Reiðin hefur kraumað undir yfirborðinu í áratugi í „ójafnasta samfélagi í heimi“

Bág staða efna­hags­lífs­ins og mikil mis­skipt­ing er ekki síst meðal ástæða þess að nú geisa verstu óeirðir í ára­tugi í Suður-Afríku. Yfirvöld hafa biðlað til fólks að taka ekki lögin í sínar hendur en tugir hafa nú þegar látið lífið.

Hermenn hafa reynt að kveða niður mótmælin ásamt lögreglu.
Hermenn hafa reynt að kveða niður mót­mælin ásamt lög­reglu. Mynd: EPA

Blóðug mót­mæli hafa staðið yfir í Suður-Afríku frá því á föstu­dag fyrir viku. Slegið hefur í brýnu milli mót­mæl­enda og örygg­is­sveita í mót­mæl­unum sem hafa stig­magn­ast á und­an­förnum dögum. Óeirð­irnar eru þær mestu í land­inu í ára­tugi og er tala lát­inna kom­inn upp í 72 í það minnsta, sam­kvæmt umfjöllun Al Jazeera og yfir 1700 hafa verið hand­tekin.

Ástandið er verst i Gauteng og KwaZulu-Natal en sam­kvæmt lög­reglu eru 45 dauðs­föll í til rann­sóknar í Gauteng hér­aði en 27 í KwaZulu-Natal. Gauteng er afar þétt­býlt hérað, inn­ar­lega í land­inu norð­aust­ar­lega. Það er minnst allra hér­aða Suður-Afríku en engu að síður fjöl­menn­ast en Jóhann­es­ar­borg, fjár­mála­mið­stöð Suður-Afríku og fjöl­menn­asta borg lands­ins, er í hér­að­inu. Kwazulu-Natal hérað er næst­fjöl­menn­asta hérað lands­ins og er heima­hérað Jacob Zuma. Það á landa­mæri að Lesótó í vestri en liggur að Ind­lands­hafi í austri.

Dauðs­föllin í héröð­unum tveimur eru flest sögð mega rekja til troðn­ings sem orðið hefur í áhlaupum sem gerð hafa verið á versl­anir, en þús­undir eru sagðir hafa gripið til þess að stela mat­vælum, raf­tækjum, áfengi og fatn­aði úr versl­unum. Þá hefur fólk einnig látið lífið af völdum skotsára. Fyrr í vik­unni voru her­menn suður-afríska hers­ins kall­aðir út til þess að aðstoða lög­reglu við að kveða niður mót­mælin.

Þrátt fyrir að þús­undir her­manna hafi tekið þátt í aðgerðum lög­reglu hefur illa gengið að hindra áhlaup á versl­anir, vöru­hús og verk­smiðjur. Ráðamenn í land­inu hafa þurft að biðla til almenn­ings um að taka lögin ekki í sína hendur en íbúar í hér­uð­unum tveimur hafa gripið til þeirra ráða til þess að reyna að verja heim­ili sín og fyr­ir­tæki. Í umfjöllun The Guardian er haft eftir Bheke Cele, ráð­herra lög­reglu­mála í Suður Afríku, að veitt aðstoð almenn­ings sé vel þegin af lög­regl­unni. Öðru máli gegnir um það þegar fólk tekur lögin í sínar eigin hendur og fer jafn­vel að skjóta á mót­mæl­endur og þjófa.

Mikil fátækt og hvergi meiri ójöfnuður

Stuðn­ings­menn Jacob Zuma, fyrrum for­seta lands­ins efndu upp­haf­lega til mót­mæl­anna í kjöl­far þess að hann gaf sig fram til lög­reglu en Zuma var nýlega dæmdur til fang­els­is­vistar vegna spill­ingar. Mótmælin hafa síðan undið upp á sig og segja stjórn­mála­skýrendur að ástandið í land­inu skipti þar máli. „Þjóð­fé­lags­hópar sem hafa átt erfitt upp­dráttar í ójafn­asta sam­fé­lagi í heimi eru reiðir kerf­inu og láta nú í sér heyra,“ er haft eftir Mcebisi Ndletyana, pró­fessor í stjórn­mála­fræði og alþjóð­sam­skiptum, í umfjöllun Al Jazeeraa. „Þessi reiði hefur kraumað undir yfir­borð­inu í ára­tugi og það sem gæti verið að ger­ast er það að glæpa­menn séu að nýta þessa upp­reisn hinna fátæku sér í hag,“ sagði Ndletyana.

Fólk braut sér leið inn í versl­anir til þess að stela vegna þess að við viljum að fyrrum for­seti Jacob Zuma verði sleppt,“ sagði Msizi Khosa, einn mót­mæl­anda, í sam­tali við Al Jazeera. „En jafn­vel þó að for­set­anum verði sleppt þá mun hnuplið halda áfram vegna þess að við erum líka svöng og okkur skortir ýmis­legt til þess að þrauka.“

Efna­hagur Suður-Afríku hefur að náð ein­hverjum bata eftir erf­iða bar­áttu lands­manna við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Seðla­banki lands­ins spáir því að hag­vöxtur árið 2021 muni nema 3,1 pró­sentum. Atvinnu­leysi í land­inu hefur aftur á móti hækkað upp í 32 pró­sent, um helm­ingur þjóð­ar­innar býr við fátækt og ójöfn­uður er mik­ill. Samkvæmt tölum Alþjóða­bank­ans er mestur ójöfn­uður meðal þjóða heims í land­inu.

Skortur á nauðsynjum yfirvofandi

Mótmælin og óeirð­irnar sem þeim fylgja hafa haft áhrif á vöru­flutn­inga. Jafnan er mest umferð um flutn­inga­leið­ina á milli Jóhann­es­ar­borgar og hafn­ar­borg­ar­innar Duban sem er í KwaZulu-Natal hér­aði. Um hana aka allt að sex þús­und flutn­inga­bílar á degi hverjum en þar hafa flutn­ingar stöðvast.

Skortur á mat­vælum, elds­neyti og lyfjum er því yfir­vof­andi innan örfárra daga. Að mati sér­fræð­inga munu skertir vöru­flutn­ingar ekki bara hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir íbúa Suður-Afríku heldur verður áhrif­anna að öllum lík­indum vart í mun fleiri löndum í sunn­an­verðri Afríku og jafn­vel víðar í álf­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár