Eigum aðeins eldsneytisbirgðir til 20-50 daga

Elds­neyt­is­birgðir hér á landi eru langt undir þeim við­mið­un­ar­mörkum sem í gildi eru innan Evr­ópu­sam­bands­ins og víðar. Dæmi eru um að birgðir þotu­elds­neytis hafi farið undir tíu daga.

Olíubirgðastöðin í Örfirisey.
Olíu­birgða­stöðin í Örfirisey. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Greining Orku­stofn­unar á birgða­stöðu jarð­efna­elds­neytis und­an­farin ár sýnir að aðgengi­legar birgðir í lok hvers árs duga fyrir um 20-50 daga elds­neyt­is­þörf miðað við með­al­notkun. Þá eru dæmi um að birgðir þotu­elds­neytis hafi farið undir tíu daga.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu starfs­hóps um neyð­ar­birgðir sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag. Starfs­hóp­unum var falið að taka saman stöðu mála og upp­lýs­ingar um nauð­syn­legar birgðir ýmissa þátta til þess að tryggja lífs­af­komu þjóð­ar­innar á hættu­tímum. Skýrsla hóps­ins, sem unnin er með vísan til stefnu stjórn­valda í almanna­varna- og örygg­is­málum, hefur verið kynnt í rík­is­stjórn og rædd í þjóðar­ör­ygg­is­ráði.

[adspot]

Í skýrslu starfs­hóps­ins er lagt til grund­vallar að eft­ir­taldar birgðir þurfi að vera til­tækar til þess að tryggja lífs­af­komu þjóð­ar­innar á hættu­stundu svo að unnt sé að vernda líf og heilsu almenn­ings, tryggja órofa virkni mik­il­vægra inn­viða sam­fé­lags­ins og þjón­ustu sem er nauð­syn­leg svo að unnt sé að sinna brýn­ustu þörfum íbúa og sam­fé­lags við slíkar aðstæður:

  • Jarð­efna­elds­neyti.
  • Lyf, lækn­inga­tæki og hlífð­ar­bún­aður.
  • Við­halds­hlutir og þjón­usta vegna mik­il­vægra inn­viða sam­fé­lags­ins, þ.m.t. raf­magns og fjar­skipta, veitna, sam­gangna, neyðar- og við­bragðs­þjón­ustu og mann­virkja og veitna.
  • Hrein­læt­is­vörur og sæfi­vörur.

Elds­neyti er for­senda mat­væla­fram­leiðslu eins og fjöl­margrar ann­arrar starf­semi í sam­fé­lag­inu og er því nokkuð ítar­lega fjallað um þann þátt í skýrslu starfs­hóps­ins.

Orku­stofnun fylgist með birgða­stöðu elds­neytis hér á landi. Sölu­að­ilum og fram­leið­endum elds­neytis ber að skila reglu­lega til stofn­un­ar­innar þeim upp­lýs­ingum sem nauð­syn­legar eru til að stofn­unin geti fylgst með birgða­stöð­unni.

Elds­neyti sem er í notkun hér á landi er inn­flutt bensín, flug­véla­bensín, gasol­íur (dísil, skipaga­s­olía, flotadísil­olía), þotu­elds­neyti (stein­olía) og líf­elds­neyti. Inn­flutn­ings­að­ilar eru selj­endur elds­neyt­is­ins, t.d. Skelj­ungur, N1, Atl­ants­olía, AirBP og Olís. Þessi fyr­ir­tæki hafa einnig umráð yfir birgða­rými elds­neytis því hið opin­bera rekur ekki birgða­rými.

Orku­stofnun aflar upp­lýs­inga um jarð­efna­elds­neyt­is­birgðir í land­inu og safnar saman í gagna­grunn sinn raun­tölum um ann­ars vegar elds­neyt­is­sölu olíu­fé­lag­anna og hins vegar notkun fyr­ir­tækja á Íslandi á elds­neyti sem þau flytja sjálf inn til lands­ins.

Engin krafa um lágmarksbirgðir

Í íslenskri lög­gjöf er ekki til­greindur aðili sem ber ábyrgð á að til séu neyð­ar­birgðir elds­neytis eða hversu miklar þær skulu vera, segir í skýrsl­unni. Engin krafa er sett á stjórn­völd eða atvinnu­líf að halda uppi lág­marks­birgðum elds­neytis sem nýta mætti í aðstæðum sem tak­marka eða úti­loka afgreiðslu elds­neytis til Íslands.

„Á meðan Ísland er háð jarð­efna­elds­neyti getur skortur á því tak­markað mjög hefð­bundna virkni sam­fé­lags­ins,“ segja skýrslu­höf­undar. „Vöru­flutn­ingar, sam­göngur og atvinnu­líf getur lam­ast ef ekki er til taks orku­gjafi til að knýja slíkt áfram.“

Ísland í 52. sæti

Orku­stefna Íslands til árs­ins 2050, skýrsla þjóðar­ör­ygg­is­ráðs frá 2021 og aðgerðir sem átaks­hópur um úrbætur á innviðum skil­greindi í kjöl­far fár­viðr­is­ins 2019, kalla eftir að sett verði lág­mark­s­við­mið fyrir örygg­is­birgðir elds­neytis á Íslandi.

Í skýrslu Alþjóða­orku­ráðs­ins (World Energy Council) frá árinu 2021 er bent á að Ísland er með ein­kunn­ina C á sviði orku­ör­yggis sem kemur aðal­lega til vegna skorts á neyð­ar­birgðum elds­neytis. Ísland skorar 56 stig af 100 mögu­legum er varðar orku­ör­yggi og situr í 52. sæti af 100 löndum innan Alþjóða­orku­ráðs­ins, fyrir neðan flest lönd í Evrópu.

Í orku­stefnu Íslands er kallað eftir að horft sé til alþjóð­legra við­miða við setn­ingu lág­marks­birgða. Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­orku­mála­stofn­unin gera kröfu til aðild­ar­ríkja sinna um 90 daga neyð­ar­birgðir elds­neytis miðað við inn­flutn­ing nýlið­ins árs. Elds­neyti til milli­landa­sigl­inga er þá und­an­skilið.

Viðmiðið þarf að vera 90 dagar

„Sem eyland ótengt orku­kerfum ann­arra ríkja, sem er háð inn­flutn­ingi jarð­efna­elds­neytis enn sem komið er“, segir í skýrsl­unni og telur stýri­hóp­ur­inn ekki rök fyrir því að við­mið neyð­ar­birgða elds­neytis sé lægra en það sem er lagt upp með í nágranna­ríkjum og víðar. „Ljóst er því að við­miðum um 90 daga birgðir er ekki náð hér­lendis og útfæra þarf aðgerðir til að tryggja slíkar birgðir ef slík við­mið eru sett.“

Vegna aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið voru árið 2011 skoð­aðar leiðir til að upp­fylla 90 daga birgða­skyldu sam­kvæmt til­skipun sam­bands­ins en þessi til­skipun, 2009/109EB, fellur utan EES-samn­ings­ins og hefur því ekki verið inn­leidd hér á landi.

[adspot]

Rýmið til staðar

Ljóst er að birgða­rýmin sem eru til staðar hér á landi myndu rúma 90 daga birgðir fyrir flestar gerðir elds­neytis að mati skýrslu­höf­unda. Samkvæmt grunn­spá elds­neyt­is­spár mun raun­birgða­rými þotu­elds­neytis nema 100 pró­sent af 90 daga birgða­rými árið 2043 og vera komið upp í 103 pró­sent árið 2050.

Sé tekið mið af mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar um að Ísland verði óháð jarð­efna­elds­neyti árið 2040 er myndin þó önnur.

Þörf á tölum í rauntíma

Æskilegt væri að koma á raf­rænni skrán­ingu inn­flutn­ings­að­ila jarð­efna­elds­neytis um bæði inn­flutn­ing og sölu til mis­mun­andi geira sam­fé­lags­ins, að mati stýri­hóps­ins. Þannig fengi Orku­stofnun upp­lýs­ingar um birgða­stöð­una í raun­tíma.

Verði við­mið um lág­marks­birgðir jarð­efna­elds­neytis lög­fest hér á landi þarf að skil­greina í hvaða aðstæðum leysa megi út neyð­ar­birgðir og hver komi að því að taka slíka ákvörðun, segir í skýrsl­unni.

Stýri­hóp­ur­inn mælir með að 90 daga lág­mark­s­við­mið olíu­birgða verði lög­fest hér á landi en að skoða mætti inn­leið­ingu slíkrar kröfu í skrefum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár