Landsvirkjun svarar ekki spurningum um vinnu og kostnað við sæstreng

Lands­virkjun svarar ekki spurn­ingum um kostnað og umfang vinnu vegna mögu­legrar lagn­ingar sæstrengs milli Íslands og Bret­lands. Þetta kemur fram í svari Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá flokks­bróður sínum Ásmundi Frið­riks­syni.

Ásmundur óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hver kostn­aður Lands­virkj­unar hefði verið frá árinu 2009 við könnun á mögu­legri hag­kvæmni þess að leggja sæstreng. Hann vildi einnig vita hversu marga fundi fyr­ir­tækið hefði átt með full­trúum breskra stjórn­valda eða fyr­ir­tækja og við hverja hefði verið rætt. Þá vildi hann vita hver ferða­kostn­að­ur­inn væri vegna funda og hversu margir vinna beint að þessum málum hjá Lands­virkjun.

Í svari Ragn­heiðar Elínar kemur fram að iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neytið hafi leitað til Lands­virkj­unar þar sem ráðu­neytið hafi þessar upp­lýs­ingar ekki undir höndum. Lands­virkjun svar­aði því til að fyr­ir­tækið starfi í alþjóð­legri sam­keppni um raf­orku­sölu til mögu­legra við­skipta­vina þar sem miklir við­skipta­legir hags­munir séu í húfi. „Upp­lýs­ingar um mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins til ein­stakra fyr­ir­tækja, iðn­greina eða mark­aðs­svæða og fundi því tengdu séu því að jafn­aði of við­kvæmar til þess að þær séu gerðar opin­berar,“ segir í svar­inu.

Í svar­inu kemur fram að unnið sé að for­at­hugun á sæstreng en það sé hluti af því mark­aðs­starfi sem fari fram innan fyr­ir­tæk­is­ins. Grein­ingar- og mark­aðs­starf nýtis ólíkum tæki­færum til fram­tíðar og það gæti ekki rétta mynd að greina kostnað við alla verk­þætti niður á sæstreng sem ein­stakan við­skipta­vin, „auk þess sem hér sé um að ræða upp­lýs­ingar við­skipta­legs eðlis sem ekki sé unnt að veita.“

Bent er á það í svar­inu að sam­kvæmt ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra frá því í júní 2013 er Lands­virkjun und­an­þegin ákvæðum upp­lýs­inga­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár