Vigdís Hauksdóttir segir umræðu um fjárlög snúast um persónulega óvild í sinn garð

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að umræður um fjár­lög á Alþingi snú­ist ekki um fjár­lögin sjálf heldur um hana sjálfa og per­sónu­lega óvild ann­arra í garð hennar. Þetta kom fram á þing­fundi á Alþingi í dag, en þingið er í annarri umræðu um fjár­lögin fjórða dag­inn í röð.

Stjórn­ar­and­staðan vill að umræðan verði stöðvuð og málið verði sent aftur til baka í fjár­laga­nefnd sökum þess að málið sé ekki til­búið til umræð­unnar. Í ljós kom fyrr í vik­unni að meiri­hluti fjár­laga­nefndar gleymdi að gera ráð fyrir launa­hækk­unum til fram­halds­skóla­kenn­ara, en það er kostn­aður upp á 1,2 millj­arða króna á næsta ári. Fleiri breyt­ing­ar­til­lögur hafi komið til og því vill stjórn­ar­and­staðan fresta umræð­unni. „Það er komið á dag­inn að það sem hér er til umræðu er ein­hvers konar upp­kast eða ein­hvers konar drög að til­lögum,“ sagði Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Þetta er að verða ein skrýtn­asta fjár­lagaum­ræða sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Vigdís, og undir það tóku raunar nokkrir þing­menn úr stjórn­ar­and­stöð­unni, en af öðrum ástæðum. Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagð­ist næstum því taka það nærri sér að Vigdís teldi hann óvild­ar­mann hennar. Hann sagði hins vegar að hann hefði setið á þingi í 25 ár og myndi aldrei eftir öðrum eins los­ara­brag á vinnslu frum­varpa. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG, sagði einnig að hann gæti tekið undir það að umræðan væri að verða ein sú und­ar­leg­asta á hans þing­ferli. Það væri hins vegar vegna þess að meiri­hlut­inn væri að reyn­ast algjör­lega van­bú­inn til þess að takast á við málið.

Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist hafa efa­semdir um að fólk í meiri­hlut­anum ætti að sinna störfum sínum ef það taki efn­is­lega gagn­rýni á störfin svona per­sónu­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár