Nú sé kominn tími til að bregðast við

Ný skýrsla Umhverf­is­stofn­unar Evrópu er komin út.

Íbúar Evrópu standa frammi fyrir brýnum og áður óþekktum áskor­unum um sjálf­bærni sem krefj­ist aðkallandi lausna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Evrópu en á vef Umhverf­is­stofn­unar á Íslandi má sjá umfjöllun um hana. Í skýrsl­unni er farið yfir stöðu og horfur í umhverf­is­málum Evrópu.

Þetta er sjötta SOER-skýrslan sem Umhverf­is­stofnun Evrópu gefur út. Fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­innar, Hans Bruyninckx, segir í inn­gangi skýrsl­unnar að upp­fylla þurfi vænt­ingar borg­ara um að búa í heil­brigðu umhverfi og muni það krefj­ast end­ur­nýj­aðrar áherslu á fram­kvæmd sem horn­stein í stefnu ESB og stefnu í hverju ríki.

„Við verðum ekki aðeins að gera meira; við verðum líka að gera hlut­ina með öðrum hætti. Næsta ára­tug munum við þurfa ann­ars konar lausnir við umhverfis- og lofts­lags­á­skor­unum heims­ins en þær sem við höfum notað und­an­farin 40 ár,“ segir Bruyninckx.

Ekki sé hægt að gera of mikið úr hvatn­ingu til aðgerða í lofts­lags­málum. Á síð­ustu 18 mán­uðum hafi komið út stórar skýrslur frá IPCC, IPBES, IRP og Umhverf­is­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem allar hafi svipuð skila­boð: Að þær brautir sem fet­aðar eru séu ekki sjálf­bærar og að þær teng­ist helstu fram­leiðslu- og neyslu­kerfum okkar. Tíminn sé að renna út til að koma með trú­verð­ugar hug­myndir til að snúa þró­un­inni við.

Þarf heildstæða stefnu

Í skýrsl­unni fá póli­tíkusar og stefnu­mótendur ótví­ræð skila­boð, sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun. Meg­in­á­skor­unin felist í því að mann­kynið nái fram þróun um allan heim sem leiði til jafn­vægis um sam­fé­lags­leg, efna­hags­leg og umhverf­is­sjón­ar­mið.

„Evrópa mun ekki ná fram fram­tíð­ar­sýn sinni um sjálf­bærni um að „lifa vel, innan marka plánet­unnar“ ein­fald­lega með því að stuðla að hag­vexti og leit­ast við að stjórna skað­legum auka­verk­unum með verk­færum á sviði umhverfis- og félags­mála. Þess í stað þarf sjálf­bærni að vera leið­ar­ljós fyrir metn­að­ar­fulla og heild­stæða stefnu og aðgerðir í öllu sam­fé­lag­inu,“ segir í skýrsl­unni. Jafn­framt kemur fram að árið 2020 hafi Evrópa ein­staka mögu­leika á að leiða alþjóð­legt við­bragð við áskor­unum um sjálf­bærni.

Um ógnir sem kunna að þvæl­ast fyrir mik­il­vægum umbótum segir meðal ann­ars í skýrsl­unni að atvinnu­líf, fram­leiðslu- og neyslu­kerfi sam­tím­ans hafi þró­ast saman í ára­tugi þannig að rót­tækar breyt­ingar á þessum kerfum muni lík­lega „trufla fjár­fest­ingar, störf, hegðun og gildi og skapa við­nám frá atvinnu­greinum, svæðum eða neyt­endum sem hafa áhrif á það.“

Hægt er að lesa skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár