Húsnæðisbætur hækka hlutfallslega minna hjá öryrkjum en öðrum

Áætlaðar breyt­ingar á húsa­leigu­bóta­kerf­inu munu ekki koma öryrkjum og öldruðum eins vel og þeim sem eru í námi eða vinnu. Þetta kemur fram í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um frum­varp um hús­næð­is­bætur. Hús­næð­is­bætur verða tals­vert hærri en núver­andi húsa­leigu­bætur eru, grunn­fjár­hæðin verður 31 þús­und á mán­uði, en með­al­hækk­unin verður hlut­falls­lega minni hjá öryrkjum en t.d. þeim sem eru vinn­andi eða í námi.

Þetta helg­ast af því að í frum­varpi Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um hús­næð­is­bætur, er húsa­leigu­kerfið að mörgu leyti gert lík­ara vaxta­bóta­kerf­inu. Meðal þess sem á að breyta er skil­grein­ing á þeim tekjum sem koma til skerð­ingar á hús­næð­is­bótum. Í núgild­andi lögum um húsa­leigu­bætur eru allar tekjur þeirra sem eiga lög­heim­ili í hús­næð­inu taldar sem tekjur, þar með taldar tekjur barna umsækj­enda sem eru 20 ára og eldri, nema þeim sem eru í skóla hálft árið eða meira. Bætur almanna­trygg­inga og elli- og örorku­líf­eyr­is­greiðslur úr sér­eign­ar­líf­eyr­is­sjóðum eru þó und­an­þegnar og telj­ast ekki til tekna sem geta valdið skerð­ingu á bótum.

Í nýja kerf­inu verður þessu breytt og allar skatt­skyldar tekjur heim­il­is­manna 18 ára og eldri munu telj­ast tekjur, þar á meðal greiðslur almanna­trygg­inga. Þetta er til sam­ræmis við vaxta­bóta­kerfið, og að því er fram kemur í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á frum­varpi hús­næð­is­mála­ráð­herra er þetta til þess fallið að „gæta meira jafn­ræðis og sam­ræmis í tekju­tilliti kerf­is­ins.“

Það hefur þó fyrr­greind áhrif, að leiða til auk­innar skerð­ingar hjá öryrkjum og elli­líf­eyr­is­þegum „en ella væri og vegur það á móti hækkun bóta­fjár­hæða í frum­varp­inu,“ að því er segir í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Ráðu­neytið bendir þó líka á að almennt hafi tekju­skerð­ingar mun minni áhrif hjá öryrkjum og elli­líf­eyr­is­þegum en öðrum. Önnur ráð­stöfun í nýju kerfi er sú að hús­næð­is­bætur geta numið allt að 75 pró­sentum leigu­fjár­hæðar, en þessi pró­senta er 50 í núver­andi kerfi. Þegar þessar breyt­ingar eru teknar með telur fjár­mála­ráðu­neytið að ekki verði svo mik­ill munur á aukn­ingu styrks­ins til öryrkja og ann­arra.

Myndi helst skila sér til hátekjufólks


Eins og greint var frá í síð­ustu viku telur fjár­mála­ráðu­neytið að nýja kerfið myndi skila sér helst til heim­ila sem hafa miklar tekjur. Hlut­falls­lega yrði nið­ur­greiðsla húsa­leigu meiri eftir því sem tekjur heim­ila eru hærri. Þetta er þvert á yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem var ætlað að auka stuðn­ing við efna­litla leigj­endur.

Þá myndi frum­varpið að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins leiða til þess að leigu­verð hækki, sem kynni að skila leigu­sölum meiri ávinn­ingi en leigj­endum. Útgjöld rík­is­sjóðs gætu auk­ist um rúma tvo millj­arða króna á ári og verði um 6,6 millj­arðar frá og með 2017, ef frum­varpið verður sam­þykkt óbreytt, en árið 2017 á að inn­leiða nýja kerfið. Í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur fram líka að ekki hafi verið gert ráð fyrir auknum útgjöldum í fjár­lögum eða rík­is­fjár­mála­á­ætlun.

Almennar húsa­leigu­bætur munu fær­ast til rík­is­ins frá sveit­ar­fé­lögum sam­kvæmt frum­varp­inu, en sér­stakar húsa­leigu­bætur verða ennþá á for­ræði sveit­ar­fé­lag­anna. Þetta fyr­ir­komu­lag myndi að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins auka rekstr­ar­kostnað og flækja ferlið fyrir hluta þeirra sem þiggja bætur.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið benti á það þegar þessar fréttir voru sagðar í vik­unni að grunn­bætur verði hækk­aðar veru­lega, og frí­tekju­mark hækki sömu­leiðis. Þetta séu mik­il­vægar for­sendur að baki útreikn­inga á hús­næð­is­bótum, en þeim hafi verið sleppt í umfjöllun fjöl­miðla um frum­varpið.

Ráðu­neytið sagði þá að þörfin fyrir auk­inn hús­næð­is­stuðn­ing við leigj­endur sé aug­ljós og nýju hús­næð­is­bóta­kerfi sé ætlað að mæta breyttum veru­leika sem orðið hefur til und­an­farin ár. Leigj­endum hafi fjölgað og byrði hús­næð­is­kostn­aðar hjá þeim hafi þyngst. Fjölgun leigj­enda sé mest meðal hinna tekju­lægstu, og með hækkun á grunn­bótum sé stuðn­ingur við þá auk­inn um leið og reynt sé að koma til móts við stærri hóp leigj­enda. Mark­miðið sé að jafna opin­beran hús­næð­is­stuðn­ing og gera fólki kleift að velja ólík búsetu­form.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár