Kínverski fótboltinn markar upphaf vorsins

Vor­boð­arnir í Peking eru margir, en sá sem ég er hvað spennt­astur fyrir er upp­haf knatt­spyrnu­leik­tíð­ar­innar. Í febr­úar /mars er enn að vísu of kalt til að hægt sé að hefja spark af fullum krafti. Þar að auki eru flestir upp­teknir á þessum tíma af því að fagna nýju kín­versku ári. Milli­stétt­inn flýgur á Boeging-þotum út úr land­inu, í versl­un­ar­ferð til Hong Kong í sól­ina á Phuket-eyju eða í hámenn­ing­una í Mið-Evrópu.

Verka­fólkið streymir hins vegar eftir æða­kerfum járn­brauta­lest­anna inn í landið, á vit fjöl­skyldna sinna sem enn eru bundnar þorp­unum og smá­bæj­unum órjúf­an­legum böndum. Á yfir­borð­inu er galsi í mann­skapnum en undir niðri krauma sterkar til­finn­ingar. Hvernig sýni ég vænt­um­þykju? Hvað á ég að segja? Hvað á ég að gefa? Og hvar er rétt­lætið?

Stétt þrjú hund­ruð millj­óna far­and­verka­manna, sem borið hefur uppi hag­vöxt í Kína og í öllum heim­inum í meira en 30 ár, hefur ekki enn fengið inn­göngu í nútím­ann. Hún getur ekki fram­fleytt sér í sveit­inni. Hún er kúguð af vinnu­veit­endum sínum í borg­inni. Hún hefur ekki aðgang að grund­vall­ar­þjón­ustu á borð við menntun og heil­brigð­is­þjón­ustu. Og hún fær ekki að berj­ast fyrir bættum kjörum. Hún verður að trúa á Komm­ún­ista­flokk­inn. Treysta því að „draum­ur­inn“ sem for­seti lands­ins Xi Jinping boðar verði einn dag­inn að veru­leika (opin­ber kynn­ing á draumnum hér) .

[caption id="attachment_23816" align="alignnone" width="1024"] Shanghai Greenland Shenhua Football Club er stærsta knatt­spyrnu­lið Kína. Stór­stjörnur á borð Við Nicolas Anelka og Didier Drogba hafa til að mynda leikið með lið­inu.[/caption]

Forsetinn boðar umbætur í kínversku knattspyrnunni


Vel á minnst, á dög­unum hélt for­set­inn fund í efna­hags- og umbóta­ráði Flokks­ins þar sem hann boð­aði nýja áætlun fyrir fram­þróun kín­versku knatt­spyrn­unnar. En eins og kunn­ugt er situr Kín­verska karla­lands­liðið yfir­leitt í kring um hund­rað­asta sætið á lista FIFA yfir bestu /verstu fót­bolta­þjóðir heims og telj­ast því verri en við Íslend­ingar (þrátt fyrir að vera 4 þús­undum sinnum fleiri).

Fjöl­menn­asta ríki heims er sem sagt örríki á eina mæli­kvarð­ann sem í raun skiptir máli þegar kemur að því að raða þjóðum á styrk­leika­lista. Telja sumir að viss miður æski­leg ein­kenni í fari kín­verskra karl­manna (svo sem eins og kald­hæðni, óreglu­leg kvíða­köst og svefn­leysi) megi rekja til þess að hag­vöxt­ur­inn í land­inu hefur ekki enn leitt til fram­fara í knatt­spyrnu.

Áður en lengra er haldið ber þess að geta að kín­verski bolt­inn hefur fengið nákvæm­lega sömu með­ferð og land­bún­að­ur­inn, kola­námu­iðn­að­ur­inn, heil­brigð­is­kerfið og svo fram­vegis eftir að Maó lést árið 1976. Næstum allt sem hönd á festir hefur verið bútað niður, mark­aðsvætt og opnað. Árið 1994 var til dæmis tekin upp atvinnu­manna­keppni og fél­gsliðum leyft að finna sér sína eigin kost­un­ar­að­ila. En allt kemur fyrir ekki. Kína er enn í hund­rað­asta sæti og leið­togar lands­ins þora ekki að sækja um HM 2626 af ótta við að lands­liðið verði þjóð­inni til skammar á heima­velli.

Breytingar í uppsiglingu?


Eftir að Xi Jinping komst til valda árið 2012 hafa sér­fræð­ingar í mál­efnum Kína leitt að því líkum að nú kunni að verða breyt­ing á. Segja þeir að for­set­inn geri sér far um að láta mynda sig á knatt­spyrnu­völlum í opin­berum heim­sóknum. Með því gefi hann til kynna að það sé í anda „sós­íal­ísks lýð­ræðis með sér-kín­verkum ein­kennum“ að spila fót­bolta. Markmið hans sé eft­ir­far­andi: 1) Kína kom­ist í und­ankeppni HM; 2) Kína haldi HM; 3) Kína vinni HM. Eftir fund­inn í efna­hags- og umbóta­ráð­inu um dag­inn hafa þessar vanga­veltur fengið byr undi báða vængi. Mun hafa verið sam­þykkt af ráðs­mönnum að dýpka umbætur í bolt­anum og er talið að það komi fljót­lega í ljós til hvaða aðgerða verði gripið í því skyni.

Mitt lið Beijing Guoan eða Peking-varð­lið­arnir eru enn í þjóð­ar­eign. Það er rík­is­fyr­ir­tækið CITIC Group (áður China International Trust and Invest­ment Corporation) sem fer með stærsta hlut­inn í félag­inu. En nú er spurn­ing hvað ger­ist í kjöl­far dýpk­unar umbóta í bolt­anum. Verður liðið loks­ins einka­vætt? Flytur það frá þjóð­ar­leik­vang­inum, „Leik­vangi verka­manns­ins“? Er það nóg til að kín­verska knatt­spyrnan skáni? Þetta verður skemmti­legt tíma­bil. Seinna köllum við það kannski Vorið í kín­verska bolt­anum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár