Læknar segja aukið fé vanta til fjármögnunar lyfja við alvarlegum sjúkdómum

„Það er áhyggju­efni ef lyfja­með­ferð sjúk­linga með alvar­lega sjúk­dóma verður ekki sam­bæri­leg því sem tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við,“ skrifa tveir læknar sem sitja í lyfja­nefnd Land­spít­al­ans. Ef stjórn­völd og heil­brigð­is­yf­ir­völd auki ekki fjár­veit­ingu til S-merktra lyfja í fjár­laga­frum­varpi næsta árs verði það mögu­lega raunin að lyfja­með­ferðir á Íslandi verði ekki sam­bæri­legar við með­ferðir á Norð­ur­lönd­unum.

Þetta kemur fram í grein sem Gerður Gröndal lyf- og gigt­ar­læknir og Gunnar Bjarni Ragn­ars­son yfir­læknir lyf­lækn­inga krabba­meina á Land­spít­al­anum skrifa í nýjasta Lækna­blað. Gerður og Gunnar segja að fjár­veit­ingin til S-merktra lyfja lækki um 210 millj­ónir króna milli ára vegna spár um geng­is­for­sendur. Á móti sé raun­hækkun fram­lags um 195 millj­ónir til að mæta kostn­að­ar­hækkun vegna auk­ins magns.

Vegna þess hversu miklar fram­farir hafa orðið í lyfja­með­ferð margra sjúk­dóma eykst notkun vegna þess að sjúk­linga­hópar stækka. Til dæmis hefur fjöldi nýrra lyfja auk­ist og árangur lyfja­með­ferðar krabba­meins­sjúk­linga batnað og margir geta vænst lengra og betra lífs. „Ljóst er að kostn­aður mun aukast vegna þess­arar lyfja­þró­unar. Ef ekki verður hægt að taka upp ný krabba­meinslyf í takt við þró­un­ina, er ljóst að þjón­usta við krabba­meins­sjúk­linga mun versna og lifun þeirra verða skemmri en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við.“

Gerður og Gunnar segja að vegna tak­mark­aðra fjár­heim­ilda á Íslandi hafi ekki verið unnt að inn­leiða mik­il­væg lyf sem séu nú þegar komin í notkun á Norð­ur­lönd­unum. „Árið 2014 voru ein­ungis tekin upp fáein ný S-merkt lyf og á þessu ári er sömu sögu að segja, ein­ungis örfá ný lyf hafa verið tekin í notkun, það er yfir­leitt þau lyf sem auka ekki kostnað og koma í stað­inn fyrir önnur sam­bæri­leg lyf. Vegna fjár­skorts eru fjölda­tak­mark­anir á einni ákveð­inni við­ur­kenndri lyfja­með­ferð.“ Þá bíði mörg ný lyf inn­leið­ingar.

„Það er áhyggju­efni ef lyfja­með­ferð sjúk­linga með alvar­lega sjúk­dóma verður ekki sam­bæri­leg því sem tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við. Miðað við ofan­greint frum­varp til fjár­laga er ljóst að svig­rúm til upp­töku nýrra lyfja verður áfram mjög tak­markað og hætta á að greiðslu­þátt­töku í gagn­legri lyfja­með­ferð sem eykur kostnað, verði hafnað,“ skrifa Gunnar og Gerður og segj­ast von­ast til þess að athuga­semdir þeirra verði teknar til greina og fjár­veit­ing aukin fyrir næsta ár. Annars sé ekki ljóst hvort hægt sé að halda lyfja­með­ferð sam­bæri­leggri við það sem tíðk­ist á Norð­ur­lönd­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár