Kína sýnir LEGO fyrirtækinu klærnar

Það er ekki sama hver það er sem vill kaupa LEGO kubba frá fram­leið­and­anum. Að minnsta kosti ekki ef marka má við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins við ein­hverri stærstu pöntun sem LEGO hefur nokkru sinni fengið. LEGO vildi ekki selja kín­verska lista­mann­inum Ai Weiwei tvær millj­ónir leik­fangakubba sem hann hugð­ist nota í lista­verk.

Kín­verski lista­mað­ur­inn Ai Weiwei er í hópi þekkt­ustu núlif­andi mynd­list­ar­manna heims. Á lista breska tíma­rits­ins Artreview yfir hund­rað áhrifa­mestu per­sónur sam­tím­ans í mynd­list­ar­heim­inum skipar Ai Weiwei annað sætið.

Ai Weiwei er fæddur í Beijing árið 1957. Faðir hans, skáldið Ai Qing (1910- 1996) var árið 1958, ásamt eig­in­konu sinni og tveimur sonum, sendur í útlegð til norð­austur Kína, sak­aður um hægri áróður. Ári síðar var fjöl­skyldan flutt nauðug til Xinj­in­ang hér­aðs í norð­vest­ur­hluta Kína. Þar vann fjöl­skyldu­fað­ir­inn ýmis konar erf­ið­is­vinnu og á árum menn­ing­ar­bylt­ing­ar­innar 1966 – 1976 starf­aði hann við hrein­gern­ingar. Árið 1979, þegar aðstæður í Kína voru breyttar, var Ai Qing, og fjöl­skyldan, frjáls ferða sinna og flutti til Beijing. Móðir Ai Weiwei lést á útlegð­ar­ár­unum, faðir hans gift­ist aftur og eign­að­ist tvær dætur. Á efri árum hlotn­að­ist Ai Qing ýmis heiður og er meðal virt­ustu ljóð­skálda Kínverja.

Lærði teiknimyndagerð

Árið 1978 inn­rit­að­ist Ai Weiwei í Kín­versku kvik­mynda­aka­dem­í­unaí Beijing og lærði teikn­in­mynda­gerð. Þremur árum síðar, að námi loknu, lá leið hans til New York þar sem hann bjó og starf­aði til árs­ins 1993 en þá flutti hann til baka til Beijing. Í New York kynnst Ai Weiwei mörgum þekktum lista­mönnum og hafði jafn­framt fengið mik­inn áhuga fyrir arki­tektúr og bygg­inga­list.

Þegar þarna var komið var Ai Weiwei orð­inn þekktur lista­maður í heima­landi sínu en fékk að starfa óáreittur að list sinni þótt ýmis­legt sem hann lét frá sér fara þókn­að­ist ekki bein­línis kín­verskum stjórn­völdum.

Ólympíuleikvangurinn

Þegar fram­kvæmdir við Ólymp­íu­leik­vang­inn í Beijing hófust var Ai Weiwei sér­legur ráð­gjafi sviss­nesku arki­tekta­stof­unnar Herzog & de Meuron sem hann­aði leik­vang­inn sem fékk nafnið Hreiðrið. Þessi arki­tekta­stofa er mjög þekkt og virt og það að þar á bæ skyldu menn leita til Ai Weiwei segir meira en mörg orð um þann sess sem hann hafði öðl­ast.
Þegar leið á fyrsta ára­tug ald­ar­innar gerð­ist Ai Weiwei æ gagn­rýnni á stefnu kín­verskra stjórn­valda. Eftir jarð­skjálft­ann mikla í Sichuan hér­aði árið 2008 var hann í far­ar­broddi þeirra sem gagn­rýndu yfir­völd og emb­ætt­is­menn fyrir spill­ingu, ekki síst varð­andi bygg­ingu skóla­húsa sem hrundu eins og spila­borg. Enginn veit með vissu hve margir lét­ust af völdum skjálft­ans en þeir skiptu tugum þús­unda. Millj­ónir misstu heim­ili sín.

Ai Weiwei handtekinn

Aukinnar óþol­in­mæði í garð Ai Weiwei gætti nú meðal kín­verskra stjórn­valda. Í sept­em­ber árið 2009 gekkst hann undir aðgerð vegna æða­gúlps í heila en skömmu áður hafði hann sætt bar­smíðum lög­reglu við yfir­heyrslur vegna skýrslu sem hann og margir aðrir gerðu um Sichuan jarð­skjálft­ann.
Í nóv­em­ber árið 2010 var Ai Weiwei hand­tek­inn og settur í stofu­fang­elsi. Yfirvöld létu jafn­framt tveimur mán­uðum síðar rífa vinnu­stofu sem hann hafði byggt í Shanghai, á þeirri for­sendu að hann hefði ekki haft til­skilin leyfi. Allt þetta vakti athygli víða um heim og kín­versk stjórn­völd sættu mik­illi gagn­rýni. Daginn eftir að vinnu­stofan var rifin var Ai Weiwei sleppt úr fang­elsi. Afskiptum kín­verskra yfir­valda var þó ekki lokið. Vorið 2011 var hann aftur hand­tek­inn og haldið í ein­angrun í þrjá mán­uði, að sögn yfir­valda vegna óreiðu í skatta­málum. Þegar honum var sleppt var honum jafn­framt bannað að fara úr landi, og vega­bréf sitt og frelsi til að ferð­ast úr landi fékk hann ekki fyrr en í júlí síð­ast­liðnum. Kínversk skatta­yf­ir­völd töldu að hann skuld­aði mikla skatta en á örfáum vikum hafði, víða um heim, safn­ast fé til að greiða þá skuld sem jafn­gilti um það bil 240 millj­ónum íslenskra króna. Í milli­tíð­inni hafði hann fengið stöðu gesta­pró­fess­ors við Lista­há­skól­ann í Berlín og býr nú til skiptis þar og í Beijing.

LEGO kubbarnir

Í fyrra var sett upp á Alcatraz eyj­unni við San Fransisco sýn­ing á 176 and­lits­myndum af póli­tískum föngum og and­ófs­mönnum. Mynd­irnar voru gerðar úr meira en milljón legokubbum sem lista­mað­ur­inn hafði keypt, með milli­göngu dansks lista­verka­sala, beint frá LEGO fyr­ir­tæk­inu sem var full­kunn­ugt um til hvers kub­b­arnir voru ætl­aðir.

Sýningin var sett upp af banda­rísku sam­starfs­fólki Ai Weiwei sem þá sat enn vega­bréfs­laus í Kína. Hún vakti mikla athygli og stjórn­endur Þjóð­lista­safns­ins í Melbourne í buðu Ai Weiwei að setja upp hlið­stæða sýn­ingu, myndefnið ástr­alskt bar­áttu­fólk fyrir tján­ing­ar­frelsi og mann­rétt­indum. Danski milli­göngu­mað­ur­inn, sem áður er getið, hafði sam­band við LEGO og fékk þau svör að hann gæti keypt eins margar millj­ónir kubba og hann þyrfti.

Babb í bátinn

Þegar til átti að taka og fara að huga að pöntun á kubb­unum var skyndi­lega annað hljóð í LEGO strokknum. LEGO til­kynnti að fyr­ir­tækið gæti ekki styrkt verk­efni sem bæru póli­tískt yfir­bragð. Danski milli­göngu­mað­ur­inn svar­aði að verið væri að panta kubba, sem yrðu borg­aðir, ekki væri verið að biðja um að fá þá ókeypis. En LEGO hefur end­ur­tekið fyrri svör en jafn­framt sagt að hver sem er geti keypt kubba og gert við þá hvað sem við­kom­andi sýn­ist.

Þegar blaða­maður Politi­kens sendi tölvu­póst til LEGO og spurði hvort hann gæti keypt milljón legokubba, í ýmsum litum, var spurt hvað hann hygð­ist gera við þá. "Kemur LEGO það eitt­hvað við?” spurði blaða­maður en hefur ekki fengið svör enn sem komið er. Blaða­mað­ur­inn hafði líka sam­band við danskar leik­fanga­versl­anir og spurð­ist fyrir um kaup á milljón kubbum. Versl­an­irnar vís­uðu á LEGO, þær seldu ekki kubba í lausu í millj­ón­a­tali.

Af hverju bregst LEGO svona við?

Kubba­málið hefur vakið mikla athygli og um það verið fjallað í fjöl­miðlum víða um heim. Danski utan­rík­is­ráð­herr­ann, Kristian Jensen, hefur í við­tölum sagt að vita­skuld ráði LEGO því hverjum það selji kubba og hverjum ekki. Enginn deilir svosem um það. En danskir fjöl­miðlar og fjöl­margir aðrir telja að skýr­ingin sé aug­ljós: LEGO sé ein­fald­lega hrætt um að styggja kín­verska ráða­menn enda hafi for­svars­mönnum LEGO verið sagt, undir illa dul­bú­inni rós, að það muni bitna harka­lega á LEGO selji fyr­ir­tækið þessum póli­tíska and­ófs­manni kubba.

Mörgum sem hafa tjáð sig um málið þykir þetta afar vand­ræða­legt fyrir LEGO og Ai Weiwei hefur sagt það dap­ur­legt að fyr­ir­tæki eins og LEGO setji við­skipta­sjón­ar­mið ofar mann­rétt­indum. LEGO hefur að und­an­förnu lagt síaukna áherslu á að auka söl­una í Asíu. Í und­ir­bún­ingi er, og leyfi fengið, til að opna Legoland (svipað og er í Billund á Jótlandi) í Shanghai og fyrir skömmu tók LEGO í notkun stóra kubba­verk­smiðju í Jiaxing.

Hvað með sýninguna í Melbourne

Tals­maður Ai Weiwei sagði í við­tali við danskt dag­blað að sýn­ingin yrði að veru­leika. Óneit­an­lega væri það nokkuð umhendis að kaupa kubbana í versl­unum en sagði jafn­framt að nú væru kubba­send­ingar farnar að streyma til Ai Weiwei, bæði á heim­ili hans í Beijing og í Berlín. Mikill fjöldi fólks hefur líka haft sam­band við Þjóð­lista­safnið í Melbourn til að fá upp­lýs­ingar um hvert það geti sent kubba, eða pen­inga til kubba­k­aupa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár