Hvernig færðu Foo Fighters til að spila í þorpinu þínu?

Jú, maður setur bara heims­met. Ítali að nafni Fabio Zaffagnini fékk þessa hug­mynd fyrir rúmu ári síðan. Hann lang­aði að sjá upp­á­halds hljóm­sveit­ina sína spila í heimabæ sínum Cesena í Romagna í Norður-Ítalíu og velti fyrir sér hvernig hann færi að því. Svarið var að búa til heims­ins stærstu rokk­hljóm­sveit.

Foo Fighters spil­uðu síð­ast í Romagna árið 1997 þegar hún fylgdi ann­ari breið­skífu sinni eftir; The Color And Shape. Síðan hefur hljóm­sveit­inni vaxið ásmeg­inn, og for­sprakk­inn Dave Grohl orð­inn að einni stærstu rokk­stjörnu í heimi.

Zaffagnini hóaði í vini sína sem hopp­uðu á vagn­inn. Saman héldu þau svo áheyrn­arprufur til að skipa þús­und manna hljóm­sveit sem mundi spila eitt lag með Foo Fighters, taka það upp á mynd­band og senda hljóm­sveit­inni. Til að fá fólk í lið með sér sendu þau mynd­bandið hér að neðan á vef­inn í vetur.

https://vimeo.com/115166028

Verk­efnið fékk fljót­lega mikla athygli, ekki aðeins á Ítalíu heldur um allan heim. Stærstu tón­list­ar­tíma­rit í heimi fjöll­uðu um þessa til­raun svo hóp­fjár­mögnun verk­efn­is­ins gekk smurt fyrir sig. Í kjöl­farið gátu þau svo ráðið hljóm­sveit­ar­stjór­ann Marco Sabiu til liðs við verk­efnið en sá hefur unnið með mörgum af þekkt­ustu tón­list­ar­mönnum í heimi, til dæmis Luciano Pavarotti svo ein­hver sé nefndur.

Tæknileg útfærsla þess­ara stuttu en risa­stóru tón­leika var ekki síður flókin og þurfti reynda tækni­menn til að koma þessu heim og saman. Flestir unnu frítt eða fyrir mjög lágar fjár­hæðir enda hafði Zaffagnini aldrei dottið í hug að hug­myndin hans næði svo langt.

Það var svo 26. júlí síð­ast­lið­inn sem þús­und manna hljóm­sveit spil­aði á stóru túni í Cesena Foo Fighters-lagið Learn to Fly undir stjórn Sabiu. Mynd­band­inu var svo dreift á vefnum í dag. Nú er bara að bíða og sjá hvort Dave Grohl og félagar svari kall­inu. Hér að neðan má sjá tón­leik­ana í heild sinni.

https://youtu.be/JozAmXo2bDE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár