Helvítis-hátíðin

Stærsta og mesta þung­arokks­há­tíð Frakk­lands, Hellfest, fór fram um síð­ustu helgi. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin. Hún er haldin árlega um miðjan júní í Clisson, skammt frá Nantes. Miðarnir seld­ust upp á örfáum klukku­tímum, 150.000 manns mættu á svæðið, skemmtu sér sam­fleytt í þrjá daga og drukku sam­tals 260.000 lítra af bjór. Samt voru engin slags­mál, ekk­ert rusl, engar eyði­legg­ingar, engin slys, ekk­ert vesen. Allt fór vel fram, svæðið var hreinsað upp á örskömmum tíma. Nú spyrja franskir fjöl­miðlar: Af hverju eru hinir ill­vígu þung­arokk­arar svona prúðir og ljúf­mann­legir þegar til kast­anna kemur? Og heim­spek­ingar og félags­fræð­ingar eru kall­aðir til að ræða þetta mál.

Þótt ham­gang­ur­inn og hávað­inn sé auð­vitað gríð­ar­legur - flös­urnar þeyt­ist út um allar áttir þegar menn sveifla höfð­inu upp og niður, veifi öllum öngum og öskri sig radd­lausa - þá virð­ist þessi djöf­ul­gangur samt hafa róandi og jákvæð áhrif á lík­amann og sál­ar­lífið sam­kvæmt merki­legum og nýlegum vís­inda­rann­sóknum. Það virð­ist koma betur og betur í ljós að þung­arokk­arar eru eitt­hvert prúð­asta og heið­ar­leg­asta fólk sem hægt er að finna.

Það er í raun stór­merki­legt hvað Hellfest-hátíðin er laus við öll slys og áföll, miðað við allan þann fjölda sem mætir og allt það áfengi sem er drukkið. Lítið er um fíkni­efni miðað við aðrar tón­list­ar­há­tíðir. Þetta er raunar sams­konar yfir­bragð og á öðrum þung­arokks­há­tíðum um allan heim. Þótt sundið sé um stríð og dauða er ekk­ert ofbeldi – ekk­ert vesen. Þung­arokk­arar heims hafa bund­ist böndum um það að skemmta sér kröft­ug­lega – en skyn­sam­lega.

[caption id="attachment_32579" align="alignnone" width="800"] Stóra sviðið á Hellfest. Flickr: Amaya & Laurent[/caption]

Fordæmt festival


Samt er Hellfest for­dæmt af kaþ­ólsku kirkj­unni og öðrum kristnum trú­ar­hópum. Stjórn­mála­menn hafa sömu­leiðis hneyksl­ast; fyrir fimm árum, sagði Francois Fillon, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, að satanískur boð­skapur Hellfest-hátíð­ar­innar væri alls ekki í sam­ræmi við gildi frönsku þjóð­ar­innar. Annar franskur ráð­herra, Christine Boutin, beitti sér mikið fyrir því að franska bjór­fyr­ir­tækið Kronenbourg sliti öllu sam­starfi sínu við hátíð­ina. Coca-Cola og önnur stór vöru­merki neita að styrkja og starfa með Hellfest. Ráð­herr­ann Frédéric Mitt­er­and ávarp­aði franska þingið sér­stak­lega til þess að lýsa yfir áhyggjum sínum með þessa djöf­ul­legu hátíð. Árið 2010 fóru frönsku, kaþ­ólsku fjöl­skyldu­sam­tökin, AFC, í mál við Hellfest og kröfð­ust þess að engum undir 18 ára aldri væri hleypt inn á svæðið og vildu að fá afhenta laga­lista til þess að rit­skoða titl­ana og text­ana. Þessari beiðni var hafnað og dóm­stólar létu málið niður falla.

Stóra sviðið á Hellfest. Flickr: Amaya & Laurent
Stóra sviðið á Hellfest. Flickr: Amaya & Laurent

For­svars­menn hátíð­ar­innar hafa marg­sinnis verið beðnir um að breyta nafni hátíð­ar­innar og margir trúa því stað­fast­lega að Hellfest sé ein alls­herjar djöfla­messa. Þung­arokk­arar hafa þó marg­sinnis bent á að þeir séu alls ekki djöfla­dýrk­endur – en hafi gaman að því að ögra og leika sér með ýmis­konar galdra­tákn og hina myrku ver­öld hinna illu afla – til þess að ýta undir kyngi­kraft tón­list­ar­innar.

Lifandi list


Frakkar eru þekktir fyrir að ræða öll mál í þaula. Þessi umtal­aða hátíð hefur því auð­vitað ratað inn í umræðu­þætti í sjón­varpi og útvarpi þar sem Hellfest er skil­greint og skoðað gaum­gæfi­lega út frá sál­fræði­legum, heim­speki­legum, póli­tískum og ekki síst trú­ar­legum for­merkjum. Flestir eru sam­mála um að þetta sé skemmti­leg og sak­laus hátíð. Öll þessi for­dæm­ing sé merki um það að þung­arokk sé lif­andi list sem enn tak­ist að ögra fólki og stöðn­uðum hug­myndum. Lista­menn eigi að hreyfa við og ögra fólki og þung­arokk­urum hafi sann­ar­lega tek­ist það með þess­ari hátíð. Hin stóra og skemmti­lega þver­sögn hátíð­ar­innar – allt vand­ræða­leysið - þaggi svo end­an­lega niður í hinum for­pok­uðu trú­ar­hópum sem vilja rit­skoða og banna allt það sem þeim mis­líkar.

[caption id="attachment_32580" align="alignnone" width="800"] Rokkið ræður ríkjum.
Flickr: Amaya & Laurent[/caption]

Andóf og pólitík


Hellfest er nú orðin ein stærsta og þekktasta þung­arokks­há­tíð heims. Þeir sem heiðr­uðu sam­kom­una í ár með nær­veru sinni voru m.a. Alice Cooper, Judas Priest, Motör­head, Slipknot, Anthrax, Mes­huggah, Shining, Mastodon, Dead Kennedys, ZZ Top, Marylin Manson, Korn, Killing Joke og fleiri bönd. Gamlir jálkar í bland við ung og spenn­andi bönd; allt keyrt áfram af miklum krafti og göf­ug­lyndi.

Rokkið ræður ríkjum. Flickr: Amaya & Laurent
Rokkið ræður ríkjum. Flickr: Amaya & Laurent

Þar næstu helgi verður þung­arokks­há­tíðin Eistna­flug haldin í Nes­kaup­stað. Hún er þekkt fyrir að vera með öllu afar frið­söm eins og Hellfest. Samt er þung­arokk enn litin horn­auga um allan heim. Í Marokkó eru þung­arokks­tón­leikar t.d. stórpóli­tískir við­burðir, upp­fullir af and­ófi og mik­illi spennu. Þung­arokks­há­tíðin í bænum Sidi Kacem í norð­ur­hluta Marokkó hefur dregið að fjölda fólks með sítt hár í svörtum fötum, en líka marga lög­reglu­menn og fyrir nokkrum árum voru nokkrir þung­arokk­arar hand­teknir fyrir að tigna djöfla­trú og sví­virða íslam. Þung­arokk­arar, ásamt röpp­urum, hafa verið sak­aðir um að draga úr góðum gildum, hvetja til drykkju, eit­ur­lyfja­neyslu og frjáls­lyndis í kyn­ferð­is­málum. Ein­hverjir hafa meira að segja verið dæmdir í fang­elsi fyrir þær sakir í þessum heims­hluta.

Málm­haus­arnir hafa reyndar hlegið að þessum ásök­unum og segj­ast hvorki vera eit­ur­lyfjafíklar né djöfla­trúar; hins vegar segj­ast þeir vera að ögra og umbera ekki að yfir­völd og sam­fé­lagið skuli segja þeim hvernig þeir eigi að klæða sig, tala og hugsa.

Þung­arokk er því lif­andi list­form, þar heyr­ist ákall þjóðar, öskur og reiði unga fólks­ins, en líka húmor og gleði yfir því að vera til. Þung­arokks­há­tíð­irnar eru því eitt­hvað annað og meira en bara ein­hverjar fyll­erís-úti­há­tíðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár