Tækifæri til að sýna að erlent vinnuafl sé „ekki bara eitthvað einnota drasl“

Formaður Eflingar hefur áhyggjur af stöðu aðflutts fólks sem komið hefur hingað til að vinna. Margir horfa nú fram á atvinnu­leysi.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að Íslend­ingar þurfi að við­ur­kenna að ýmis­legt mis­jafnt hafi átti sér í ferða­manna­brans­anum á árunum eftir hrun og áður en COVID-19 far­ald­ur­inn skall á. Þetta kom fram í ítar­legu við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku.

Hún rifjar upp að þús­undir karla og kvenna hafi verið hvattir til að flytj­ast hingað til lands á góð­ær­is­tím­anum til þess að starfa í ferða­manna­iðn­að­inum. Nú sé staðan önnur og mun gríð­ar­legur fjöldi aðflutts fólks verða atvinnu­laus. Af þessu hafi hún miklar áhyggjur og vísar hún í nýlega skýrslu um aðstæður erlends vinnu­afls í ferða­þjón­ust­unni.

Kjarninn fjall­aði um skýrsl­una í júlí síð­ast­liðnum en í henni kom meðal ann­ars fram að algeng­ustu brot í ferða­þjón­ustu væru að fólk fengi van­greidd laun miðað við ákvæði kjara­samn­inga um skipu­lag vakta og álags­greiðslna í vakta­vinnu eða skipt­ingu launa í dag­vinnu og eft­ir­vinnu.

Höf­undar skýrsl­unnar tóku við­töl við starfs­fólk stétt­ar­fé­laga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og einnig við erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu víða um land­ið. Talað var um jafn­að­ar­laun og tví­skiptar vaktir sem sér­stakt vanda­mál í ferða­þjón­ustu, sem fæli í sér brot á kjara­samn­ing­um.

Eigendum fjármagnsins leyft að fara sínu fram

[links]Sólveig Anna segir í þessu sam­hengi að við búum í hag­kerfi sem sé knúið áfram með því að leyfa eig­endum fjár­magns­ins og atvinnu­tækj­anna að fara sínu fram með stuðn­ingi rík­is­sjóðs.

Nú hafi stjórn­völd og þeir sem hagn­ast hafa á vinnu þessa fólks tæki­færi til að sýna að það sé mik­ils metið og „sann­ar­lega ekki bara eitt­hvað einnota drasl sem hægt er að kasta í ruslið um leið og það hentar íslensku hag­kerfi – heldur að það muni fá til baka það sem það á inni hjá rík­is­sjóði og þessu sam­fé­lagi í hækkun bóta, atvinnu­skap­andi verk­efnum og í því að hér verði brugð­ist við þessu ástandi með upp­byggi­legum og skyn­sömum hætti með þarfir vinn­andi fólks í fyr­ir­rúmi.“

Hún segir að ef vinn­andi fólk á Íslandi nái að setja fram kröfur sínar með nægi­lega skýrum og ein­beittum hætti í algjörri sam­stöðu þá hafi stjórn­völd ekki mikið um annað að ræða en að fall­ast á kröf­urnar. Það sé lyk­il­at­riðið.

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár