„Kjósið mig“

Brátt verður kosið til Alþingis og stjórn­mála­menn eru farnir að setja sig í slíkar stell­ingar. Loforðin spretta fram, sumir úti­loka sam­starf við til­tekna flokka og aðrir vilja sam­sama sig þeim sem njóta mik­ils fylgis. Kjarninn tók saman nokkur dæmi.

Kosningabarátta flokkanna er hafin. Eins og er bendir allt til þess að ellefu flokkar bjóði fram í næstu Alþingiskosningum.
Kosn­inga­bar­átta flokk­anna er hafin. Eins og er bendir allt til þess að ell­efu flokkar bjóði fram í næstu Alþing­is­kosn­ingum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Baráttan um Alþingi er hafin. Kosn­ingar eru á næsta leiti þó að eng­inn viti nákvæm­lega hvenær þær verða. Um 50 mál bíða afgreiðslu þings­ins, sem kemur saman á mánu­dag. En ljóst er að flokk­arnir eru farnir að spýta í lóf­ana og marka sér sér­stöðu til að aðgreina sig frá öðrum í hinu óvenju­lega póli­tíska lands­lagi sem nú ríkir á land­inu.

Velferðarráðherrann Bjarni

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í við­tali við Sunnu­dags­blað Morg­un­blaðs­ins um miðjan júlí að flokk­ur­inn muni for­gangs­raða stefnu­mál­um sín­um á næsta kjör­tíma­bili, þar sem stór­auk­in áhersla verði lögð á bætta sam­fé­lags­þjón­ustu, minni greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, efl­ingu Land­spít­al­ans og bætta heil­brigð­is­þjón­ustu með stór­aukn­um fjár­fram­lög­um. Þar sagði Bjarni líka að nota beri „góð­ærið“ til að bæta út og hjálpa þeim sem minna mega sín. Þarna má segja að kveði við nýjan tón hjá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hingað til hefur lagt hvað mesta áherslu á lækkun skatta, nið­ur­greiðslu skulda rík­is­ins og efna­hags­stöð­ug­leika.

Slagsmál Eyglóar og Bjarna

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, gagn­rýndi Bjarna harð­lega í kjöl­farið og sagði við RÚV að hún hefði stundum þurft að standa í slags­málum við hann sem fjár­mála­ráð­herra um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Sam­starfið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafi ein­kennst af miklum átökum. Þá skaut hún á Bjarna vegna við­tals­ins í Morg­un­blað­inu og sagði að það væri oft betra seint en aldrei að vilja setja aukna fjár­muni í heil­brigð­is­kerfið.

Bjarni svar­aði um hæl og sagð­ist við Kjarnann ekki kann­ast við þessi átök milli flokk­anna sem Eygló lýsti. Það sama sagði Vigdís Hauks­dóttir, sam­flokks­kona Eyglóar og for­maður fjár­laga­nefndar.

[adspot]

Endurkoma Sigmundar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­kynnti flokks­mönnum sínum þann 25. júlí síð­ast­lið­inn að hann væri mættur aftur til leiks á velli stjórn­mál­anna. Sig­mundur sagði í bréfi til fram­sókn­ar­manna að hann njóti mik­ils stuðn­ings innan flokks­ins og fólk megi ekki láta það slá sig út af lag­inu þó að end­ur­koma hans muni vekja ofsa­fengin við­brögð í sam­fé­lag­inu. Hann sagð­ist ekki sjá neina ástæðu til þess að kjósa í haust.

Útilokunaraðferðin

Í lok júlí stigu for­ystu­konur stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, Pírata, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar, fram í Kjarn­anum og úti­lok­uðu allar sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir næstu kosn­ingar. Þær sögðu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi ekki kerf­is­breyt­ingar og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, sagði flokk­inn alltaf hafa ítrekað að vilja vinna til vinstri.

For­ystu­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, þeir Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé, vildu hins vegar ekki úti­loka sam­starf við neinn og sögðu við Kjarnann sama dag að sam­starf myndi byggja á mál­efnum, ekki flokkum.

Frekjurnar

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði í vik­unni í pistli á Press­unni að for­svars­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafi sýnt af sér „óstjórn­lega frekju“ þegar þær úti­lok­uðu sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þing­konur Sam­fylk­ingar, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, voru harð­orðar í garð Brynjars á Facebook í kjöl­farið:

„O boj hvað hann er mikil risa­eðla! Eða ætti ég að segja „óstjórn­lega risa­eðlu­legur?“ skrif­aði Sigríður Ingi­björg. Ólína skrif­aði: „Skyldi það vera til­viljun að karl­maður skuli nota orðið „frekja“ þegar hann ræðir um skoð­anir kvenna? Ónei.“

Össur Pírati

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, sagði á X-inu í vik­unni að það væri í raun eng­inn munur á Pírötum og Sam­fylk­ing­unni.

„Hver er sá munur? Ef þið eruð að tala um afstöðu Birgittu Jóns­dóttur um að við skulum hafa örstutt kjör­tíma­bil, níu mán­uði, og kjósa þá um stjórn­ar­skrána þá er það þannig að ég tel það óraun­hæft. Ég tel að ef menn setja svona dag­setn­ingar þá verða þær að skot­spæni og stjórn­ar­and­staðan nýja mun gera sér far um að brjóta hana niður,“ sagði Össur.

Erna Ýr Öldu­dóttir pírati sagði í kjöl­farið að Össur væri að reyna að tryggja fram­gang vinstri stefnu í land­inu með því að eigna sér Pírata og þeirra fylgi.

Niðurgreiðsla „Ólympíuleikar í populisma“

Píratar vilja nið­ur­greiða allar tann­lækn­ingar til lands­manna með sama hætti og aðra heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta gáfu þeir út í gær og var greint frá í fréttum Stöðvar 2. Sjúkra­trygg­ingar gera ráð fyrir að það gæti kostað um 11 millj­arða króna árlega.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gerði grín að hug­mynd­inni í kjöl­farið og spurði hvort Píratar vildu ekki nið­ur­greiða með­höndlun lík­þorns. Hann kall­aði málið „Ólymp­íu­leika í pop­u­l­isma og plebba­skap.“

Dagsetning vopn fyrir stjórnarandstöðuna

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði á Rás 2 í morgun að hann vildi fá Sigmund Davíð af krafti inn í bar­átt­una á ný til að leiða flokk­inn. „Ég er sann­færður um að hann verði for­maður, enda sé ég engan annan sem ætlar að taka við eða getur tekið við.“

Varðandi kom­andi kosn­ingar sagði Gunnar Bragi að það væri glapræði að ákveða kjör­dag strax. „Um leið og dag­setn­ing kemur verður stjórn­ar­and­staðan komin með ákveðið vopn í hend­urnar,“ sagði hann og bætti við að stjórn­ar­and­staðan gæti þá farið að tefja mál með mál­þófi og koma í veg fyrir að mál kæmust í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár