Uppsveiflan í ferðaþjónustu hafin á ný

Fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna frá Kefla­vík­ur­flug­vellil var 90 pró­sent af fjöld­anum í sama mán­uði árið 2019 og heild­ar­fjöldi far­þega er tals­vert meiri en spár Isavia gerðu ráð fyrir. Erlend korta­velta hefur aldrei mælst jafn mikil í mán­uð­inum.

Hátt í 700 þúsund farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í síðasta mánuði.
Hátt í 700 þús­und far­þegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í síð­asta mán­uði. Mynd: Bára Huld Beck

Lifnað hefur yfir ferða­þjón­ust­unni það sem af er ári og ljóst er að hún er vöknuð af kór­ónu­veiru­dval­anum. Til að mynda var heild­ar­fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl í maí og júni sam­tals 120 þús­undum meiri en gert hafði verið ráð fyrir í síð­ustu far­þeg­a­spá Isavia sem birt var í fyrri hluta maí.

Þá hefur fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna sem hlut­fall af fjölda árs­ins 2019 leitað hratt upp á við frá ára­mótum. Í jan­úar var þetta hlut­fall 49 pró­sent en hlut­fallið var komið upp í 90 pró­sent í júní. Sumarið 2019 var síð­asta alvöru ferða­þjón­ustu­sum­arið áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á á fyrri hluta árs­ins 2020.

Í júní var fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna frá Kefla­vík­ur­flug­velli rúm­lega 176 þús­und sam­an­borið við tæp­lega 195 þús­und í sama mán­uði árið 2019. Fjöldi brott­fara erlendra far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli er „enn frek­ari stað­fest­ing á því að upp­sveiflan í íslenskri ferða­þjón­ustu er hafin á ný,“ segir á vef Lands­bank­ans.

12 prósent fleiri farþegar í júní en spáð hafði verið

Heild­ar­fjöldi þeirra sem lögðu leið sína um Kefla­vík­ur­flug­völl var tæp­lega 694 þús­und í júní sam­kvæmt tölum sem Isavia birti í lið­inni viku. Inni í þeirri tölu eru einnig íbúar lands­ins jafnt sem ferða­menn, auk skiptifar­þega. Það eru rúm­lega 12 pró­sent fleiri far­þegar en Isavia hafði reiknað með í nýj­ustu far­þeg­a­spá sinni sem birt var þann 11. maí.

Fjöldi far­þega í maí var einnig meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Heild­ar­fjöldi far­þega um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í þeim mán­uði nam rétt rúmum 489 þús­undum en það eru níu pró­sent fleiri far­þegar en spáð hafði verið fyrir um. Gert var ráð fyrir tæp­lega 448 þús­und far­þegum í heild í maí.

Met í erlendri kortaveltu

Nýjasta far­þeg­a­spá Isavia er sú fyrsta sem gerð er eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Í henni er gert ráð fyrir að heild­ar­fjöldi far­þega verði 5.7 millj­ónir á þessu ári. Enn sem komið er hefur fjöldi far­þega í ein­stökum mán­uðum verið umfram það sem spáð var, líkt og áður segir, svo lík­legt má telj­ast að end­an­legur fjöldi far­þega verði meiri. Alls fóru rúm­lega 7.2 millj­ónir far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2019.

Til við­bótar við þetta má nefna tölur yfir erlenda greiðslu­korta­veltu sem birtar voru fyrr í þessum mán­uði. Veltan hefur aldrei mælst eins mikil í júní­mán­uði líkt og í júní síð­ast­liðnum þegar hún nam 28,3 millj­örðum króna. Á vef Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar segir að hlut­fall erlendrar korta­veltu í heild­ar­korta­veltu hér á landi hafi verið 24,3 pró­sent í júní síð­ast­liðnum. Þrátt fyrir met­veltu er hlut­fallið er lægra en það var í sama mán­uði árið 2019, þá var hlut­fallið 26,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár