Forsætisráðuneytið skoðar alla þætti álits umboðsmanns Alþingis

Umfangs­mikil skoðun er hafin í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á athuga­semdum umboðs­manns Alþingis, sem koma fram í áliti umboðs­manns vegna leka­máls­ins. Þetta kom fram í máli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi rétt í þessu.

Sig­mundur Davíð svar­aði fyr­ir­spurnum frá Valgerði Bjarna­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, og Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, vara­þing­konu VG, sem spurðu meðal ann­ars um ábend­ingar umboðs­manns Alþingis til ráðu­neyt­is­ins og um álitið almennt.

Sig­mundur sagði að bæði stæði yfir vinna við að skoða þær ábend­ingar sem beint hefði verið sér­stak­lega til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og jafn­framt væri verið að fara yfir álit umboðs­manns í heild sinni. Meðal ann­ars beindi umboðs­maður Alþingis athuga­semdum um siða­reglur rík­is­stjórn­ar­innar. Sig­mundur sagð­ist telja að setn­ing siða­reglna fyrir hverja rík­is­stjórn væri heim­ild en ekki skylda. Mögulega þyrfti að skerpa á siða­reglum og hlut­verki for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. „Við þessu öllu verður brugð­ist og sú vinna er í gangi.“

Þá sagði hann að verið væri að rýna í alla þætti álits­ins og álitið í heild sinni. Sú vinna væri sam­bæri­leg og vinna sem hafin er í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið fékk Hafstein Þór Hauksson, lektor við laga­deild Háskóla Íslands, til þess að skoða athuga­semdir er varða stjórn­sýslu ráðu­neyt­is­ins. Hann ætlar að skila áliti í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár