Fyrsta húsnæðisfrumvarpið lagt fram á Alþingi

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög á Alþingi. Frum­varpið var sam­þykkt úr rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag. Frum­varpið er fyrsta frum­varpið af fjórum stórum hús­næð­is­mála­frum­vörpum sem ýmist voru lögð fram á síð­ustu dögum þings­ins í sumar eða stóð til að leggja fram en var ekki gert.

Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Eyglóar, segir í sam­tali við Kjarnann að enn standi til að öll hús­næð­is­mála­frum­vörpin verði lögð fram á þingi fyrir jól. Samt hefur ekk­ert hinna frum­varpanna verið afgreitt úr rík­is­stjórn. Aðeins eru átta þing­funda­dagar eftir af haust­þing­inu sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins og öll þing­mál eiga að hafa verið lögð fram fyrir lok þessa mán­aðar, eða næsta mánu­dag í síð­asta lagi. Fyrirséð er að mik­ill tími þessa daga mun fara í umræður um fjár­laga­frum­varpið, eins og alltaf.

Ljóst er þó að starfs­á­ætlun þings­ins mun riðl­ast vegna þess að afgreiðsla fjár­laga verður seinna á ferð­inni en áætlað var. Samkvæmt starfs­á­ætlun Alþingis átti að hefja aðra umræðu um fjár­lögin á morgun, og þriðja umræða átti að hefj­ast viku seinna, eða þann 3. des­em­ber. Nú er orðið ljóst að þetta mun riðl­ast, þar sem að fjár­laga­nefnd hóf umfjöllun sína um fjár­lögin ekki fyrr en á mánu­dag. Ástæðan er sú að rík­is­stjórnin afgreiddi ekki sínar til­lögur fyrir aðra umræðu fjár­laga fyrr en á föstu­dags­eft­ir­mið­dag.

Þingmenn hafa gagn­rýnt skort á þing­málum frá rík­is­stjórn­inni, og eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarnans fyrr í vik­unni höfðu aldrei verið komin fram eins fá stjórn­ar­frum­vörp á þess­ari öld og á núver­andi haust­þingi. Síðan þá hafa tvö stjórn­ar­frum­vörp verið lögð fram.

Vandræði í húsnæðismálum

Eygló hafði talað um það síð­ast­lið­inn vetur að hús­næð­is­málin yrði að klára á því þingi og að jafn­vel ætti að halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Jafnvel þótt þingið hafi starfað langt fram á sumar komust málin, sem hún náði að leggja fram, ekki úr nefnd.

Í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar voru boðuð fjögur frum­vörp um hús­næð­is­mál á liðnum vetri. Það voru frum­varp til laga um hús­næð­is­bætur, um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og um hús­næð­is­mál, en hið síð­ast­nefnda fjallar um stofn­styrki til félags­legs leigu­hús­næðis. Öll frum­vörpin voru boðuð aftur í þing­mála­skrá þessa árs.

Eygló og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra deildu opin­ber­lega vegna sumra af frum­vörp­unum, sem fjár­mála­ráðu­neytið gagn­rýndi harð­lega í umsögnum sínum.

Þann 28. maí kynnti rík­is­stjórnin svo sínar aðgerðir til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. Þar á meðal var yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál. Þar var meðal ann­ars að finna lof­orð um stofn­styrki til upp­bygg­ingar félags­legs leigu­í­búða­kerfis og nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að frum­varpið um hús­næð­is­bætur ætti að að koma fyrir vor­þing í ár og önnur frum­vörp á haust­þingi, þau ætti að afgreiða fyrir ára­mót. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár