð­inu. Hús­næð­islið­ur­inn heldur verð­bólg­unni jákvæðri, ef svo má að orði kom­ast.

En er þetta gott eða slæmt fyrir hag­kerfið? Hag­fræð­ingar geta vafa­lítið komið fram með sínar skýr­ingar á hvoru tveggja, en nokkur óvissa er í kort­unum í þessum efnum. Ástæðan sem er aug­ljósust er sú, að þessar aðstæður hafa aldrei mynd­ast áður frá því að verð­bólgu­mark­miðið var tekið upp. Því fylgir eðli­lega óvissa um hvað getur gerst. Verð­bólga hefur verið meg­in­vand­inn á Íslandi hingað til, að mati margra, en nú er spurn­ingin hvert verð­bólgu­draug­ur­inn fór og hvort hann láti á sér kræla á næst­unni ef til til­tek­inna ákvarð­ana kemur.

„Hættuleg“ staða í Evrópu


Verð­hjöðnun getur líka verið alvar­leg. Ávöxtun á verð­tryggðan sparnað verður nei­kvæð í slíkum aðstæðum. Almenn­ingur hér á landi á mik­inn sparnað á verð­tryggðum reikn­ingum, og langvar­andi verð­hjöðnun hefur bein nei­kvæð áhrif á ávöxtun hans. Ekki er þó hægt að segja að saga íslenska hag­kerf­is­ins sýni að mikil hætta geti skap­ast á því að verð­hjöðnun leiki hag­kerfið grátt, fjarri lagi. Áhættan er miklu fremur á hinn veg­inn.

Sem sagt; til lengdar brennur sparn­að­ur­inn upp í verð­hjöðnun, þó of snemmt sé að tala um slíkt hér á landi í augna­blik­inu. Verð­hjöðn­unin hefur ekki verið stað­fest hér líkt og á evru­svæð­inu. Seðla­banki Evrópu hefur gripið til umfangs­mik­illa aðgerða til þess að vinna gegn nei­kvæðum áhrifum verð­hjöðn­unar í álf­unni og slaka í hag­kerfum evru­ríkja, meðal ann­ars með 60 millj­arða evra mán­að­ar­legum kaupum á skulda­bréfum fjár­mála­stofn­anna og rík­is­sjóða, út árið 2016. Með þessu móti er þess freistað að hjólin snú­ist hraðar, sem ýti undir eft­ir­spurn og hag­vöxt. Mario Draghi, for­seti banka­stjórnar Seðla­banka Evrópu, hefur sagt aðgerð­irnar nauð­syn­legar og að það geti mynd­ast „hættu­leg“ staða ef hag­vöxtur tekur ekki við sér og eft­ir­spurn eykst – sem ýtir verð­lags­þróun upp á við.

https://www.youtube.com/watch?v=3aGqvDfgP80

Miklar áhyggjur af kjarasamningum


Seðla­banki Íslands hefur miklar áhyggjur af kom­andi kjara­samn­ingum og má lesa úr þær út úr bréf­inu sem bank­inn sendi stjórn­völdum 30. des­em­ber í fyrra. Þar kemur fram að verð­bólga hafi stigið upp í 6,5 pró­sent árið 2012, eftir að samið var um launa­hækk­anir sem ekki voru sam­rým­an­leg verð­bólgu­mark­mið­inu, það er meiri en hag­kerfið réði við. „Hins vegar kom fram í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að for­sendur gætu skap­ast fyrir frek­ari lækkun vaxta verði verð­bólga áfram undir mark­miði og launa­hækk­anir í kom­andi kjara­samn­ingum í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­miðið. Á hinn bóg­inn gætu óhóf­legar launa­hækk­anir og vöxtur eft­ir­spurnar grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný,“ segir í bréf­inu. Búist er við því að stýri­vextir lækki næst­kom­andi mið­viku­dag, en þeir eru nú fimm pró­sent eftir 0,5 pró­sentu­stiga lækkun við síð­ustu vaxta­á­kvörðun.

[caption id="attachment_10300" align="alignnone" width="1200"] Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er undir pressu félags­manna sinna fyrir kom­andi kjara­samn­inga. Þeir vilja fá mynd­ar­lega launa­hækkun, í takt við það sem stjórn­völd hafa samið um að und­an­förnu. Meðal ann­ars ríf­lega 20 pró­sent hækkun launa hjá læknum.[/caption]

Sjálfbær þróun?


Áhyggj­urnar af kom­andi kjara­samn­ingum eru tölu­vert miklar, og nefndu við­mæl­endur Kjarnans úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni og hjá atvinnu­rek­endum, að ekki yrði auð­velt að ná saman um kaup og kjör. Það væri enn fremur til þess að bæta gráu ofan á svart, að stjórn­völd virt­ust líta svo á að mikið svig­rúm væri til launa­hækk­ana, ef mið væri tekið af samn­ingum við lækna. Laun þeirra voru hækkuð um meira en 20 pró­sent. Spurn­ingin er; telja stjórn­völd að slíkar hækk­anir geti gengið yfir allan vinnu­mark­að­inn? Atvinnu­rek­endur segja nei við því, og hefur Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, gengið enn lengra og sagt að slíkar hækk­anir myndu grafa undan hag­kerf­inu og skapa óða­verð­bólgu. Verka­lýðs­hreyf­ingin horfir öðrum augum á málið, eins og greina má í kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins. Þar eru settar fram kröfur um að lægstu laun hækki úr 214 þús­und í 300 þús­und á mán­uði, auk fleiri atriða. Samtök atvinnu­lífs­ins neita að setj­ast niður og hefja samn­inga­við­ræður meðan þessar kröfur eru uppi. Þar á bæ er frekar horft til þess að svig­rúm til hækk­ana sé á bil­inu 3 til 5 pró­sent.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er undir pressu félagsmanna sinna fyrir komandi kjarasamninga. Þeir vilja fá myndarlega launahækkun, í takt við það sem stjórnvöld hafa samið um að undanförnu. Meðal annars ríflega 20 prósent hækkun launa hjá læknum.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er undir pressu félags­manna sinna fyrir kom­andi kjara­samn­inga. Þeir vilja fá mynd­ar­lega launa­hækkun, í takt við það sem stjórn­völd hafa samið um að und­an­förnu. Meðal ann­ars ríf­lega 20 pró­sent hækkun launa hjá læknum.

[caption id="attachment_11668" align="alignnone" width="1000"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að svig­rúm sé fyrir hendi til þess að lækka laun þeirra sem lægstu launin hafa. En hversu mikið? Það er spurn­ingin.[/caption]

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur sagt að svigrúm sé fyrir hendi til þess að lækka laun þeirra sem lægstu launin hafa. En hversu mikið? Það er spurningin.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að svig­rúm sé fyrir hendi til þess að lækka laun þeirra sem lægstu launin hafa. En hversu mikið? Það er spurn­ingin.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur rík­is­stjórnin áhyggjur af stöðu mála og hafa þær verið ræddar á vett­vangi hennar að und­an­förnu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur þó opin­ber­lega sagt, að svig­rúm sé til þess að hækka laun þeirra sem lægstu laun hafa. Stóra spurn­ingin er; hvar verður lína dregin og hvað þarf til þess að binda verð­bólgu­draug­inn betur niður? Undir hvaða kjörum getur fram­leiðni í hag­kerf­inu staðið? Fólkið sem sest við samn­inga­borðið í kom­andi kjara­samn­ingum glímir við það vanda­sama verk­efni að svara þessum spurn­ingum, og koma sér saman um sam­eig­in­lega nið­ur­stöðu á vanda­máli sem það hefur gjör­ó­líka sýn á í augna­blik­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár