Mest lesnu álits-pistlar ársins 2018

Hvað eiga barn­eignir, metoo-umræða, ást­ar­brölt í Reykja­vík og yfir­þyrm­andi kvíði sam­eig­in­legt? Þau eru öll við­fangs­efni þeirra álits-pistla sem mest voru lesnir á Kjarn­anum í ár.

5. Ástarbrölt miðaldra í Reykjavík

„Um dag­inn fór ég að borða á mat­ar­mark­aðnum á Hlemmi með tveimur vin­kon­um. Önnur þeirra var í öngum sínum því hún var nýkomin frá spá­konu og spá­konan hafði boðað að hún myndi brátt hitta dásam­legan maka. Vin­konan fuss­aði pirruð yfir beikon­vaf­inni bleikju: Og hvað á ég að gera við þennan dásam­lega maka?! Mig langar ekk­ert í hann.

Af hverju ekki? spurði hin vin­konan og glotti sínu fal­lega ísmeygi­lega glotti.

Af hverju? hváði hin með munn­fylli af bleikju. Þá þarf ég að fara að gera alla þessa maka­legu hluti með hon­um. Keyra hring­inn og lesa upp úr korta­bók meðan hann keyrir og mæta með honum í enda­laus fjöl­skyldu­boð með þess­ari dásam­legu fjöl­skyldu – sem hann á víst líka. Og hvað! Allar helgar verða dæmi­gerðir maka-laug­ar­dagar og maka-sunnu­dagar með þess­ari fjöl­skyldu hans eða að rölta um mið­bæ­inn og fara á fjöl­skyldu­sam­kom­ur. Ég bara nenni því ekki!“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

[adspot]

4. Auðvitað mega karlmenn reyna við konur

„Þannig að þegar ein­hver segir að karlar megi nú alveg reyna við kon­ur, að þessi #metoo-­bylt­ing sé komin út í öfgar, þá má og á jafn­vel að ræða það. Og segja: auð­vitað mega karlar reyna við kon­ur. Og konum er líka vel­komið að reyna við karla. Og karlar við karla og konur við kon­ur. En við­reynsla mun aldrei gefa þetta óbragð í munni og van­líðan á sama hátt og áreitnin ger­ir. Til­finn­ingin gefur til kynna hvort um áreitni sé að ræða eða sak­laust daður og hægt er að treysta þess­ari til­finn­ingu.

Hvernig geta það verið norna­veiðar þegar konur lýsa til­finn­ing­um, reynslu og upp­lifun af ákveð­inni hegð­un? Er það einmitt ekki klass­ísk aðferð þeirra sem vilja kenna fórna­lömbum um? Alla­vega er ég sann­færð, eftir að hafa lesið þessar hund­ruð sagna sem komið hafa fram í síð­ustu miss­erum, að áreitn­in, ofbeldið og mis­mun­unin er raun­veru­leg en ekki hluti af „eðli­leg­um“ sam­skiptum milli kynj­anna.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

3. Þegar ég krassaði

„Við lifum á flóknum líf­um, mörg hver. Fólk er í flóknu fjöl­skyldumunstri, skiptir um maka og blandar saman börn­um, vinnur flókin verk­efni á degi hverj­um, venur sig á að vera undir stöð­ugu áreiti, ræður mann­eskjur í vinnu til að skilja eigin skatt­fram­töl, lifir með hinum ýmsu nútíma­sjúk­dómum og reynir að halda haus í lífs­gæða­kapp­hlaupi. Og ekk­ert við því að segja, svona er nútím­inn.

Þetta eru auð­vitað allt klisjur – en klisjur eru klisjur af því þær eru sannar og meira að segja sú setn­ing er orðin klisja.

Nú gæti ein­hver sagt að málið væri að breyta um lífstakt. Það er hæg­ara sagt en gert ef maður ætlar að þríf­ast í sam­fé­lagi nútím­ans. Eina sem maður getur gert er að draga úr notkun á sam­fé­lags­miðl­um, mæta í jóga­tíma, reyna að fók­usera á einn dag í einu og lifa sem heil­brigð­ustu lífi. En gang­verk hins dag­lega lífs heldur samt sem áður áfram að vera flók­ið.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

2. Ósanngjarnt.is

„Hér verður fjallað um hversu erfitt og ósann­gjarnt það getur verið að eign­ast barn með maka. Vert er að taka það fram að barn­eignir eru að lang­mestu leiti æðis­legar eins og hægt er að sækja sér stað­fest­ingar um með því að skoða fal­legar myndir á instagram eða lesa face­book­pósta mæðra þegar börnin þeirra eiga afmæli. Og börn eru svo nátt­úru­lega óum­deild snilld. Það sem næst samt síður á mynd og er leið­in­legra afmælis­tal er hvað álagið sem barn­eignir eru leggst mis­harka­lega á for­eldra þess.

Ég ætla ekki að láta eins og eitt­hvað fórn­ar­lamb hérna. Barn er guðs­gjöf og allt það. Blessed be the fruit! Under his eye.

Mig langar bara aðeins að reyna að koma þessum flóknu til­finn­ingum sem leika um mann alveg frá því að manni verður fyrst flök­urt og þangað til að maður sleppir því að fara í þús­undasta partýið því að það er auð­vitað miklu mik­il­væg­ara að gefa barn­inu sínu áfeng­is­lausa mjólk að drekka en að fara í lukku­hjólið á Eng­lish.“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

1. Að fæða barn

„Ég hafði vissu­lega heyrt mis­góðar fæð­ing­ar­sögur á með­göng­unni og ein­hverjar konur höfðu sagt mér að þetta væri hellað dæmi. Ég kink­aði alltaf kolli og virt­ist skiln­ings­rík en hugs­aði með mér: já já, fæð­ing er kannski erfið fyrir svona venju­lega snakk­poka­konu eins og þig sem hefur aldrei fengið tíu í leik­fimi í MR eða drukkið tvo lítra af vatni á tveimur mín­útum án þess að gubba. En ég mun hins­vegar fara létt með þetta.

Ó mikil var heimska mín og hroki.

Allar háræð­arnar í and­lit­inu á mér sprungu. Ég hélt tvisvar að ég myndi örmagn­ast. Ég hef ekki tölu á því hversu oft mig grun­aði að ég væri að kúka á mig og mér leið bara alveg fárán­lega illa.*

Það sem kom mér mest á óvart er að það eru til konur sem hafa fætt barn oftar en einu sinni. Þær konur eru bil­að­ar. Því þær vita í hvað þær eru að fara. Hvað er að ykk­ur? Þetta er ekki retor­ísk spurn­ing. Endi­lega hendið í opið bréf – ef þið hafið eitt­hvað til ykkar máls, rugl­haus­arnir ykk­ar!“

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár